Fréttablaðið - 24.05.2008, Síða 30

Fréttablaðið - 24.05.2008, Síða 30
30 24. maí 2008 LAUGARDAGUR R íkisstjórnin setti sér metnaðarfull markmið í stefnuyfirlýsingunni og ég sé ekki betur en að um áttatíu prósent mála sem þar eru tiltekin séu annað hvort frá eða í vinnslu,“ segir Geir H. Haarde, for- sætisráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, spurður um mat á efndum stjórnarsáttmálans. „Og ég held að það sé nú bærilegur árang- ur,“ bætir hann við. Geir telur að verulegur árangur hafi náðst við að bæta kjör aldr- aðra og öryrkja; samkomulagi frá 2006 hafi verið fylgt eftir með laga- setningu í desember og önnur frumvörp sem miði í sömu átt liggi fyrir þinginu. Hann nefnir líka frumvörp menntamálaráðherra um breytingar á skólakerfinu, skipu- lagsbreytingar á stjórnarráðinu og breytingar á þingsköpum. „Sturla Böðvarsson þingforseti beitti sér sérstaklega fyrir þeim breytingum og þær eru að skila prýðilegum árangri að því er mér sýnist í bætt- um vinnubrögðum Alþingis.“ Geir segir eitt ár ekki langan tíma í stjórnmálum þegar lagt er upp með fjögurra ára áætlun eins og stjórnarsáttmáli er. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að allt nái fram að ganga í einum hvelli.“ Ófyrirséður vandi Geir segir stjórnmálin þess eðlis að verkefnin séu ekki alltaf fyrirséð og bregðast þurfi við ýmsu sem beri óvænt að. Tvö slík veigamikil mál hafi komið upp á þessu eina ári. „Annars vegar voru það tillögur Hafrannsóknastofnunar um að skerða þorskkvóta. Ég tel að sjávarútvegsráðherrann með full- tingi ríkisstjórnarinnar hafi tekið þar ábyrga ákvörðun sem ekki var auðveld. Hins vegar voru það áhrifin að utan sem enginn gat séð fyrir. Láns- fjárkreppan í útlöndum segir til sín hér og erlendar verðhækkanir eru eins konar skattur á þjóðarbúið og virka í þá átt að skerða kjör lands- manna. Allt þetta höfum við verið að glíma við og efnahagsmálin hafa verið mjög fyrirferðarmikil frá áramótum.“ Tími sértækra lausna liðinn Margir hafa kallað eftir sterkari viðbrögðum og aðgerðum ríkis- stjórnarinnar vegna efnahags- vandans. Geir segir gagnrýnina byggða á misskilningi. „Sá mis- skilningur er uppi að ríkisstjórnin sé með nefið ofan í hvers manns koppi, ef svo má segja, eins og var hér áður fyrr. Ein aðalefnahagsráðstöfun ríkis- stjórnarinnar sem sat 1988 til 1991 var að niðurgreiða brytjað lamba- kjöt í sérstökum pakkningum og ráðherrarnir í þeirri stjórn létu mynda sig með slíkt kjöt. En þetta er liðin tíð. Nú er landinu stjórnað með almennari aðgerðum og við höfum beitt okkur fyrir margs kyns hlutum sem meðal annars eru til meðferðar í þinginu.“ Aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjarasamningum í febrúar og ráð- stafanir til að styrkja efnahagslegar varnir og viðbúnað landsins út á við séu dæmi um slíkar almennar aðgerðir. „Þau mál munu skýrast þegar þau eru frágengin,“ svarar hann spurður um aðgerðir í efna- hagsmálum. Rofar til Að sögn Geirs er helsta viðfangs- efni ríkisstjórnarinnar fram undan að komast á sléttan sjó í efnahags- málunum. Þar á hann bæði við vandann vegna lausafjár krepp- unnar erlendis og aðlögun íslensks efnahagslífs að breyttum aðstæð- um. „Ég held að það sé að rofa til á alþjóðlegum mörkuðum. Mér finnst margt benda til þess að ástandið gagnvart aðgangi að erlendu fjár- magni sé að verða betra en það var og þegar það vandamál er frá getum við einbeitt okkur að því að stuðla að jafnvægi í efnahagsmál- unum hér, náð niður verðbólgunni og komið á meiri stöðugleika.