Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 29. apríl 2008 3 GÓÐ RÁÐ fyrir þig og umhverfið Meirihluti kvenna gerir sér ekki grein fyrir því að brjósta- gjöf geti dregið úr hættu á sjúkdómum. Í nýlegri rannsókn á vegum Alþjóða krabbameinsrannsóknarstofnunar- innar kemur fram að 75 prósent kvenna hafa ekki vitneskju um að brjóstagjöf geti dregið úr líkum á brjóstakrabbameini. Svipað hlut- fall veit ekki að börn sem hafa verið á brjósti eiga síður á hættu að glíma við offitu síðar á ævinni. Þessar niðurstöður eru á skjön við æ fleiri rannsóknir sem styðja ágæti brjóstagjafar í baráttunni við ofangreinda sjúkdóma. Alþjóða krabbameinsrannsóknarstofnunin hyggst bregðast við með fræðslu- átaki. - ve Dregur úr hættu Kostir brjóstagjafar eru margir. Stórbrjósta konum sem þjást af bakverkjum er ráðlagt að fara í brjóstahaldaramátun áður en þær taka ákvörðun um að fara í brjóstaminnkun. Í síðustu viku bauð fyrirtækið Bravissimo, sem sérhæfir sig í framleiðslu brjóstahaldara fyrir stórbrjósta konur, 250 konum sem starfa á Royal Free-spítalanum í London brjóstahaldaramátun. Í ljós kom að hjá flestum dró úr bakverkjum við að klæðast brjóstahaldara í réttri stærð, en flestar konur sem fara í brjósta- minnkun segja bakverki megin- ástæðuna. Skýringuna er oft að finna í röngum brjóstahöldum en konur virðast ofmeta ummálið og van- meta skálastærðina, sem gerir það að verkum að allur þunginn færist á axlirnar í stað þess að brjósta- haldið styðji við sjálf brjóstin. Framvegis mun öllum konum sem vísað er á spítalann til að kanna möguleika á brjóstaminnk- un verða boðið í brjóstahaldara- mátun hjá sérfræðingi. - ve Rétt stærð nauðsynleg Konur sem ekki ganga í réttri stærð af brjóstahaldara eru líklegri til þess að þjást af bakverkjum. Það getur verið erfitt fyrir ung börn að fara á sjúkrahús eða heilsuverndarstöðvar. Með nokkrum aðferðum er hægt að undirbúa barnið fyrir þessar heimsóknir. Áður en lagt er af stað skal útskýrt fyrir barninu hvað kom fyrir, hvað hugsanlega gæti verið að og að barnið þurfi læknis- hjálp. Séu börnin mjög ung er gott að nota bækur, myndir eða sögur til þess að útskýra aðstæðurnar. Leyfa ætti barninu að hafa hlut með sér að heiman, til dæmis bók, mynd, leikfang eða tónlist, allt til að láta barninu líða betur. Gott er að lesa sögu fyrir barnið um ferð á spítalann. Á spítalanum eða hjá sjálfum lækninum er gott að reyna að dreifa huga barnsins með því að syngja fyrir eða spjalla við það. Gott er líka að hlusta saman á tónlist eða lesa í bók. - mmr Spítalaferðin undirbúin Sniðugt getur verið að leyfa börnunum að hafa með sér bangsa á sjúkrahúsið. Garðurinn – Leikvöllur Börn sem leika sér úti eru að jafnaði hraustari en þau sem hanga mikið inni við. Hreint loft og átök við náttúruleg efni eru uppbyggjandi fyrir alla, jafnt börn sem fullorðna. Ef aðstaða er til að koma fyrir sandkassa er það þess virði því sandurinn er eins og leir fyrir hugmyndaflug barnsins. Úr sandi má allt gera og ímyndunaraflið fær algerlega lausan tauminn. Það þarf ekki meira en svalir til að koma fyrir litlum sandkassa. Ef garðskiki er fyrir hendi er róla, kofi eða rennibraut góð viðbót því börn una sér hvergi betur en þar sem þau hafa öryggi og frelsi til að skapa sér sinn eigin heim og hreyfa sig. Mikilvægt er þó að leiktækin fylgi þroska barnsins sem best og öryggi sé alltaf sett á oddinn. Leiktæki úr þykku plasti geta ekki talist umhverfisvæn og brotna seint eða aldrei niður. Viður inn stendur aftur á móti alltaf fyrir sínu og er auk þess endurvinnanlegt efni. Þegar sandkassinn eða kofinn hafa þjónað tilgangi sínum má alltaf gera eitthvað annað úr þeim. www. natturan.is Náttúran.is – vefur með umhverfisvitund „30.000 blaðberar leita sér að húsnæði“ segja útgefendur Fréttablaðsins Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.