Fréttablaðið - 29.04.2008, Side 30
29. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR10 ● fréttablaðið ● kópavogsdagar
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
og Hulda Björk Garðarsdóttir
munu ásamt Óperukórnum
flytja kafla úr óperum á
bak við Listasafn Kópavogs
– Gerðarsafn hinn 3. maí.
Óperukórinn mun koma fram
á Kópavogsdögum undir stjórn
Garðars Cortes ásamt einsöngv-
urunum Jóhanni Friðgeiri Valdi-
marssyni og Huldu Björk
Garðarsdóttur. Þau munu flytja
þekkta kafla úr óperum á tún-
inu bak við Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn 3. maí klukkan 15.30.
„Við gerum þetta til að sýna
samstöðu með þeim hugmyndum
sem fram hafa komið um að reisa
óperuhús á þessum sama stað,“
segir Ingibjörg Ólafsdóttir, for-
maður stjórnar Óperukórsins.
Nýlega lauk samkeppni um
hönnun óperuhúss í Kópavogi.
Dómnefndin ályktaði að engin
þriggja tillagna fullnægði mark-
miðum samkeppninnar nógu vel
til að unnt yrði að byggja á þeim
að óbreyttu. Tveimur keppend-
um var því gefið tækifæri til að
halda áfram í framhaldskeppni
sm stendur nú sem hæst.
„Þetta eru metnaðarfullar hug-
myndir og við viljum sýna stuðn-
ing okkar við þær með því að
flytja óperutónleika nú þegar á
þeim stað sem húsið á að standa,“
segir Ingibjörg. „Kórinn átti stór-
an þátt í að ryðja braut íslenskrar
óperustarfsemi í upphafi og þetta
framtak er eðlilegt framhald af
því. Við vonumst bara eftir góðu
veðri.“
Óperusöngvararnir Jóhann
Friðgeir Valdimarsson tenór og
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran
hugsuðu sig heldur ekki tvisvar
um þegar þau voru beðin um að
taka þátt í tónleikunum.
Hugmyndin að byggingu óperu-
húss í Kópavogi kom fyrst fram
í grein sem Gunnar Ingi Birgis-
son bæjarstjóri skrifaði í bæjar-
málablaðið Voga í júní 2005. Í
desember síðastliðnum samþykkti
bæjarstjórn Kópavogs viljayfir-
lýsingu um byggingu óperuhúss-
ins. Er markmiðið að búa óperunni
á Íslandi heimili
við hæfi.
Óperuverk undir
berum himni
Óperukórinn syngur ásamt einsöngvurum við undirleik Julians Hewlett á túninu við
Borgarholtsbraut þar sem gert er ráð fyrir óperuhúsi árið 2011.
Hulda
Björk
Garðars-
dóttir var
ekki lengi
að hugsa sig
um þegar hún
var beðin um að
koma fram.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sumardekk – hjólbarðaþjónusta
Sumar- og heilsársdekk fyrir allar gerðir fólksbíla og jeppa.
Hagstætt verð og traust þjónusta.
Reykjavík Akureyri
Tangarhöfða 15 : 587 5810 Réttarhvammi 1 : 464 7900
Vagnhöfða 6 : 577 3080
www.alorka.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
07
5
3
Við tökum vel á móti þér
á þjónustustöðvum okkar!
Umboðsaðili fyrir Bridgestone hjólbarða
Auglýsingasími
– Mest lesið
Skólahljómsveit Kópavogs og
Blásarasveit Tónlistarskóla Ár-
nesinga leiða saman hesta sína á
Kópavogsdögum 4. maí. Tónleik-
arnir verða í Salnum og hefjast
klukkan 13.
Skólahljómsveit Kópavogs var
stofnuð á haustmánuðum 1966.
Afmælisdagur sveitarinnar er þó
ávallt miðaður við fyrstu tónleik-
ana sem haldnir voru við Kársnes-
skóla 22. febrúar 1967. Stofnandi
sveitarinnar var Björn Á. Guð-
jónsson trompetleikari og stjórn-
aði hann hljómsveitinni óslitið og
af miklum dugnaði fram til ársins
1993 þegar Össur Geirsson tók við
stjórninni.
Um 150 hljóðfæraleikarar eru
í Skólahljómsveit Kópavogs og
er þeim skipt í þrjár sveitir eftir
aldri og getu, A, B og C. Almennt
eru krakkarnir tvö ár í hverri
sveit, en geta verið lengur eða
skemur eftir atvikum.
Hljómsveitirnar gegna veiga-
miklu hlutverki í bæjarsam-
félaginu og koma þær oft fram á
hátíðum og athöfnum í bænum.
Haldnir eru tvennir stórir
tónleikar á hverjum vetri, vor og
haust. Að jafnaði kemur Skóla-
hljómsveit Kópavogs fram um
níutíu sinnum á ári hverju.
Lúðrahljómur í Salnum
Skólahljómsveit Kópavogs og Blásarasveit Tónlistarskóla Árnesinga leiða saman
hesta sína á Kópavogsdögum.