“ Geir segir að þar hjálpi til sveigjanleiki í hagkerfinu, það sé fljótt að aðlag- ast breyttum aðstæðum. Geir segir að minnkandi tekjur muni vissulega segja til sín við fjárlagagerð næsta árs en á móti komi að ríkissjóður sé nettó skuld- laus. Sú staða sé ný og spari miklar vaxtagreiðslur. „Þess vegna erum við miklu betur í stakk búin að tak- ast á við breyttar horfur,“ segir hann. Þó að tekjusamdráttur ríkissjóðs sé fyrirsjáanlegur vegna minni umsvifa í samfélaginu telur Geir að hann muni ekki segja til sín í vel- ferðarmálum. Áfram verði unnið að breytingum á skattkerfinu, til hagsbóta fyrir almenning en síður ríkissjóð. „Persónuafslátturinn mun hækka og þar með skattleysis- mörkin í takt við verðlagsbreyting- ar og við erum farin af stað með að lækka stimpilgjöld. En það getur vel verið að við þurfum að gæta betur að okkur og sætta okkur við minni opinberar framkvæmdir.“ Sanngjörn samskipti Ríkisstjórnin hefur mikinn þing- styrk, einn hinn mesta í þing- sögunni. Við slíkar aðstæður er hætt við að meirihlutavaldið taki lítið tillit til minnihluta. Aðspurður segir Geir stjórnarflokkana umgangast stjórnarandstöðuna af nægilegri sanngirni. „Mér finnst það. Við ráðgumst við hana þegar mál eru þess eðlis að eðlilegt sé að um þau náist breið samstaða. Það er eðlilegt að menn deili um einstök mál en í hinum stærri málum sem varða hagsmuni Íslands út á við þá reynum við að hafa breiða sam- stöðu,“ segir hann. Geir nefnir einnig að stjórnar- flokkarnir hafi stuðlað að bættum starfsháttum stjórnarandstöð- unnar. „Í vetur tryggðum við for- ystumönnum stjórnarandstöðunnar sérstakan aðstoðarmann auk þess sem allir landsbyggðarþingmenn fá aðstoðarmann í hlutastarfi. Það má heldur ekki gleyma því að á sínum tíma var séð til þess að betur væri gert við formenn stjórnarand- stöðuflokkanna í launalegu tilliti en áður var.“ Gott samstarf Geir segir andrúmsloftið í pólitík- inni nú um stundir ágætt og að ýmsu leyti betra en áður. „Auðvit- að verða einhverjir fyrir von- brigðum eftir kosningar og menn eru misjafnlega ánægðir með sína útkomu og hvernig úr spilast en menn verða að sætta sig við það. En andrúmsloftið er að mörgu leyti betra en það var og þar kemur til bætt starfsaðstaða auk þess sem við færri vandamál er að glíma heldur en var hér áður. Ástandið er miklu betra þó að við göngum núna í gegnum ákveðna efnahagsörðugleika sem eru bara viðfangsefni að takast á við.