Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 18
[ ] Hjá Mjölni er hægt að æfa margt sem tengist bardagalistum. En þar er einnig að finna Combat Conditioning, sem er námskeið fyrir alla sem vilja ná hámarksárangri í líkamsþjálfun. „Combat Conditioning er námskeið fyrir alla sem vilja ná hámarksárangri í alhliða líkamsþjálfun. Æfingarnar eru mjög fjölbreyttar, alltaf er vel tekið á og fjölmargir hafa sýnt hreint ótrúlegan árangur á stuttum tíma,“ segir Arnar Freyr Vigfússon yfir- þjálfari, sem er einn af nokkrum sem reka íþrótta- félagið Mjölni. Hann hefur nú í eitt ár verið umsjónar maður líkamsþjálfunarinnar Combat Conditioning sem hefur vakið athygli og notið mik- illa vinsælda. „Þetta er hugsað fyrir alla og nýtist í raun öllum sem stunda íþróttir af krafti og vilja bæta vöðva- massann, sprengjukraftinn, vöðvaþol og úthald. Við settum þetta námskeið á laggirnar fyrir rúmu ári. Þetta fór hægt af stað í byrjun en núna hefur orðið mikil aukning og gengur mjög vel.“ Arnar Freyr segir að Combat Conditioning sé ekki bara fyrir stráka því margar stelpur æfi líka af krafti. „Flestir ef ekki allir sem hafa stundað Combat Conditioning hafa sýnt ótrúlegan árangur og hann má sjá strax á fyrsta mánuði.“ Stemningin í salnum er mikil þar sem tónlist ómar og þjálfararnir hvetja iðkendur áfram. „Hjá okkur eru einstakling- ar sem hafa misst nokkra sentímetra í mitti, stækkað vöðva og minnkað í fituprósentu, allt á einum mánuði. Margir náðu þessum árangri án þess að breyta um mataræði og þess háttar. Þetta segir allt sem segja þarf um hversu vel Combat Conditioning virkar,“ segir Arnar Freyr. Hægt er að mæta í tíma alla virka morgna og kvöld og því ætti hver og einn að finna tíma sem hentar vel. Frekari upplýsingar um Combat Condi- tioning er að finna á heimasíðunni www.mjolnir.is. mikael@frettabladid.is Þjálfun sem virkar Það er fátt annað hægt en að taka virkilega vel á því í Combat Conditioning-tímunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Útihlaup eru tilvalin líkamsrækt. Litlu þarf að kosta til og einfaldast að hlaupa bara út um dyrnar heima hjá sér og taka einn hring í hverfinu. Original Arctic Root Ein vinsælasta lækningajurt heims Original Arctic Root öðru nafni Burnirót er ein vinsælasta lækningajurtin í heiminum í dag. Klínískar rannsóknir hafa leitt í ljós að hún eflir einbeitingu, úthald og vinnur gegn streitu og álagi. Vinnur gegn streitu og álagi Original Arctic Root er fljótverkandi og þeir sem nota hana finna jákvæða breytingu á einbeitingu og úthaldi á skömmum tíma. Original Arctic Root hefur svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi og nýtur nú mikilla vinsælda. Fæst í apótekum og heilsubúðum. Heilsuvara ársins í Svíþjóð 2003, 2004 og 2005 Borðaðu þig granna(n) Nánari upplýsingar Sími 865-8407 www.vigtarradgjafarnir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.