Fréttablaðið - 29.05.2008, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 29.05.2008, Blaðsíða 15
Hafðu það gott! 11:00 OPNUN GÚTTÓ Í Gúttó verður sett upp sýningin FUNDIR OG MANNFAGNAÐIR þar sem hlutverki þessa sögufræga húss verða gerð skil. Sýningin er samstarfsverkefni Byggðasafnsins og Listar og sögu ehf. 11:00 LÍF OG FJÖR Í STRANDGÖTUNNI Strandgatan iðar af lífi allan daginn og fjöldi uppákoma setur svip sitt á svæðið. Meðlimir frá Þjóðahátíð líta við klukkan 14:00 og 16:00 en þess á milli verða lifandi skemmtiatriði í göngugötunni. Götulistamenn verða á ferðinni og Fimleikafélagið Björk leiðir skemmtilegt hópatriði í götunni. Bókasafnið og Þjónustuver Hafnarfjarðar hafa opið til klukkan 17:00. 12:00-18:00 ÞJÓÐAHÁTÍÐ ALÞJÓÐAHÚSSINS Í ÍÞRÓTTAHÚSINU VIÐ STRANDGÖTU Alþjóðasamfélagið á Íslandi ljóslifandi. Komið og njótið fjölbreytileikans í samfélaginu okkar! Frábær hátíð þar sem sögurnar, takturinn, bragðið og litadýrð ólíkra menningarheima birtast í fjölþjóðlegum skemmtiatriðum. 13:00-16:00 BARNADAGSKRÁ Á THORSPLANI Snæfríður og Stígur úr Stundinni okkar skemmta börnunum og stjórna fjölbreyttri barnadagskrá á Thorsplani. Meðal dagskrárliða er brúðuleikhús, söngur, dans, glens og gaman. Börn á öllum aldri ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og því um að gera að líta við á Thorsplani. Að lokinni dagskrá spilar plötusnúður skemmtileg barnalög. 14:00 FH- HAUKAR - BARÁTTAN UM FJÖRÐINN !!! FH-ingar og Haukar hafa lengi barist um hylli Hafnfirðinga og verið bæjarfélaginu til sóma. Nú er komið að því að valdir leikmenn þessara félaga eigist við í þrautum sem reyna á hug og hönd fyrir framan Fjörðinn í miðbæ Hafnarfjaðrar. Bráðfjörug og spennandi keppni sem gaman verður að fylgjast með. 14:00 UPPBOÐ Á ANTIKMUNUM Í STRANDGÖTUNNI. Glæsilegt antik og listmuna uppboð í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðar. Hartnær hundrað munir verða boðnir upp og verður uppboðið haldið innan sem utandyra við ANTIKBÚÐINA, ef veður leyfir. 14:00 HEILLANDI HEIMAR Í HELLISGERÐI Stórskemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna í glæsilegu umhverfi Hellisgerðis. Mikil áhersla verður lögð á lifandi umhverfi með tónlist, umhverfishljóðum og skemmtilegum uppákomum. 15:00 ÓRAFMÖGNUÐ STEMNING Í KIRKJUM BÆJARINS Tæplega tveggja klukkustunda tónleikar með úrvali listamanna. Hér ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Allir tónleikarnir hefjast á sama tíma og höfða til gesta á öllum aldri. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Ragnheiður Gröndal Magnús Kjartansson Lay Low HAFNARFJARÐARKIRKJA: Védís Hervör og félagar, Ólöf Arnalds, Rotturnar: Margrét Eir, Regína Ósk & Heiða Ellen Kristjánsdóttir FRÍKIRKJAN: Alda Ingibergsdóttir Frank Aarnick og hörpuleikari Guido Baumer og Aladar Rácz, miðevrópskur jazz 16:00 ÍSLENSKA KVIKMYNDIN STIKKFRÍ SÝND Í BÆJARBÍÓI 17:00 - 23:00 HAFNARFJÖRÐUR ROKKAR Á VÍÐISTAÐATÚNI Stórglæsilegir tónleikar fyrir alla fjölskylduna sem fram fara á Víðistaðatúni. Hinir einu sönnu Simmi & Jói verða kynnar. Margir af færustu tónlistarmönnum landsins koma fram: Naflakusk, Vicky Pollard, Bermúda, Veðurguðir, Megas, Eurobandið, Baggalútur, Sammi BigBand, Sprengihöllin, Sálin og Björgvin Halldórsson. Léttar og ferskar veitingar frá Kokkunum verða til sölu. Á Víðistaðatúni verða einnig útigrill þar sem tónleikagestir og fjölskyldur geta mætt með pylsur eða annað til að grilla. LA U G A R D A G U R 3 1. M A Í 2 00 8 Dagskrá sjómannadags og afmælisdags Hafnarfjarðar hefst með formlegum hætti þegar fánar verða dregnir að húni árla morguns. Í framhaldi af því verður blómsveigur lagður að minnisvarða um horfna sjómenn og fram eftir degi er spennandi dagskrá við allra hæfi. 11:00 SJÓMANNAMESSA Í VÍÐISTAÐAKIRKJU 11:00 GUÐSÞJÓNUSTA Í FRÍKIRKJUNNI Í HAFNARFIRÐI 11:00 FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA Í HAFNARFJARÐARKIRKJU Í tilefni sjómannadagsins verður þema guðsþjónustunnar „sjór og saga.