Fréttablaðið - 29.04.2008, Síða 52
20 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Þegar flett er upp á
orðinu „tuð; að tuða“
í alfræðiorðabók birt-
ist mynd af Íslend-
ingi sem situr í heit-
um potti, þenur
brjóstkassann í allt
of lítilli speedo-skýlu
og tuðar við næsta
mann. Hann getur
fundið að ýmsu í sínu þjóðfélagi, til
að mynda okrinu sem er skjalfest á
netinu.
Þegar of háu verðlagi hefur verið
gert skil í stuttri tuð-tölu fer dæmi-
gerði Íslendingurinn á flug enda er
hann þá kominn út í hina svokölluðu
„einkavinavæðingu“ og fjölskyldu-
væðingu dómstólanna. Hann hrósar
jafnvel Spaugstofunni fyrir söng-
atriði sitt sem honum fannst mátu-
legt skot á Dabba kóng og bætir því
við, hróðugur: „Ég ætla sko aldrei
að kjósa Sjálfstæðisflokkinn aftur.“
Hin tuðandi þjóð hefur verið ráð-
andi afl á Íslandi og fengið að
blómstra eins og mávar á reyk-
vískri tjörn á bloggsíðum netsins.
Hinum tuðandi almúga finnst fátt
jafn skemmtilegt og að lesa tuð ann-
arra bloggara og hossa þeim jafn-
vel í athugasemdakerfinu fyrir
tuðið þeirra. Og þannig hefur þetta
eiginlega verið síðan Jón Arason
var hálshöggvinn þegar hann neit-
aði að tuða bara yfir nýjum sið held-
ur kaus að mótmæla með kjafti og
klóm yfirgangi þýska munksins.
Og tuðurum finnst ótrúlegt að
einhverjum skuli detta það í hug að
hætta tuðinu og gera eitthvað í mál-
inu. Þannig var drengurinn sem
sagði við borgarstjórann að „hann
væri ekkert fuckings borgarstjóri“
útmálaður sem heimskingi og illa
máli farinn dólgur. Og vörubílstjórar
í dag eru dæmigerðir þursar sem
hlýða ekki valdstjórninni.
Þess vegna hlýtur hin verkfalls-
óða stétt kennara að hugsa sig
tvisvar um áður en hún krefst sann-
gjarnra launa. Því verkfall þeirra
lamar allt samfélagið og þeir sem
lama samfélagið fá einfaldlega að
kenna á gasinu góða. Og tuðarar fá
þá sitthvað fyrir sinn snúð enda
hafa þeir alltaf staðið í þeirri trú að
kennarar ættu bara að tuða yfir
laununum sínum en ekki kvarta á
opinberum vettvangi.
STUÐ MILLI STRÍÐA Hin tuðandi þjóð kemur út úr skápnum
FREYR GÍGJA GUNNARSSON DUSTAR RYKIÐ AF BYLTINGARANDANUM
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Takk fyrir
daginn! Við
skulum koma
okkur heim!
Já, það
verður gott
að koma
heim til
Kamillu og fá
sér tebolla!
Fá sér
hvað?
Fá sér bjór! Þú sagðir
te!
Ég meinti
bjór! Það
verður bjór!
Hún er komin
með tak á þér,
maður!
Nei, nei,
nei, nei!
Earl Grey? Mangó
og kanil!
Í hvaða tíma
ert þú?
Efnafræði.
Stofu 128,
þriðju hæð,
byggingu B.
Ég er í hraðferð í
ensku. Stofu 330, 4.
hæð, byggingu D.
Sjáumst í
hádeginu.
Ef við erum
ennþá í sama
tímabelti.
Veitingastaður í
anda mömmu
Passið ykkur þarna
inni, hún henti mér
út fyrir að borða
ekki grænmetið!
Hvað ert þú
að gera niðri á
strönd, Stína?
Ég veit það
ekki... Ég held
ég hafi villst.
Oh... maður
getur ekki villst.
Pól stjarnan er
alltaf á sínum stað!
Já.
En...
Ég bý ekki
þar.
Hvenær getur Lóa
farið að hlaupa
og leika við mig í
garðinum?
Ekki alveg
strax.
Fyrst þarf hún að læra
að sitja, svo þarf hún
að læra að skríða, svo
þarf hún að læra að
standa, svo að ganga...
Og svo fer
hún að
hlaupa?
Nei. Svo fer ég
að hlaupa.
– ódýrari valkostur
Vantar
þig
auka-
pening?
Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu
fólki til að bera út blöð milli 6 og 7 á
morgnana. Um er að ræða holla og hressandi
útiveru, annars vegar á virkum dögum og hins
vegar um helgar.
Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu
þig og fáðu borgað fyrir það.
Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild
Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt
að sækja um á www.posthusid.is
Pósthúsið er ungt og öflugt
dreifingarfyrirtæki á sviði
blaða- og vörudreifingar.
Hjá Pósthúsinu starfa um
sjöhundruð manns að
uppbyggingu á fjölbreyttum
og skemmtilegum vettvangi.
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA