Fréttablaðið - 29.04.2008, Síða 8
8 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
DÓMSMÁL Sjö ára fangelsisdómur
yfir Birgi Páli Marteinssyni, sem
hann hlaut í Færeyjum, stendur.
Birgir ákvað á föstudag að áfrýja
ekki og eftir að frestur rann út á
miðnætti þann dag varð ljóst að
saksóknari áfrýjaði ekki heldur.
Linda Hasselberg saksóknari
bíður nú eftir leiðbeiningum frá
dönskum yfirvöldum um það hvar
Birgir situr dóminn af sér.
Hendrik Tausen, afi Birgis Páls,
segir að honum hafi óbeint verið
hótað af Lindu Hasselberg til að
falla frá áfrýjun. Annars yrði séð
til þess að hann yrði fluttur í
danskt fangelsi þar sem menn
kalla ekki allt ömmu sína. Hendrik
segir að fjölskylda Birgis hafi ótt-
ast að slík reynsla gæti eyðilagt
hann fyrir lífstíð og því hafi verið
ákveðið að áfrýja ekki. Fjölskyld-
an reyndi um helgina án árangurs
að fá uppgefið hvort saksóknari
áfrýjaði.
Venjan er sú í Færeyjum að sé
dómur lengri en tíu til tólf mánuð-
ir sitji fangar hann af sér í Kaup-
mannahöfn. Ljóst er að Birgir Páll
óskar eftir að sitja dóminn af sér
á Íslandi. Linda segir að það ráðist
á næstu dögum hve langan tíma
það ferli tekur. Birgir gæti þurft
að sitja inni í Danmörku á meðan
það er í gangi.
„Við höfum ekki eiginlegt fang-
elsi hér í Færeyjum þannig að ef
þetta ferli tekur langan tíma þarf
hann að sitja inni í Danmörku
þangað til því lýkur,“ segir Linda.
„Við munum taka tillit til ýmissa
þátta við þá ákvörðun; vilja
íslenskra yfirvalda og mannlegu
hliðarinnar svo eitthvað sé
nefnt.“
Hendrik segir að upphaflega
hafi verið mjög erfitt að ná til
Birgis og sakar yfirvöld um stífni.
Einungis hafi verið hægt að ná í
hann í hálftíma á viku. „Eftir að
Eiður Guðnason, ræðismaður
Íslands í Færeyjum, kom að mál-
inu tókst honum að laga þetta
mikið. Við fjölskyldan kunnum
honum bestu þakkir fyrir og hann
hefur staðið sig mjög vel,“ segir
Hendrik.
Eiður Guðnason staðfestir orð
Hendriks um stífni yfirvalda.
„Danir eru með þennan málaflokk
og það hefur ekki alltaf verið auð-
velt að eiga við þessi yfirvöld.
Mér fannst til dæmis mjög sér-
kennilegt þegar ég frétti að á
mánudegi, á meðan áfrýjunar-
fresturinn var enn ekki úti, hafði
fjölskyldan ekki heyrt í honum
síðan á fimmtudeginum þar áður,“
segir Eiður. kolbeinn@frettabladid.is
Ekki áfrýjað í máli
Birgis Páls í Þórshöfn
Hvorki Birgir Páll Marteinsson né saksóknari nýttu sér rétt sinn til áfrýjunar í
fíkniefnamálinu í Færeyjum. Fjölskylda Birgis sakar yfirvöld um stífni. Ákvörð-
unar um hvar Birgir Páll afplánar dóminn er að vænta á næstu dögum.
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
04
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur
– fyrir sumarbústaðinn og veiðihúsið
Bjarni Ómar Ragnarsson,
verslunarstjóri hjá RV
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
05
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Fagleg og persónuleg
þjónusta
Sjúkraliði RV, Jóhanna Runólfsdóttir, leiðbeinir skjólstæðingum TR,
einstaklingum með þvagleka og aðstandendum þeirra og veitir
ráðgjöf varðandi hjúkrunarvörur.
Sími: 520 6673
johanna@rv.is
www.rv.is
1Ýmis úrræði
og ráðgjöf
vegna þvagl
eka
Við höfum gefið út vandaðan TENA bækling- um úrræði og ráðgjöf vegna þvagleka. Hafðu samband og við sendum þér eintak.
