Fréttablaðið - 26.05.2008, Síða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn 26. maí,
148. dagur ársins.
3.38 13.25 23.14
2.55 13.09 23.27
Þeir sem segja að ekki sé hægt að kaupa allt fyrir peninga
eru að vanmeta mátt peninganna
gróflega. Það er lafhægt að kaupa
dauða yfir bæði einstaklinga og
þjóðir. Lífslíkur auðmanna og
fátæklinga sýna svo að ekki verð-
ur um villst að hægt er að kaupa
fjöldamörg æviár. Og meira að
segja var elsta kaupsýslufyrir-
tæki á jörðinni á kafi í að selja
fólki eilíft líf öldum saman.
MANNSLÍF eru metin hjá trygg-
ingafélögum. Slys eða óhöpp eins
og að verða fyrir nauðgun eða
líkamsárás eru metin til fjár af
dómstólum. Prísinn á nauðgun-
um er miðaður við að gera fleir-
um en efnamönnum fjárhagslega
kleift að nauðga lágt launuðu
kvenfólki, enda væri prísinn tölu-
vert hærri ef hæstaréttardómara
væri nauðgað, að ég tali nú ekki
um karlkyns hæstaréttardómara.
Nekt og samfarir er líka hægt að
kaupa samkvæmt verðlista, og
pólitískur stuðningur eða skoðan-
ir fólks hafa öldum saman fylgt
markaðsverði. „Brauð og leikir“
var sú verðlagning kölluð í Róma-
borg til forna. „Atvinna og stöð-
ugleiki“ er það kallað í dag.
NÚ vill Anders Fogh Rasmuss-
en, forsætisráðherra Dana, verð-
leggja náttúruna og rukka fyrir
þau spjöll sem framkvæmdir
valda á henni. Þetta er reyndar
hafið fyrir löngu. Garðyrkju-
stöðvar verðleggja einstakar
plöntur og blómabúðir verðleggja
skrautblóm. Vatnsföll sem hægt
er að virkja til raforkufram-
leiðslu hafa sinn prís, laxveiðiár
og silungsvötn er líka að finna í
verðlistum.
MIKLU þægilegra er að átta sig
í búðum þar sem vörurnar eru
verðmerktar. Til að efla verð-
skyn almennings fyrir einstakl-
ingum og umhverfi þarf endilega
að færa þessa verðmerkingu út
úr búðunum og inn í borgarum-
hverfi og loks náttúruna. Fyrst
setjum við verðmiða á hvern ein-
stakling og breytum dagsprísn-
um eftir því hvernig einstakling-
urinn þróast og eftirspurnin er í
þjóðfélaginu. Sumir kosta 300
millur og aðrir eru falir fyrir
þúsund kall á tímann. Síðan þarf
að fara að verðleggja mannlega
hegðun. Við vitum hvað forsetinn
hefur í kaup en hvers virði er
hvert augnatillit hans og handa-
band, og svo þarf að kanna hvers
virði er það ef ung stúlka brosir
til ungs pilts á vordegi þegar sól
fyrir margar milljónir skín yfir
land og þjóð?
Verðlagskönnun