Fréttablaðið - 29.04.2008, Qupperneq 40
● fréttablaðið ● kópavogsdagar 29. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR20
Sigurbjörg Björgvinsdóttir forstöðukona. Þórhildur Gísladóttir gaf sér tíma til að líta upp frá handavinnunni þegar ljósmynd-
ara bar að garði.
Starfsemin er fjölbreytt og hér sitja konur við postulínsmálun. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Félagsheimilið Gjábakki í Kópavogi heldur upp á
fimmtán ára afmæli 9. maí.
Félagsheimili eldri borgara í Kópavogi, Gjábakki, var opnað
hinn 11. maí 1993. Á ári aldraðra 1999 var félagsheimilið
opnað öllum aldurshópum í viðleitni Kópavogsbæjar til að
rjúfa einsemd aldraðra.
„Kópavogur var fyrsta sveitarfélagið til að stíga það skref
að opna félagsheimilin fólki á öllum aldri,“ segir Sigurbjörg
Björgvinsdóttir, sem hefur veitt Gjábakka forstöðu frá upp-
hafi.
Sigurbjörg segir félagsheimilið starfa eftir Kópavogs-
módelinu svokallaða en það gengur út á að ýta undir sjálf-
stæði einstaklingsins.
„Við höfnum forsjárhyggju og ýtum undir frumkvæði,“
segir Sigurbjörg. „Í Kópavogsmódelinu er lögð áhersla á að
fólk sé sjálft við stjórnvölinn og taki sjálft ákvarðanir um
hvað sé á dagskránni hverju sinni. Ef einhvern langar til að
prjóna þá finnum við einhverja sem eru tilbúnir að setjast
niður með viðkomandi og prjóna. Nú, ef þá vantar leiðsögn
þá er ég þeim innan handar.“ Hún segir þetta fyrirkomu-
lag hafa gefist vel og félagsheimilin séu vel sótt en telja má
um fimm hundruð komur í félagsheimilin Gjábakka og Gull-
smára á viku.
„Með þessu móti fáum við líka miklu fjölbreyttara félags-
starf og í öðru lagi þá er hægt að gera mikið meira fyrir þá
peninga sem til eru. Þarna fá einstaklingar hlutverk og það
er hverjum manni nauðsynlegt.“
Eitt af markmiðum starfsins á Gjábakka er að koma á sam-
bandi milli kynslóða en nú er yfirstandandi verkefni milli
nemenda í öðrum bekk í Kópavogsskóla og eldri borgara.
„Við viljum flytja menninguna milli aldurshópa og eigum
í góðu samstarfi við skólana í bænum,“ segir Sigurbjörg.
„Krakkarnir koma til dæmis að spila boccia með eldra fólk-
inu. Svo koma þau á afmælinu og syngja fyrir okkur og fá
sér hressingu en við ætlum að bjóða gestum og gangandi upp
á kaffi og með því á afmælishátíðinni og hér verður vegleg
dagskrá í boði.“
Meðal dagskrárliða á afmælishátíðinni verður einsöngur
Guðrúnar Lóu Jónsdóttur. Eldri borgari mun skera fyrstu
sneiðina af veglegri afmælistertu og Gunnar Birgisson
bæjarstjóri flytur ávarp. Auk þess munu félagsmálastjóri
Kópavogs og formaður félags eldri borgara flytja ávörp.
Dagskráin hefst klukkan 14 föstudaginn 9. maí. - rat
Kræsingar í góðum félagsskap
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4