Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.06.2008, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 03.06.2008, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 3. júní 2008 3 Fjöldi verðandi grunnskóla- kennara útskrifast frá Kennara- háskólanum í júní. Nemendur á lokaári skólans hafa skrifað lokaritgerðir sínar af krafti síð- ustu mánuði og mörg forvitnileg verkefni hafa litið dagsins ljós. Meðal þeirra sem útskrifast frá kennaraháskólanum í sumar eru Birna Hjaltadóttir og Hulda Signý Gylfadóttir, sem gerðu mynd- skreytta barnabók. „Við ákváðum að gera sögu sem væri engu öðru lík. Bókin fjallar um einstaklinga sem hafa ólíka eiginleika og ef þeir sameina krafta sína geta þeir leyst saman ýmis verkefni,“ útskýrir Hulda Signý. Bókin hefur það markmið að efla félagsþroska og samskiptahæfni hjá börnum og opna augu þeirra fyrir því að allir hafi yfir kostum að búa. Bókin er hugsuð fyrir yngstu stig grunnskólanna og sem kennsluefni í lífsleikni í gegnum leiklist. „Bókinni fylgir þrjátíu blaðsíðna kennsluhandbók þar sem sýndar eru margar leiðir til þess að kenna innihald bók- arinnar. Við teljum að bókin sé mjög góð til þess að efla samskipti og félagsþroska og sporna við einelti og öðrum vandamálum sem koma upp í skól- um,“ segir Birna. Draumur þeirra er að gefa bókina út einn daginn enda hentar hún afar vel til kennslu og öll börn geta lært af innihaldi hennar. mikael@frettabladid.is Allir hafa einhverja kosti Birna og Hulda voru sáttar við útkomuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Barna- bókin ásamt kennslu- handbókinni. Meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun Meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun býr nemendur undir að takast á við eitt af mest knýjandi viðfangsefnum framtíðarinnar, nýtingu og stjórnun auðlinda. Kennsla fer fram á Ísafirði við Háskólasetur Vestfjarða en námsleiðin er í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Nánari upplýsingar: www.hsvest.is Umsóknarfrestur: 5. júní 2008 Í samstarfi við: Lj ós m yn d: A gn es G ei rd al Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í Blaðbera Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.