“ Samdráttur komi ekki niður á velferðarmálum M ér finnst hafa tekist alveg ótrúlega vel að koma þeim málum áfram sem um samdist þegar ríkisstjórnin var mynduð og þá ekki síst málum á sviði velferð- ar. Mér sýnist að nálægt níutíu pró- sent af þeim verkefnum sem er að finna í stjórnarsáttmálanum séu þegar komin til framkvæmda eða á góðan rekspöl í ráðuneytunum,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. Samfylkingin hafi lagt upp í kosningarnar með það að markmiði að reyna að bæta hag barna og kjör – ekki síst aldr- aðra og öryrkja – og um þau mál hafi náðst gott samkomulag við sjálfstæðismenn. „Samþykkt hefur verið aðgerðaáætlun í málefnum aldraðra og öryrkja sem felur í sér gríðarlega mikilvægar réttar- bætur,“ segir hún og nefnir sér- staklega afnám tenginga á bótum aldraðra og öryrkja við tekjur maka, hundrað þúsund króna frí- tekjumark 67-70 ára og 25 þúsund króna greiðslur til fólks sem ekki nýtur greiðslna úr lífeyrissjóðum. Þá er aðgerðaáætlun í málefn- um barna ekki síður hugleikin Ingibjörgu. Samþykkt hennar var eitt fyrsta verk ríkisstjórnarinnar. „Þar eru sett fram fjölmörg atriði sem við ætlum að vinna að á kjör- tímabilinu og nú þegar er margt komið til framkvæmda. Í því sam- bandi má sérstaklega nefna úrbætur í málefnum langveikra barna, hækkun barnabóta og aukið jafnræði í fæðingarorlofi.“ Hún segir þessi mál skipta Samfylk- inguna miklu, velferðarmálin séu kjarnamál jafnaðarmannaflokka. Unnið gegn verðbólgunni Fjölmörg önnur viðamikil mál úr ranni ríkisstjórnarinnar eru til meðferðar Alþingis. Ingibjörg Sól- rún segir ráðherrana mjög vinnu- sama og sama sé hvert hún líti, alls staðar sé margt að gerast. Þó beri að hafa í huga að kjörtímabilið telji fjögur ár. „Við framkvæmum auðvitað ekki allt á fyrsta ári,“ segir hún og kveðst skynja óþreyju bæði í þingflokki Samfylkingar- innar og meðal almennra flokks- manna. „Fólk vill sjá hlutina ger- ast mjög hratt og sem allra fyrst en það má ekki gleyma því að kjör- tímabilið er fjögur ár. Að þeim tíma loknum verður hægt að meta hvernig til hefur tekist.“ Eitt af því sem fólk vill sjá ger- ast hratt – og vildi raunar að væri þegar frágengið – eru aðgerðir vegna efnahagsvandræðanna sem nú eru uppi. Ingibjörg segir að á vettvangi stjórnvalda sé reynt að styrkja varnir íslenska hagkerfis- ins, auka trúverðugleika þess og opna þannig fyrir aðgang bank- anna að lánsfé. Þá sé forgangsmál að koma í veg fyrir að verðbólgan festist í sessi og í undirbúningi séu aðgerðir til að mæta fólki sem lendir í erfiðleikum sökum ástandsins. Mikilvægt að fólk missi ekki húsnæðið Ánægð með verkin og samstarfið Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lýsa í samtali við Björn Þór Sigbjörnsson ánægju með störf sín og samstarfið í ríkisstjórninni þetta ár sem hún hefur starfað. Mörgum mikilvægum málum hafi verið hrint í framkvæmd, þar á meðal mörgu sem kveðið sé á um í stjórnarsáttmálanum. Efnahagsmálin séu stóra málið fram undan. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR UTANRÍKISRÁÐHERRA Ingibjörg segir að í skoðun sé hjá viðskiptaráðuneytinu hvernig og hvort hægt sé að taka á greiðsluerfiðleikum fólks í gegnum Íbúðalánasjóð. Aldrei sé þó hægt að bjarga öllu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GEIR H. HAARDE FORSÆTISRÁÐHERRA Geir segir mikilvægt að fyrirsjáanlegur tekju- missir ríkissjóðs muni segja til sín í velferðarmálum. Helsta viðfangsefni ríkisstjórnar- innar sé að komast á lygnan sjó í efnahagsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sá misskilningur er uppi að ríkisstjórnin sé með nefið ofan í hvers manns koppi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.