Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 50
18 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR BRESKI KVIKMYNDALEIKSTJÓR- INN ALFRED HITCHCOCK LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1980. „Í flestum kvikmyndum eru morð snyrtilega útfærð. Ég sýni hversu erfitt og sóða- legt það er að myrða mann- eskju.“ Hitchcock leikstýrði á ferli sínum yfir sextíu kvik myndum, þar á meðal hryllings mynd- unum The Birds og Psycho. MERKISATBURÐIR 1106 Jón Ögmundsson er vígð- ur biskup. Hann var fyrsti biskupinn á Hólum. 1899 KFUK, Kristilegt félag ungra kvenna, er stofnað á Íslandi. 1967 Brandur, breskur tog- ari sem var í haldi vegna landhelgisbrots, strýkur úr Reykjavíkurhöfn með tvo íslenska lögregluþjóna um borð. Hann náðist síðar sama dag. 1968 Hinn umdeildi söngleik- ur Hárið er frumsýndur á Brodway í New York. 1997 Alþjóðlegi efnavopna- samningurinn tekur gildi. Hann skyldar aðildarríki til þess að hætta þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna. Þennan dag árið 1992 brutust út óeirðir í Los Angeles eftir að fjórir lögreglumenn voru sýknaðir af kæru um að hafa gengið í skrokk á leigubílstjór- anum Rodney Glen King. Myndband náðist af lögreglumönnun- um, Laurence Powell, Timothy Wind, Theo- dore Briseno og Stacey Koon, þegar þeir börðu King eftir að hann var stöðvaður fyrir of hraðan akstur og var það sýnt úti um allan heim. Lögreglumennirnir voru kærðir en sýknaðir þrátt fyrir mynd- bandið. Í kjölfarið brutust út óeirðir sem stóðu yfir í sex daga. Þúsundir þeldökkra Bandaríkjamanna söfnuðust saman og gengu berserksgang um borgina. Í óeirðun- um létust 53, tvö þús- und manns slösuðust og yfir tíu þúsund voru handteknir. Málið var tekið aftur upp og þá voru Powell og Koon fundnir sekir en hinir tveir sýknaðir. Lögreglan hafði mikinn viðbúnað þegar seinni dómurinn var kveðinn upp en engar óeirðir brutust út. ÞETTA GERÐIST: 29. APRÍL 1992 Óeirðir brutust út í Los Angeles Skagfirski sveiflukóngurinn Geir- mundur Valtýsson á um þessar mund- ir fimmtíu ára starfsafmæli en hann kom fyrst fram á sveitaballi í félags- heimilinu Melskili árið 1958, þá fjór- tán ára gamall. Að því tilefni verður efnt til tónleika í íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstu- daginn 2. maí og mun fjöldi söngfólks koma þar fram með Geirmundi. Hann fór ungur að fikta við tónlist og handlék fyrstu harmonikkuna ell- efu ára gamall. Upphafinu lýsir hann á þennan veg: „Ég og Gunnlaugur bróðir minn fengum lánaða nikku hjá nágranna okkar. Við fikruðum okkur áfram með hana í hönd en svo kom að því að við keyptum okkar eigin. Fjórtán ára tróð ég fyrst upp fyrir sveitunga mína og þá var ekki aftur snúið,“ segir Geir- mundur en orðspor hans spurðist fljótt út enda ekki algengt að svo ungir tón- listarmenn kæmu fram á þeim árum. „Sem betur fer vakti þetta athygli því ég er búinn að vera í bransanum allar götur síðan og hefur þetta verið afar farsæll tími,“ segir Geirmundur, sem einnig starfar sem fjármálastjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.Hann fékk sér gítar fimmtán ára og stofnaði hljómsveitina Rómó og Geiri. Tíminn leið og spilaði hljómsveitin allt til árs- ins 1965 þegar Geirmundur gekk til liðs við hljómsveit Hauks Þorsteins- sonar. „Við spiluðum saman í ár en þá hætti Haukur og við nefndum hljóm- sveitina Flamingó. Hún starfaði til árs- ins 1971 en þá stofnaði ég Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar sem hefur starfað óslitið síðan.