EIÐUR GUÐNASONLINDA HASSELBERG HENDRIK TAUSEN
1 Hvað kostar langt leiddur
fíkill samfélagið að meðaltali
á mánuði samkvæmt nýrri
kostnaðargreiningu greiningar-
stofnunarinnar Ísmats?
2 Hvað heitir nýstofnað
fyrirtæki sem hyggst framleiða
kattafóður á Súðavík?
3 Hvað heitir handknattleiks-
maður í Stjörnunni sem varð
fyrir alvarlegum höfuðmeiðslum
í fyrra og berst nú fyrir því að fá
að nota höfuðhlíf við leiki?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30
STJÓRNMÁL Matti Vanhanen, forsætisráðherra
Finnlands, er í opinberri heimsókn á Íslandi.
Vanhanen átti fund með Geir H. Haarde
forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum
síðdegis í gær og í gærkvöld snæddi hann
kvöldverð með fulltrúum Verslunarráðs.
Hugsanlega aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu bar ekki á góma á fundinum en
Vanhanen benti á að það mál gæti komið upp í
kvöldverðinum og auðvitað hlustaði hann af
gaumgæfni og áhuga á umræðuna hér á landi.
Geir Haarde sagði eftir fundinn með finnska
forsætisráðherranum að þeir hefðu þekkst í
tvö ár, hist reglulega og sennilega myndu þeir
hittast fimm sinnum á þessu ári. Sem betur fer
væru engin sérstök vandamál milli landanna
en viðskipti, ferðamennska og fjárfestingar
færu vaxandi milli þjóðanna tveggja.
„Við ræddum einnig stöðu efnahagsmála á
alþjóðavettvangi, hækkandi olíuverð og
matarverð, þróunina í Evrópusambandinu og
sambandið við Rússa ásamt öðru,“ sagði hann
og útskýrði að þjóðirnar byggju báðar við það
að Rússar flygju inn í lofthelgi þeirra öðru
hvoru, eða nærri henni, og þeir hefðu borið
saman bækur sínar um það. Íslendingar hefðu
nokkrar áhyggjur af þessu flugi.
„Ég útskýrði að ég teldi að ekki yrði mikil
breyting í Rússlandi á næstunni þó að nýr
forseti og forsætisráðherra tækju við,“ sagði
Matti Vanhanen. - ghs
Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, er í opinberri heimsókn á Íslandi:
Hlustar af áhuga á ESB-umræðuna
Í OPINBERRI HEIMSÓKN Matti Vanhanen, forsætisráð-
herra Finnlands, og Geir H. Haarde, forsætisráðherra
Íslands, í Ráðherrabústaðnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÉLAGSMÁL Eftir hækkun húsa-
leigubóta og sérstakra húsaleigu-
bóta getur fólk fengið allt að sjötíu
þúsund krónur í leigubætur á
mánuði.
Ríki og sveitarfélög hafa náð
saman um hækkanir bótanna, sem
staðið hafa í stað frá árinu 2000.
Ríkissjóður greiðir sextíu pró-
sent af heildarkostnaði vegna
hækkunar húsaleigubóta og sér-
stakra húsaleigubóta en sveitar-
félögin greiða fjörutíu prósent.
Áætlaður árlegur viðbótarkostn-
aður er um 620 milljónir króna
vegna húsaleigubóta og um 100
milljónir vegna sérstakra húsa-
leigubóta, að því er fram kemur í
tilkynningu félagsmálaráðuneyt-
isins.
Auk þess að hækka bæturnar
sjálfar munu sveitarfélög beita
sér fyrir úthlutun lóða á hagstæð-
um kjörum til byggingar leiguhús-
næðis. Þá verður skipaður starfs-
hópur til að vinna að stefnumótun
í húsnæðismálum. Á hann að skil-
greina skyldur hins opinbera í
málaflokknum og endurskoða
verka- og kostnaðarskiptingu ríkis
og sveitarfélaga. - bþs
FJÖLBÝLI Sveitarfélögin ætla að beita sér fyrir úthlutun lóða til byggingar leiguhúsnæðis.
BREYTING FJÁRHÆÐA
Áður Eftir Breyting
Grunnur 8.000 13.500 5.500
Barn 1 7.000 14.000 7.000
Barn 2 6.000 8.500 2.500
Barn 3 5.500 5.500 0
Viðbót 4.500 4.500 0
Hámark 31.000 46.000 15.000
Ríki og sveitarfélög koma til móts við leigjendur:
Hækka húsaleigubætur
VEISTU SVARIÐ?