Fréttablaðið - 24.05.2008, Blaðsíða 31
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Akurnesingurinn Einar Gunnar Einarsson við-
skiptafræðingur ekur um á glæsilegum Chevr-
olet SSR af árgerð 2003 sem er eftirlíking af
Chevrolet Pickup frá 1952.
„Chevrolet-pallbíllinn er skemmtilegur og hefur
vakið alveg gríðarlega athygli, miklu meiri en ég
hafði reiknað með. Þessir bílar voru framleiddir frá
2003 til 2006. Það eru því ekki margir til í heiminum
og þetta er sá eini hér á landi, eftir því sem ég kemst
næst,“ segir Einar Gunnar þegar forvitnast er um
rauðan pallbíl sem hann sést stundum á á götum
borgarinnar. Hann tekur því vel að koma við á Frétta-
blaðinu næst þegar hann eigi leið um og stendur við
það.
Bíllinn er gljáfægður og þó að árgerðin sé 2003 þá
er allt í gömlum stíl. Framendinn er endursköpun á
Chevrolet Pickup frá 1952 og leðurklædd sætin og
hvalbakurinn eins og úr mynd með James Dean.
Toppurinn er harður en hægt er að taka hann niður
eins og blæju með einu handtaki. Einar Gunnar
kveðst eiga eftir að notfæra sér það í sumar. „Ég
flutti bílinn inn frá Bandaríkjunum í fyrrahaust
þannig að ég er að keyra inn í fyrsta sumarið á honum.
Tækifærin til að hafa toppinn niðri hafa ekki verið
ýkja mörg til þessa,“ útskýrir hann.
Chevrolettinn er með átta cilindra, 5,3 lítra vél, 300
hestöfl og „skrambi sprækur“ eins og eigandinn
orðar það. Viðurkennir að þurfa að standa á brems-
unni í Hvalfjarðargöngunum. „Ég hef verið með
mikla bíladellu gegnum tíðina og flutt inn nokkra frá
Bandaríkjunum. Á meðal annars Kádilják en lenti í
árekstri á honum fyrir nokkrum dögum þannig að
hann er úr leik í bili,“ segir hann.
Þar sem bensínverð er orðið býsna hátt er Einar
Gunnar spurður í lokin hvort Chevroettinn sé ekki
dýr í rekstri. „Jú,“ svarar hann. „Ég hef ekki mælt
hversu miklu hann eyðir og vil sem minnst um það
vita!“ gun@frettabladid.is
Á bremsunni í göngunum
„Það eru ekki margir svona bílar til í heiminum og þetta er sá eini hér á landi,“ segir Einar Gunnar um Chevrolet-pallbílinn sem
hann flutti inn frá Bandaríkjunum í fyrrahaust. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SUMARIÐ KOMIÐ
Tískuvörurverslanirnar
eru nú að fyllast af litrík-
um og léttum flíkum fyrir
sumar- og sóldýrkendur.
TÍSKA 7
F
A
B
R
I
K
A
N
BYLTING Í HÖNNUN
Hönnuðir Land Rover hafa
tekið í notkun þrívíddar-
helli sem hjálpar þeim
og tæknimönnum að
vinna með nýja tækni
án þess að þurfa að
framleiða dýr módel.
BÍLAR 2
... fyr
ir börn
3-6 ára
Íþrótta, enskukennslu og
óvæn
t uppák
oma á hverjum degi.
577 2555
WWW.HR
EYFILAND
.IS
Kiktu á he
imasíðu
okkar!
NÁMSKEIÐIN VERÐA HALDIN
7.JÚLI-1.ÁGÚST
Hópur fyrir hádegi er frá kl. 10-14 (hópur A) alla virka daga
Hópur eftir hádegi er frá kl. 12-16 (hópur B) alla virka daga
Við tökum aðeins á móti 15 börnum í hvern hóp.
Hafið samband eins fljótt og
unnt er þar sem fyrstir sem
skráðir eru ganga fyrir.
WWW.HREYFILAND.IS | 577 2555