“ Geirmundur segir margt hafa fleytt honum áfram á ferlinum en lagið „Bíddu við“ kom honum á kortið árið 1972. „Þá fór ég að senda inn lög í Júró visjón sem öll urðu vinsæl,“ segir Geirmundur og nefnir lögin Lífsdans- inn, Látum sönginn hljóma og Vaxandi þrá. Geirmundur hefur átt marga slag- ara í gegnum tíðina og þeyttist vítt og breitt um landið til að skemmta fólki á áttunda og níunda áratugnum. Hann heldur jafnharðan áfram og er bókað- ur allt þetta ár og fram á það næsta. „Ég hef verið gríðarlega lánsamur og er þakklátur öllum sem hafa á mig hlýtt. Ég get hætt hvenær sem er en sé reyndar ekki ástæðu til þess í bráð.“ Á föstudaginn mun Geirmundur flytja rjómann af lögum sínum og fær hann til liðs við sig söngfólk úr ýmsum áttum. Má þar nefna Magna Ásgeirsson sem tekur nokkur af rokk- lögum hans, Álftagerðisbræður og þrjá kóra. vera@frettabladid.is GEIRMUNDUR VALTÝSSON: FAGNAR FIMMTÍU ÁRA STARFSAFMÆLI Farsæll í hálfa öld FYRSTA NIKKAN Geirmundur keypti fyrstu nikkuna aðeins þrettán ára og sló í gegn frá fyrstu stundu á sveitaböllunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Baldvins Lárusar Guðjónssonar Halla E. Stefánsdóttir Börkur B. Baldvinsson Matthildur Sigurjónsdóttir Guðjón B. Baldvinsson Ingunn L. Guðmundsdóttir Katrín K. Baldvinsdóttir Sigurbjartur Á. Guðmundsson Þorsteinn V. Baldvinsson Sigríður Björnsdóttir Kristján G. Gunnarsson Guðrún A. Jóhannsdóttir Gunnur K. Gunnarsdóttir Hlynur Þorsteinsson Björk K. Gunnarsdóttir Guðmundur Jónsson Steinunn H. Gunnarsdóttir Róbert G. Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, Birgitta Stefánsdóttir Gröf í Bitru (frá Kleifum í Gilsfirði), lést á Dvalarheimilinu í Borgarnesi laugardaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju laugar- daginn 3. maí kl. 14.00. Björg Gísladóttir Reynir Helgason Hallgrímur Gíslason Bára Ólafsdóttir Rögnvaldur Gíslason Arnheiður Guðlaugsdóttir Stefán Gíslason Björk Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Haukur Runólfsson Víkurbraut 30, Hornafirði, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, Hornafirði, laugardaginn 26. apríl, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju þriðjudaginn 6. maí kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið og gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Halla Bjarnadóttir Gunnlaugur Höskuldsson Linda Tryggvadóttir Jón Haukur Hauksson Sesselja Steinólfsdóttir Hulda Laxdal Hauksdóttir Páll Róbert Matthíasson Runólfur J. Hauksson Svanhildur Karlsdóttir afabörn og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, dóttir mín, systir okkar og eiginkona mín, Guðbjörg Magna Björnsdóttir Fensölum 2, 201 Kópavogi, sem lést aðfaranótt 22. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. maí kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Þórunn Soffía Þórðardóttir Þórunn Magnúsdóttir Þórður Sveinlaugur Þórðarson Sveinlaugur Björnsson Rebekka Björnsdóttir Þórður Jónsson Þórgunnur Björnsdóttir Sveinbjörn Björnsson. Elskulegi eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Gissur Jóel Gissurarson, Brávallagötu 26, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 23. apríl. Verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 2. maí klukkan 13.00. Margrét Margeirsdóttir Ívar Gissurarson Stefanía Hrólfsdóttir Margeir Gissurarson Hulda Biering Snorri Gissurarson Bára Ægisdóttir Laufey Elísabet Gissurardóttir Kristinn Ólafsson Lilja Gissurardóttir Árni Benediktsson Ingólfur Gissurarson Valdís Arnórsdóttir afa- og langafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur okkar og systur, Söru Lindar Eggertsdóttur Mosarima 37, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Sigurmunda Skarphéðinsdóttir Eggert Ísólfsson Ísólfur Eggertsson Edda Rós Eggertsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.