Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 62
30 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. árás 6. í röð 8. slit 9. harðæri 11.
verslun 12. óbundið mál 14. púla 16.
kaupstað 17. bókstafur 18. annríki 20.
999 21. land í asíu.
LÓÐRÉTT
1. skora 3. fæddi 4. listastefna 5.
lúsaegg 7. biðja ákaft 10. kyrra 13.
gerast 15. formóðir 16. ófarnaður 19.
nafnorð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sókn, 6. rs, 8. lúi, 9. óár,
11. bt, 12. prósi, 14. baksa, 16. bæ, 17.
emm, 18. önn, 20. im, 21. laos.
LÓÐRÉTT: 1. gróp, 3. ól, 4. kúbismi,
5. nit, 7. sárbæna, 10. róa, 13. ske, 15.
amma, 16. böl, 19. no.
„Hversdags finnst mér voða
gaman að fara á Austurlanda-
hraðlestina. Svo finnst mér
Hornið alltaf standa fyrir
sínu. En ef ég vil fara eitthvað
ennþá fínna er Hótel Holt alltaf
sterkt.“
Bergþór Pálsson söngvari.
Kvikmyndafyrirtækið Catapult,
sem er í eigu Sigurjóns Sighvats-
sonar, hefur tryggt sér sölurétt-
inn að kvikmynd Madonnu, Filth
and Wisdom. Sigurjón mun endur-
selja myndina og koma að mark-
aðssetningu hennar. „Þetta ferli
fór að mestu leyti í gegnum
umboðsmanninn hennar en við
vorum í sambandi við hana með
tilliti til þess hvernig myndin
yrði seld og hvar við sæjum
markaðsmöguleika hennar sem
besta,“ segir Sigurjón. Framleið-
andinn og poppdrottningin hafa
áður ruglað saman reitum í kvik-
myndagerð en Sigurjón var einn
framleiðenda myndarinnar Truth
or Dare: In Bed with Madonna
sem hneykslaði heimsbyggðina
snemma á tíunda áratug síðustu
aldar. Auk þess kom Sigurjón að
gerð nokkurra af frægustu tón-
listarmyndböndum söng-
konunnar, meðal annars Vogue
og Express Yourself.
Að sögn Sigurjóns er þessi
réttur metinn á töluverða upp-
hæð en hann vildi þó ekki gefa
upp nákvæma tölu. Filth and Wis-
dom er frumraun Madonnu í leik-
stjórastólnum en henni hafa
verið mislagðar hendur á hvíta
tjaldinu. Hún ætti þó að eiga
hauk í horni hjá eiginmanni
sínum hvað leikstjórn varðar en
það er breski leikstjórinn Guy
Ritchie.
Sigurjón hefur verið önnum
kafinn að undanförnu en tökum á
kvikmyndinni
Brothers er
nýlokið. Þar fara
Natalie Portman,
Jake Gyllenhaal
og Toby Maguire
með aðalhlutverk-
in og er
stefnt
að því
að frum-
sýna
myndina í kring-
um jólin. Það
tímabil hefur
oftast verið
kennt við
Óskar inn í
Ameríku en
Sigurjón
segir einfaldlega of snemmt að
fara út í slíkar pælingar núna.
„Myndin lítur fram-
bærilega út núna,
þetta virðist hafa
heppnast vel.“ - fgg
Sigurjón með Madonnu á sínum snærum
Ný kynslóð popphljómsveita virðist vera á uppleið á
Íslandi. Hljómsveitir eins og Bermúda, Vítamín og
Dalton hafa vakið athygli og eitt vinsælasta lagið í
dag á hljómsveitin Veðurguðirnir. Þar í fremstu
víglínu er Ingólfur Þórarinsson, Ingó, úr síðustu
Idol-syrpunni. Hann samdi „Bahama“, lagið vinsæla.
„Lagið var samið í þeim tilgangi að það ætti að
vera sumarsmellur. Og það virðist hafa gengið upp,“
segir Ingó og viðurkennir fúslega samhljóm með
laginu og „Kokomo“ Beach Boys. „Ég á einhver
fleiri lög og kannski tökum við þau ef það verður
eftirspurn. Ég útiloka ekki plötu. Við lítum þó fyrst
og fremst á okkur sem skemmtikrafta frekar en
listamenn.“
Lagið vinsæla hefur vakið óvenjuhörð viðbrögð í
„bloggheimum“. Meðal annars hefur verið sagt að
það sé „tónlist hryðjuverka sem fær mann til þess
að gráta vegna tónmengunarinnar“.
„Þetta særir mig ekki neitt,“ segir Ingó kokhraust-
ur. „Á meðan það eru tíu þúsund fjórtán ára stelpur
sem fíla lagið er mér nú nokk sama þótt það séu
nokkrir fúlir bloggarar að drulla yfir það.“
Ingó hefur sungið með sveitinni í þrjú ár. „Þetta
hefur verið dálítið hark og við erum þreyttir á að
spila fyrir kannski fjörutíu manns á einhverjum
pöbb. Nú látum við giggin bara koma til okkar
frekar en að við séum að eltast við þau. Tveir okkar
eru komnir með börn og sjálfur er ég á kantinum
með Selfossliðinu í fótbolta. Það gengur fyrir enda
er liðið komið í fyrstu deild. Það segir sig sjálft að
maður er ekkert allt of vel upplagður að spila á
sunnudegi ef maður hefur verið að syngja á balli til
klukkan fimm nóttina áður.“ - glh
Syng ekki fyrir fúla bloggara
SKEMMTIKRAFTAR, EKKI LISTAMENN Hljómsveitin Veðurguð-
irnir þekkir takmörk sín. Ingó söngvari segir að sér sé sama
þótt fúlir bloggarar drulli yfir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
„Þeir tóku sig vel út í sjónvarpinu
og okkur vantaði alvöru karlmenn
með harðgert útlit. Þannig að við
sáum okkur leik á borði og báðum
þá um að taka þátt í þessu með
okkur,“ segir Árni Ólafur Ásgeirs-
son, leikstjóri kvikmyndarinnar
Brim. Segja má að Árni hafi komið
í veg fyrir frekari mótmæli vöru-
bílstjóra á laugardaginn þegar hann
fékk nokkra vörubílstjóra til að
leika í erfisdrykkjusenu í kvik-
myndinni. Fjölmiðlar hafa verið
uppfullir af fréttum um mótmæli
vörubílstjóra undanfarið og ekki
síst í síðustu viku þegar upp úr sauð
milli þeirra og lögreglunnar.
