Fréttablaðið - 24.05.2008, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 24. maí 2008
LÖGREGLUMÁL Litháískur karl mað-
ur, sem grunaður er um að hafa
tekið þátt í hrottalegri árás á
mann í Þverholti fyrir nokkrum
dögum, losnaði úr gæsluvarð-
haldi í gær. Annar karlmaður,
einnig frá Litháen, situr enn inni
vegna árásarinnar.
Maðurinn sem ráðist var á í
Þverholti höfuðkúpubrotnaði.
Hann var meðal annars barinn í
höfuðið með barefli. Hann er
einnig litháískur og er á þrítugs-
aldri.
Maðurinn, sem gæsluvarðhald
rann út á í gær, var handtekinn
skömmu eftir árásina. Nokkru
síðar var hinn maðurinn, sem
situr í gæsluvarðhaldi fram á
miðvikudag, handtekinn. Vitað er
að þessir tveir komu saman í bíl
á árásarstaðinn. - jss
Líkamsárásin í Þverholti:
Lögregla rann-
sakar tvo menn
DÓMSMÁL Íslenska ríkið hefur í
héraðsdómi verið sýknað af
skaðabótakröfu Gunnars Arnar
Kristjánssonar, fyrrverandi
forstjóra SÍF, vegna meðferðar
yfirvalda á máli sem hann
tengdist. Hann krafðist um 450
milljóna króna í bætur.
Gunnar var meðal annars
ákærður fyrir að hafa sem
endurskoðandi áritað reikninga
fyrir framkvæmdastjóra
Tryggingasjóðs lækna, sem dró
sér þannig 75 milljónir króna.
Gunnar var sýknaður í héraði en
Hæstiréttur vísaði málinu frá.
Ákveðið var að halda rannsókn
þess áfram, en henni síðar hætt.
Í dómnum segir að Gunnar hafi
ekki sýnt fram á að yfirvöld hafi
með þessu bakað sér bótaskyldu.
- sh
Fyrrum forstjóri SÍF tapar máli:
Fær ekki 450
milljóna bætur
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu handtók tvo
átján ára menn um klukkan fimm
í gærmorgun.
Höfðu mennirnir kallað eftir
sjúkrabíl þar sem annar þeirra
var skorinn á hendi. Kom í ljós að
þeir höfðu skemmt og brotist inn
í bíla við Dalsmára í Kópavogi og
maðurinn hlotið skurðinn við það
athæfi. Gert var að sárum
mannsins og hann svo vistaður
ásamt félaga sínum í fanga-
geymslum lögreglunnar. Menn-
irnir voru svo yfirheyrðir í gær,
þegar runnin var af þeim
áfengisvíman. - ovd
Óheppnir innbrotsþjófar:
Ölvaðir menn
í innbrotum
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Sími 534 3400
www.apple.is
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Kringlunni
103 Reykjavík
Dæmigerð þyngd í samanburði við MacBook Air
Fartölva . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2,50 kg
Tískutímarit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1,64 kg
Handtaska . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 2,37 kg
MacBook Air . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1,36 kg
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
MacBook Air – örþunn, fislétt, líka fyrir Windows
Þegar þú snertir nýju MacBook Air breytist allt sem þú taldir þig vita um fartölvur
og verður aldrei eins aftur. MacBook Air á þig um leið og þú sérð hana.
Létt, örþunn, öflug.
Fágun. Upplifun. Óviðjafnanleg.