Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 6
6 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR KJARAMÁL Samninganefnd grunn- skólakennara og samninganefnd sveitarfélaga hafa undirritað nýjan kjarasamning, mánuði áður en gamli samningurinn rennur út. Í nýja samningnum, sem er til eins árs, eru kjör kennara gerð sam- keppnisfær við kjör samanburðar- hópa í þremur áföngum. 1. júní hækka laun kennara um 25 þúsund krónur á mánuði. Með því er að hluta til verið að færa launataxta að greiddum launum þar sem yfirborganir hafa átt sér stað. 1. ágúst bætast níu þúsund krónur inn í launatöflu auk þess sem uppbyggingu hennar er breytt til hagsbóta fyrir yngri kennara. Lokaáfanganum er síðan náð 1. október þegar öll starfsheiti hækka um einn launaflokk, eða 2,6 prósent að jafnaði. Þessar þrjár launahækkanir eru fyrir þá sem ekki hafa notið yfir- borgana. Þær nema samtals 15 til 23 prósentum á grunnlaun eftir aldurshópum. Um næstu áramót hækka launin svo yfir línuna um 2,5 prósent. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, telur árangurinn viðunandi. „Þessi samningur er til eins árs og það er ásættanlegt,“ segir hann. „Kenn- arar geta átt von á að launin þeirra, eftir aldri og störfum, hækki um allt að 23 prósent á þessu ári. Flestar launahækkanirnar koma inn á fyrstu sjö mánuðunum. Það getur þýtt frá tæpum fimmtíu þúsundum í tæp sextíu þúsund á mánuði.“ Á þessu ári má vænta þess að launakostnaður sveitarfélaga vegna þessa samnings hækki um 1,2 milljarða króna. Karl Björns- son, formaður samninganefnda sveitarfélaga, segir að sveitar- félögin þurfi náttúrulega að end- urskoða forgangsröðun verkefna. „Við vitum hvernig ástandið er í efnahagslífinu. Væntanlega eru tekjur rýrnandi og þetta kostar nýja forgangsröðun og endurmat á stöðunni hjá mörgum,“ segir hann. Kjarasamningurinn var undir- ritaður í húsnæði Ríkissáttasemj- ara í gær. Samningurinn verður nú kynntur fyrir kennurum og launanefnd og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Launa- nefnd tekur samninginn fyrir þegar grunnskólakennarar hafa greitt atkvæði um hann. Samkomulag er um að næsti kjarasamningur renni út um leið og kjarasamningar annarra stéttar- félaga starfsmanna sveitarfélaga. ghs@frettabladid.is Þessi samningur er til eins árs og það er ásættanlegt. ÓLAFUR LOFTSSON FÉLAGI GRUNNSKÓLAKENNARA Laun kennara hækka um 50 til 60 þúsund Grunnskólakennarar hafa gert kjarasamning til eins árs, mánuði áður en gamli samningurinn rennur út. Grunnlaun geta hækkað um 15-23 prósent, eða 50-60 þúsund á mánuði. Kostnaður sveitarfélaganna nemur 1,2 milljörðum. SAMNINGAR NÁST Ólafur Loftsson, formaður Félags íslenskra grunnskólakennara, og Karl Björnsson, formaður samninganefndar sveitarfélaga, undirrituðu kjarasamning til eins árs í gær. Ásgrímur Stefánsson ríkissáttasemjari fylgdist með. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON er svariðjá 118 ja.is Símaskráin ÍS L E N S K A S IA .I S J A A 4 14 62 0 3/ 08 Þarftu samband við bifvélavirkja í einum grænum? NEYTENDUR Fjórum milljónum króna verður varið til að stemma stigu við hækkun verðlags vegna lækkunar á gengi krónunnar og hækkunar hrávöruverðs. Viðskiptaráðherra hefur fundað með fjölmörgum fulltrúum hagsmunahópa að undan förnu og kynnt sér sjónar- mið þeirra. Hefur hann í fram- haldinu ákveðið að grípa til aðgerða í fimm liðum í því augna- miði að sporna við verðhækkun- um. Meðal annars er stefnt að því að sekta kaupmenn, lúti þeir ekki reglum um verðmerkingar. Endurskoða á reglur um net- verslun og segir Jón Þór Sturlu- son, aðstoðarmaður viðskipta- ráðherra, að sköttun póstsendinga verði skoðuð. Þá á að leita sam- starfs við Samtök verslunar og þjónustu um aukna hagræðingu í verslunarrekstri. Segir Jón Þór að afgreiðslutími verslana og samningar við birgja og flytjend- ur kunni að koma til skoðunar í þeim efnum. - bþs Viðskiptaráðherra grípur til aðgerða í fimm liðum vegna hækkunar verðlags: Fjórar milljónir í verðlagseftirlit BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON Viðskiptaráð- herra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FYLGST