“ Mikið verður gert úr söng og hljóðfæraleik og eftir guðsþjónustuna verður útihátíð og grill á kirkjuplaninu. Æskulýðsfélagið verður með leiktæki og trébátar verða á kirkjutjörninni, sem börn fá að sigla. 11:00 ÓLA RUN TÚN NEÐAN VIÐ LINDARHVAMM Verðlaunaafhending vegna hugmyndasamkeppni um Óla Run túnið, veitt eru verðlaun fyrir 1. til 3. sæti auk þess sem skemmtilegasta tillagan fær verðalaun. Hrúturinn Lúlli Geirs verður á svæðinu ásamt nokkrum kindum. Um að gera að taka með sér nesti og njóta útiverunnar á túninu. Hugmyndir sem tóku þátt eru til sýnis í Bókasafni Hafnarfjarðar til klukkan 17:00. 12:00-18:00 ÁSVALLALAUG Gestum og gangandi býðst að skoða húsið og þær framkvæmdir sem eru í gangi 13:00 HÁTÍÐARFUNDUR BÆJARSTJÓRNAR Í GÚTTÓ Bæjarstjórn Hafnarfjarðar kemur saman og heldur fund í þessu sögufræga húsi. 14:00 HÁTÍÐARSAMKOMA Í HAFNARBORG Útnefning bæjarlistamanns og hvatningarstyrkir veittir og Eyjólfur Eyjólfsson syngur. Samkoman er ætluð boðsgestum. HAFNARSVÆÐIÐ – VEGLEG FISKIVEISLA Hafnarsvæði iðar af lífi á Sjómannadaginn og margt og mikið að gerast frameftir degi og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. 11:30 Kænumót á vegum Siglingaklúbbsins Þyts. 12:00 Boðið til glæsilegrar fiskiveislu við höfnina við harmonikkuundirleik. 12:15 Elding heldur í fyrstu siglingu. 12:30 Sjóræningjar ganga um svæðið, skemmta börnunum og gefa blöðrur. 12:45 Fagriklettur heldur í fyrstu siglingu – sjóræningjasigling með öllu tilheyrandi. 13:00 Lúdó og Stefán leika fyrir dansi á bryggjuballi. Þessir landsþekktu listamenn taka öll sín vinsælustulög í gegnum tíðina í 90 mínútna dagskrá. 13:00 Félagar úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar sýna dans á bryggju. 13:15 Elding heldur í aðra siglingu. 13:45 Fagriklettur – 2. sjóræningjasigling 13:30 Sýning björgunarsveitar – listflug – heimsókn frá þyrlu. Landhelgisgæslunnar. Gera má ráð fyrir 30-45 mínútna dagskrá. 14:00 Sjómenn heiðraðir og ávörp. 14:15 Elding – 3. sigling 14:40 Bryggjuballið heldur áfram þar sem Lúdó og Stefán leika fyrir dansi. 14:45 Fagriklettur – 3. sjóræningjasigling 15:00 Fyrirtækjaáskorun á sjó. Spennandi fjölþraut í glænýjum búningi með Jónsa í Svörtum Fötum. AFMÆLISHÁTÍÐ Á HJÚKRUNAR- OG SJÚKRASTOFNUNUM 14:00 Hin árlega kaffisala og handverkssýning verður frá kl. 14-16 að Hrafnistu. 14:30 Caprí Tríó skemmtir á Hrafnistu. 15:10 Capri Tríó á Sólvangi og boðið upp á afmælistertu. 15:45 Caprí Tríó á St. Jósefs og boðið upp á afmælistertu. 15:00 ÚTIKAFFIBOÐ Afmælisgestum er boðið í kaffi og afmælistertu í miðbæ Hafnarfjarðar, nánar tiltekið á Strandgötunni. Í boði verður glæsileg 100m löng súkkulaðiterta merkt bæjarfélaginu. Með þessu verður boðið upp á Merrild kaffi og ískalda mjólk. Kökuboðið hefst kl. 15:00 og stendur til kl. 16:00 eða svo lengi sem birgðir endast. Glæsileg skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna á Thorsplani á meðan gestir gæða sér á góðgætinu: Nemendur frá Lækjarskóla sýna atriði úr Jesus Christ Superstar Hara systur taka lagið af sinni alkunnu snilld Jónsi tekur nokkur lög og syngur afmælissönginn Brúðuleikhús: Pétur og Úlfurinn Plötusnúður – DJ Daddi Diskó spilar til klukkan 17:00 16:30 HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Á ÁSVÖLLUM Stórglæsilegir hátíðartónleikar með Kammersveit Hafnarfjarðar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands auk 700 manna afmæliskórs Hafnarfjarðar. Einsöngvarar eru Elín Ósk Óskarsdóttir, Ágúst Ólafsson og Eyjólfur Eyjólfsson. Einleikari er Ármann Helgason. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson. Íþróttahúsið á Ásvöllum verður fært í hátíðarbúning í tilefni dagsins. Skutlur standa gestum til boða frá Firðinum frá klukkan 16:00 og flytja gesti að Ásvöllum. Aðgangur á tónleikana er gestum að kostnaðarlausu. Tónleikunum verður útvarpað beint á Rás 1. Tónleikar sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. SU N N U D A G U R 1 . J Ú N Í 2 00 8 Hlökkum til að sjá þig! Ítarlegri dagskrá allra daganna má finna á www.hafnarfjordur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.