Fréttablaðið - 29.04.2008, Qupperneq 36
● fréttablaðið ● kópavogsdagar 29. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR16
Hús með sögu og sál
Hrafn Andrés Harðarson við Gvendarbrunn sem var á sínum tíma vatnsból fyrir
Kópavogshælið og Bankasel.
Á Kópavogsdögum verður
efnt til húsagöngu um Vestur-
bæ Kópavogs undir leiðsögn
Hrafns Andrésar Harðarsonar,
yfirbókavarðar í Bókasafni
Kópavogs og bæjarbúa til
lengri tíma.
Hrafn Andrés Harðarson mun á
Kópavogsdögum leiða fólk um
valdar brautir og stíga gamla
bæjar ins eða svokallað tungu-
svæði, sem markast af Hafnar-
fjarðarveginum, Borgarholts-
braut og Urðarbraut. Göngurnar
verða tvær og fer önnur fram
6. maí klukkan 17 og hin 8. maí
klukkan 20.
„Ég hef gert þetta nokkrum
sinnum áður og oft slást gamlir
Kópavogsbúar með í för ásamt
þeim sem hafa áhuga. Ég er fæddur
og uppalinn í Vesturbænum og
man tímana tvenna en bæti síðan
við fróðleik og sögum frá öðrum
og eru þátttakendur sérstaklega
hvattir til að leggja sitt til mál-
anna,“ segir Hrafn.
Í fyrra gaf Bókasafn Kópavogs
út Minningabók Kópavogsbúa, en
í henni má finna sögur fólks af því
þegar bærinn var að byggjast upp
eftir stríð og styðst Hrafn einnig
við þær.
„Ég geng með fólki um nokkrar
götur, bendi á hús og segi frá
þeim. Ég tala um hverjir bjuggu í
húsunum, hvaða atburðir áttu sér
þar stað og hvernig húsin tengjast
sögu bæjarins,“ segir Hrafn.
Hann bendir fólki á hvar bæjar-
skrifstofurnar voru í gamla daga
og fjallar til dæmis um Bankasel en
það hús lét Landsbankinn byggja á
stríðsárunum til að vernda verð-
mæti og skjöl ef til loftárása á
Reykjavík skyldi koma.
„Síðan bendi ég á húsið þar sem
Jóhannes í Bónus ólst upp svo
eitthvað sé nefnt en hann var ná-
granni minn í æsku. Ég segi bæði
frá ríku og fátæku fólki, skrýtnu
og skemmtilegu,“ segir Hrafn,
sem endar yfirleitt gönguna við
gamla Kópavogshælið.
„Þetta er um eins til tveggja
tíma ganga þar sem fólk kynnist
byggingum og fyrirbærum sem
gera Kópavog einstakan og ólíkan
öllum öðrum byggðum bólum á Ís-
landi.“ - ve
Hér er verið að gera upp gamalt hús en þar bjó Guðmundur Guðmundsson sem
Gvendarbrunnur, sem stendur á lóðinni, er kenndur við. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR