Fréttablaðið - 29.04.2008, Page 38
● fréttablaðið ● kópavogsdagar 29. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR18
Joaquín Páll Palomares heldur útskriftartónleika
sína í Salnum 3. maí og spilar þar verk eftir Bach,
Brahms, Poulenc og Saint-Saëns, við píanóundir-
leik Richards Simm.
Joaquín Páll Palomares er einn efnilegasti fiðluleik-
ari landsins. Ungur dró hann fyrst boga yfir strengi
hins fagra og strembna hljóðfæris og hefur síðan
spilað sig upp metorðastigann og í hjörtu áheyrenda
á Íslandi, Spáni og víðar. „Fiðlan hefur fylgt mér frá
blautu barnsbeini, því hún er samofin lífi fjölskyld-
unnar. Pabbi og mamma eru bæði fiðluleikarar og það
var þeirra ákvörðun að setja mig barnungan í fiðlu-
nám; sem betur fer,“ segir Joaquín, sem byrjaði að
spila á fiðlu aðeins sex ára þegar móðir hans Unnur
Páls dóttir fiðluleikari hóf að kenna syninum heima.
„Ég held að allir krakkar fari í gegnum skeið þar
sem þau hætta að nenna tímafrekum æfingum. Ég fór
í gegnum það líka, ákvað að hætta ellefu ára og ætlaði
aldrei að byrja aftur. Þegar ég var fimmtán ára gerð-
ist mamma, sem auðvitað þekkir mig allra best, svo
sniðug að bjóða mér að spila með gömlum félögum í
strengjasveit Tónlistarskóla Kópavogs. Mér þótti það
svo gaman að ég ákvað að skrá mig í tónlistarskóla,
mest til þess að leika mér, en þá fór mér að þykja
virkilega gaman að fiðluleiknum,“ segir Páll og fer
fögrum orðum um tónlistaruppeldi móður sinnar, og
seinna þeirra Margrétar Kristjánsdóttur í Tónlistar-
skóla Kópavogs og Auðar Hafsteinsdóttur við tónlist-
ardeild Listaháskóla Íslands.
„Mamma á hrós skilið að hafa nennt að hanga yfir
mér þetta lengi, en þegar ég var lítill fór ég að gráta
þegar ég átti að spila á fiðlu. Mamma hélt að mér nauð-
synlegum sjálfsaga, kenndi mér grunntækni fiðluleiks,
sem skiptir öllu máli, og fór með mig í gegnum rosa-
legt magn efnis sem gerir að verkum að ég er fljót-
ur að læra ný verk og fínn í að lesa nótur. Það allt á ég
henni að þakka,“ segir Páll brosmildur þar sem hann
æfir stíft fyrir útskrift sína í maí.
„Innan hljóðfærafjölskyldunnar er fiðlan ein sú
erfiðasta viðureignar. Minn mesti innblástur hingað
til er danski fiðlusnillingurinn Nicolaj Znaider. Þegar
ég heyrði hann fyrst spila af diski var ég í bílnum og
þurfti að stoppa. Ég gat ekki haldið áfram akstri fyrr
en ég hafði hlustað á diskinn til enda. Ári seinna fór ég
á námskeið til Nicolaj í Danmörku og það var ótrúleg
lífsreynsla,“ segir Páll og bætir við að áhrifa Znaiders
megi enn gæta í fiðluleik sínum.
„Ég lærði hjá honum tæknísk atriði sem enn fylgja
mér, en útkoma fiðluleiks byggist bæði á tækni og per-
sónulegri tjáningu,“ segir Páll sem leikur á listasmíð
þýsks fiðlusmiðs.
„Það hefur áhrif á tónlistarsmekk barna að læra
snemma á klassíkt hljóðfæri. Maður verður umburð-
arlyndari gagnvart klassískri tónlist og hlustar meira
en jafnaldrarnir. Hins vegar hlusta ég á flestallt sem
nær eyrum mínum og aðallega popptónlist á FM 95,7,“
segir Páll, sem útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands
síðastliðið vor og er fyrrverandi liðsmaður drengja-
landsliðs Íslands í knattspyrnu.
„Ég er miklu minna í fótbolta nú en áður, en spila
þegar ég hef tíma með þriðju deildar liðinu Ými úr
HK. Fótbolti var árum saman ofar í forgangsröðinni
en fiðlan, en þá spilaði ég með meistaraflokki HK. Á
endanum varð ég að velja og hafna,“ segir Páll, sem
valdi fiðluna og hyggur nú á framhaldsnám í fiðluleik
í Þýskalandi.
„Framtíðin er óskrifað blað og margt sem togar í
mig, en öðru fremur vil ég starfa sem fiðluleikari
og gera eitthvað virkilega flott. Fiðluleikarar eiga
sameiginlegt að vera einbeittir og ákveðnir, enda
nauðsynlegt í mikilli samkeppni. Þeir eru svo líka vel
þekktir fyrir að vera prímadonnurnar í hljómsveit-
um,“ segir Páll og skellir upp úr þar sem hann skund-
ar til móts við bjarta framtíð. - þlg
Grét yfir fiðlunni í fyrstu
Fiðluleikarinn Joaquín Páll Palomares útskrifast úr tónlistardeild Listaháskóla
Íslands í vor og heldur útskriftartónleika í Salnum 3. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Allt á gólfið á einum stað
Gólfefni-Teppaland sameinast Álfaborg
í stærri verslun að Skútuvogi 6