Tökur á atriðinu fóru fram í
félagsheimili Stangveiðifélags
Reykjavíkur og mættu sex vörubíl-
stjórar til leiks. Höfðu þeir lítið
fyrir því að bregða sér í líki sjó-
manna sem syrgja fallinn félaga. Á
meðal þeirra sem koma við sögu í
kvikmyndinni eru Sturla Jónsson,
helsti forsprakki vörubílstjóranna,
og Ágúst Fylkisson, sem sá rautt
við Kirkjusand eins og frægt er
orðið. Árni Ólafur var himinlifandi
með frammistöðu vörubílstjóranna
og sagði þá hafa staðið sig með
stakri prýði en alls tóku þrjátíu
manns þátt í erfisdrykkjunni auk
leikara.
Ágúst Fylkisson var ánægður
með framlag sitt til íslenskrar kvik-
myndagerðar og ekkert síður með
kökurnar sem bornar voru á borð
fyrir þá í hinni tilbúnu erfis-
drykkju. „Við erum notaðir í ýmis-
legt,“ segir Ágúst en eins og kom
fram í Fréttablaðinu fyrir skömmu
þá lék Sturla og trukkur hans einnig
í N1-auglýsingunni. Ágúst sagði
það hafa verið kærkomið að geta
kastað mæðinni eftir átök undan-
farinna daga þar sem mikið hefur
gengið á. „Þetta kryddar aðeins til-
veruna hjá okkur,“ bætir Ágúst við
en hann segist hafa fundið fyrir
miklum stuðningi meðal leikara og
aðstandenda myndarinnar. „Allt
þjóðfélagið er á hreyfingu og þarna
voru málin krufin til mergjar,“
segir Ágúst. freyrgigja@frettabladid.is
ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON: VANTAÐI HARÐA NAGLA Í MYNDINA
Sturla og félagar í bíómynd
ÁGÚST Í GÓÐUM HÓPI Ágúst Fylkisson, í bakgrunni í gulri skyrtu, gæðir sér á ljúffengum kræsingum á meðan stórleikararnir Ólaf-
ur Darri, Ólafur Egill og Ingvar E. stilla sér upp fyrir myndatöku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STÓÐU SIG MEÐ STAKRI PRÝÐI Árni
Ólafur var ánægður með frammistöðu
vörubílstjóranna í erfisdrykkjunni. Hér
situr hann á milli Þóris Snæs framleið-
anda og Gísla Arnar Garðarssonar.
SAMAN
Á NÝ
Sigurjón Sighvats-
son og Madonna
snúa bökum saman
á ný en fyrirtækið
Catapult mun selja
og markaðssetja
frumraun popp-
drottningarinnar í
leikstjórastólnum.
Jón Ársæll hafði boðað að næsta
viðfang hans í Sjálfstæðu fólki yrði
Bjarni Haukur Þórsson grínari en
í ljósi síðustu atburða hefur hann
nú vent sínu kvæði í kross. Bylt-
ingarleiðtoginn og vörubílstjórinn
Sturla Jónsson verður til umfjöll-
unar í næsta þætti en Jón Ársæll
ætlar meðal annars að forvitnast
um þá tíma þegar Sturla
var andsetinn, varð fyrir
ærslatruflunum eða
poltergeist-fyrirbærum
sem helst hafa verið
rannsökuð af dular-
sálfræðingum
en nú Jóni.
Ari Matthíasson, framkvæmda-
stjóri SÁÁ, þykir hafa rifið upp
félagslíf samtakanna með miklum
glæsibrag. Þannig safnast skjól-
stæðingar samtakanna oft saman
við Efstaleiti til að horfa á fótbolta
þegar stórleikir eru á dagskrá og
er þá horft á leikina á stórum skjá.
Svo góður rómur hefur verið gerður
að þessum samverustundum að
komið hefur til tals að stofna fót-
boltalið SÁÁ. Ari er mikill fótbolta-
áhugamaður, er í stjórn
KR-sport en sennilega
er Ari þekktastur úr
auglýsingunni góðu
um dagdraumamann-
inn sem lætur sig
dreyma um
frama með
íslenska
landslið-
inu.
Fræg auglýsing Símans sem byggð
er á síðustu kvöldmáltíðinni fær
sérstaka umfjöllun í tímaritinu
Shots, sem þekkt er sem eins
konar biblía auglýsingafólks. Þema
nýjasta tölublaðsins er Skandinavía
og er Símaauglýsingin sú eina frá
Íslandi sem fjallað er um. Fær hún
að sögn prýðisgóða
umsögn. Þetta ætti að
kæta höfundinn Jón
Gnarr, en auglýsingin
var mikið gagnrýnd
þegar hún var frum-
sýnd á Íslandi í
fyrra.
- jbg/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
MARKAÐURINN
á www.visir
alla daga
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 317 þúsund krónur.
2 Murr.
3 Jón Heiðar Gunnarsson.