Fréttablaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 24
 3. JÚNÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● verktakar Fyrsta skóflustungan að nýjum barnaskóla í Naustahverfi á Akureyri var tekin fyrir skömmu. Ákveðið var að bjóða fram- kvæmdina út í tveimur áföng- um, hinum fyrri í mars 2008. Sex tilboð bárust í verkið og tókust samningar við SS Byggi ehf. Í húsinu verða tvö af þremur heimasvæðum nemenda ásamt vistun og tónlistarkennslusvæði. Fyrri áfanginn er um 2.300 m², að mestu leyti á tveimur hæðum, og yfirbyggður gangur að leik- skóla. Við hönnun eru farnar nýjar leiðir og stuðst við bandaríska aðferð þar sem skipulag skóla- starfsins, hönnun byggingar og þátttaka grenndarsamfélags eru tengd saman. Þetta var gert í samstarfi við Tónlistarskólann, íþrótta- og tómstundadeild, ÍBA, Akureyrarkirkju, leikskóla- deild, Amtsbókasafnið, Samtök atvinnulífsins, grunnskólakenn- ara, foreldra og grunnskólabörn. Helstu áherslur eru: Opinn skóli sem er miðstöð hverfis- ins, góð tengsl við umhverfið og íbúa, miðlægt fjölnotarými um- kringt einingum og með góðu flæði, stjórnunarsvæði við aðal- inngang, fjölbreytileiki í rýmis- myndun, gott flæði milli inni- og útisvæða og tengsl við leikskól- ann. Skólinn skiptist í þrjú heima- svæði, stjórnunarálmu, miðr- ými og íþróttasal. Yngsta stig og miðstig eiga sitt heimasvæði í norður álmunni hvort á sinni hæð en unglingastigið verður í suð- urálmunni. Þar eru einnig verk- greinastofur. Kennslueldhús er milli norðurálmu og íþróttahúss og tengist beint inn í miðrými. Í miðrýminu er matsalur, bóka- safn og hátíðarsalur. Stjórnunarálman er við aðal- anddyri skólans og tónlistar- kennsla við inngarð. Lóðin verð- ur vel búin til leikja og útiveru og meðal annars inngarður, upphit- aður gervigrasvöllur og þrauta- braut fyrir reiðhjól. Arkitektúr, hljóðvist, lóð og brunahönnun er í höndum VA arkitekta ehf. Áætlað er að ljúka fyrri áfanga eigi síðar en 1. ágúst 2009. Heildarkostnaður við fram- kvæmdina er áætlaður um tveir milljarðar. - rh Nýjar leiðir í hönnun Við hönnun skólans voru farnar nýjar leiðir að bandarískri fyrirmynd. Þar er stuðst við tengsl skólastarfs, hönnun- ar og þátttöku grenndarsamfélagsins. Áætlað er að ljúka fyrsta áfanga skólans sumarið 2009. Heilu hverfin í Reykjavík sem byggðust upp á fyrrihluta síðustu aldar eru steinuð. Í dag er steining aftur í tísku á ný- byggingar og verið að lagfæra gömlu húsin. „Þetta er vinsælt á nýbygging- ar núna, og ákveðin tískubóla í dag eins og flötu þökin,“ útskýrir Elías Víðisson, byggingafræðing- ur hjá Múr og máli, en fyrirtæk- ið sérhæfir sig í viðhaldi húsa. Við steiningu eru notuð ákveðin hand- tök sem starfsmenn Múrs og máls hafa sérhæft sig í. Mörg þeirra húsa sem fyritækið hefur tekið í gegn hafa hlotið fegrunarverð- laun Reykjavíkurborgar. „Fyrirtækið hefur steinað hús í um fimmtán, tuttugu ár en gam- all múrarameistari hjá okkur kenndi mönnum handtökin,“ út- skýrir Elías. „Við byrjum á að há- þrýstiþvo húsið og gerum við það sem þarf í múrnum. Svo er stein- ingarlími annaðhvort úðað á eða límið dregið á flötinn og sléttað. Steiningunni er svo sprautað á eða kastað. Við köstum henni á og viljum meina að þannig náist fal- legri áferð. Þetta er vandasamt verk og vandasamt að passa að ekki komi skil þegar vinnupallar eru færðir niður um hæð. Stund- um sér maður hálf köflótt hús þar sem sést hvernig pöllunum var raðað utan á húsið þegar það var steinað.“ Marmarasalli er notaður við steininguna og getur hann enst í marga áratugi. Elías segir stein- ingu ekki endilega dýra þegar horft er til endingartímans en Múr og mál hafa endursteinað hús sem byggð voru árið 1930. „Endingartíminn getur verið tuttugu til fjörutíu ár og jafnvel lengri. Það sem er dýrt í viðhaldi á húsum er að koma sér á stað- inn, setja upp vinnupalla og slíkt og því hvetjum við fólk oft til að taka sem mest í gegn í einu. En miðað við endingartíma steining- ar þarf að mála hús jafnvel fimm til sex sinnum á móti einni stein- ingu. Þetta fer því eftir því í hvaða samhengi þetta er sett hvort fólki finnst þetta dýrt. Ef fólk er lita- glatt eru auðvitað fleiri möguleik- ar í málningunni en þú skiptir ekki svo glatt um lit í steiningunni.“ - rat Steiningin endist í tugi ára Elías Víðisson, byggingafræðingur hjá Múr og máli, steinaði húsið sitt sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Steining getur enst áratugum saman ef vandað er til verks en Múr og mál hafa endursteinað hús sem byggð voru 1930. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hinar nýju höfuðstöðvar Klæðningar eru 1.500 fermetrar að stærð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fyrirtækið Klæðning ehf. er að flytja alla sína starfsemi að Ís- hellu 7 í Hafnarfirði. Nýja hús- næðið er 1.500 fermetrar að flatar máli en þar er að finna skrifstofur fyrirtækisins, tækni- og viðhaldsdeild og þjónustumið- stöð fyrir viðskiptavini og verk- kaupa. „Ætli við séum ekki að auka rýmið um svona fjörutíu pró- sent en fyrirtækið hefur um ní- faldast að stærð á síðustu fimm árum,“ segir Sigþór Ari Sigþórs- son, framkvæmdastjóri. „Við erum fyrst og fremst að koma allri starfseminni fyrir á einum stað en við erum að flytja inn með dótturfyrirtæki Klæðningar, malbikunarfyrirtækinu Berg- steini ehf.“ segir Sigþór. - mþþ Flytja í Hafnarfjörð 60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004 MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu. HANN ER GRIMMUR! MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER - VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár - Útvegum notaða skotbómulyftara - Úrval notaðra lyftara á lager Fjórhjóladrifinn Fjórhjólastýrður Lyftigeta: 3.400 KG Lyftihæð: 6.050 MM Gafflar: 1.200 MM Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar án aukins snúningshraða vélar. SKOTBÓMULYFTARI PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf. Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.