MEÐ VERÐI OG REGLUR SKOÐAÐAR ■ 1. ASÍ mun annast sérstakt átak í verðlagseftirliti og fylgjast með þróun vöruverðs með tíðari hætti en áður. ■ 2. Neytendastofa mun fara í sérstakt átak í eftirliti með verð- merkingum á vöru og þjónustu og endurskoða reglur um verðmerk- ingar. ■ 3. Reglur um netverslun verða endurskoðaðar með það að mark- miði að auka samkeppni og lækka vöruverð. ■ 4. Neytendur verða hvattir til að gera verðsamanburð, koma ábend- ingum um verðlag á framfæri og gæta að hagsmunum sínum. ■ 5. Leita á samstarfs við kaup- menn um aukna hagræðingu í verslunarrekstri. ÞJÓNUSTA Hinn 15. maí gefst fólki aftur tækifæri á því að panta lúgumiða sem segir blaðberum til um það hvort fólki vilji fjölpóst inn um lúgu sína eður ei. Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður markaðs- og kynningardeildar, segir að Íslandspóstur hafi boðið upp á slíka miða þar til í fyrravor. Síðan hafi verið reynt að samræma verklag um dreifingu fjölpósts meðal stærstu fyrirtækjanna sem sjá um dreifingu en þar sem það virðist engan árangur ætla að bera hafi Íslandspóstur ákveðið að bjóða neytendum þennan kost á ný. - jse Íslandspóstur bætir þjónustu: Hægt að af- þakka fjölpóst KJARAMÁL „Þetta er mjög ríflegur samningur,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, SA, um nýgerðan kjarasamning grunnskóla- kennara. „Það hafa engin fyrirtæki efni á að gera svona samning og ég held reyndar að sveitarfélögin hafi það ekki heldur. Málið snýst líka um hvort þessi samningur er fyrirmynd annarra samninga hjá opinberum aðilum.“ Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, vill ekki tjá sig um kjarasamning grunnskólakennara. - ghs Framkvæmdastjóri SA: Mjög ríflegur samningur VILHJÁLMUR EGILSSON REYKJAVÍK Ólafur F. Magnússon borgarstjóri vísar á bug ummælum Sóleyjar Tómasdóttur varaborgar- fulltrúa um afstöðu hans í mann- réttindamálum. Sóley sagði Ólaf tjá sig af vanþekkingu um mannréttindamál. Hann segist í yfirlýsingu þvert á móti hafa lagt áherslu á þann málaflokk. Sjálf hafi Sóley ekki nýtt heimild til að ráða þrjá starfsmenn á skrifstofuna þegar hún var formaður mannréttindaráðs. Skrifstofan hafi verið mannlaus í fjórar vikur undir hennar stjórn. Sóley segir í nýrri yfirlýsingu að yfirlýsing borgarstjóra einkennist af rangfærslum og ofmati á eigin verkum. Hann hindri öflugt mannréttindastarf. Borgarstjóri segir meirihlutann vilja nýta betur þann mannauð sem fyrir hendi sé. - kóp Yfirlýsingar í borgarstjórn: Hart deilt um mannréttindi Óttastu ástandið á fasteigna- markaði? Já 54,1% Nei 45,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Telur þú í lagi að verslun 10-11 í Austurstræti sé opin allan sólarhringinn? SUÐUR-AFRÍKA, AP Forystumenn stjórnarandstöðu- flokkanna í Simbabve tilkynntu í gær að þeir hygðust binda enda á langvarandi innbyrðis deilur sín á milli og sameinast gegn Mugabe, forseta landsins. Einnig biðluðu þeir til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna að senda sérstakan erindreka til Simbabve og tilkynna Mugabe að ofbeldi til handa stuðningsmönnum stjórnarandstöðunnar jafngilti glæpum gegn mannkyninu. Forystumenn stjórnarandstöðunnar, þeir Morgan Tsvangirai og Arthur Mutambara, hafa deilt sín á milli um margra mánaða skeið en voru í gær samtaka í því að skipa Mugabe að víkja frá völdum. Enn er beðið eftir opinberum úrslitum forseta- kosninganna sem fram fóru hinn 29. mars síðastlið- inn. Fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu áttu að hittast í gær til að fara endanlega yfir úrslit endur talningar í 23 héruðum landins og búist var við niðurstöðu að þeim fundi loknum. Gærdagurinn leið hins vegar án nokkurra frekari frétta af úrslitunum. Mikill ótti er við að Mugabe skipi her og lögreglu að beita enn meira ofbeldi en verið hefur til að viðhalda völdum sínum. - kg Stjórnarandstaðan í Simbabve sameinast gegn Mugabe: Enn hafa engin úrslit verið birt SAMEINAÐIR Mutambara og Tsvangirai hafa lagt deilur til hliðar og sameinast gegn Mugabe forseta. KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.