Fréttablaðið - 03.06.2008, Qupperneq 36
20 3. júní 2008 ÞRIÐJUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 17
Franski rithöfundurinn Philippe
Claudel les upp úr bók sinni „Í
þokunni“ í aðalsafni Borgarbóka-
safnsins, Tryggvagötu 15, í dag kl.
17. Bókin kemur út í dag hjá
bókaforlaginu Bjarti í íslenskri
þýðingu Guðrúnar Vilmundardóttur.
Claudel hlaut virt frönsk bók-
menntaverðlaun, Prix Renaudot,
fyrir þessa skáldsögu.
Tónlistarhátíðin AIM Festival fer
fram á Akureyri dagana 12. til
16. júní næstkomandi, en þetta
verður í þriðja sinn sem hátíðin
verður haldin. Um er að ræða
alhliða tónlistarhátíð sem býður
upp á breitt úrval tónlistar; þar
ægir saman poppi, rokki, djassi,
pönki, blús og klassík. Í fyrra
komu níutíu tónlistarmenn frá
fjórtán þjóðlöndum fram á hátíð-
inni og verður dagskráin ekki
síður glæsileg í ár.
Meðal tónlistarmanna sem
troða upp á AIM Festival í ár eru
þýski trompetleikarinn Sebastian
Studn itzky sem spilar sambland
af djassi og poppi og er gjarnan
líkt er við meistara Miles Davis
og ástralska sveitin Hoodangers
sem spilar léttan og pönkaðan
djass og hefur ekki síst vakið
athygli fyrir kraftmikla og húmor-
íska sviðsframkomu. Hrund Ósk
Árnadóttir, hin nýja íslenska
blúsdrottning, kemur fram með
hljómsveitinni Park Projekt og
ísfirski undradrengurinn Mugison
spilar á sérstöku Kimi Records-
kvöldi á Græna hattinum ásamt
ungu poppurunum í Retro Stef-
son og gleði pönkurunum Helga
og hljóðfæraleikurunum.
Klassíkinni verður að auki gerð
mjög góð skil á AIM Festival. Mót-
ettukórinn, undir stjórn Harðar
Áskelssonar, flytur stórvirkið
Vesper op. 37 eftir Rachmaninov í
Akureyrarkirkju en með þeim í för
eru tveir rússneskir bassasöngv-
arar. Þá mun píanósnillingurinn
Víkingur Heiðar Ólafsson leika
valsa eftir Brahms og Beethoven
á flygilinn í Ketilhúsinu.
Nánari upplýsingar um AIM
Festival og dagskrána í heild sinni
má finna á heimasíðu hátíðarinn-
ar: www.aimfestival.is - vþ
Margar tegundir tónlistar
MÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU Kemur fram á AIM-tónlistarhátíðinni á
Akureyri um miðjan mánuðinn.
Sjötta árlega Kórastefn-
an við Mývatn hefst nú á
fimmtudag. Þátttakendur
hafa aldrei verið fleiri
og eru nú um 400 talsins.
Norræn karlakóratónlist
og verkið Carmina Burana
eftir Carl Orff verða í
brennidepli á hátíðinni.
Dagskrá Kórastefnunnar er glæsi-
leg að vanda. Meðal annars verður
boðið upp á 100 ára afmælistón-
leika Kórs Reykjahlíðarkirkju,
miðnætursöng í Jarðböðunum við
Mývatn, tónleika í hraunhvelfingu
Laxárvirkjunnar og svo að sjálf-
sögðu stórtónleika í stefnulok.
Margrét Bóasdóttir er listrænn
stjórnandi og skipuleggjandi Kóra-
stefnunnar. Hún segir staðsetningu
hátíðarinnar vera afar viðeigandi.
„Ég er sjálf
fædd og uppalin
í Mývatnssveit
og þekki því vel
þá ríku sönghefð
sem þar þrífst.
Mývetningar
syngja iðulega
fjórraddað
þegar þeir hitt-
ast og skemmta
sér og því er vel
við hæfi að halda svona stóra söng-
hátíð hér. Það er sérlega ánægju-
legt að sjá hvernig stefnunni hefur
vaxið fiskur um hrygg á þessum
sex árum sem hún hefur farið
fram; upphaflega voru þátttakend-
ur um 150 en í ár eru þeir um 400.“
Á Kórastefnunni hefur iðulega
verið lögð áhersla á tvö verkefni
ár hvert; verkefni fyrir sérhæfða
kóra og svo stórt verkefni fyrir
blandaða kóra. „Í fyrra voru verk
fyrir kvennakóra í sviðsljósinu hjá
okkur, en í ár eru það karla kórarnir
sem fá að njóta sín og flytja nor-
ræna karlakóratónlist. En stóra
verkefnið í ár er að sjálfsögðu upp-
setningin á Carmina Burana. Í
henni taka þátt blandaðir kórar,
barnakór, einsöngvarar og svo Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands sem
við höfum átt í afar farsælu sam-
starfi við.“
Þeir kórar sem taka þátt í Kóra-
stefnunni að þessu sinni eru Kór
Flensborgarskólans í Hafnarfirði,
Samkór Kópavogs, Lögreglu kórinn
í Reykjavík, Karlakór Keflavíkur,
Barnakór Hafralækjarskóla, Kór
Reykjahlíðarkirkju, Samkór úr
þingeyskum kirkjukórum og félag-
ar úr kórum á Akureyri. Nokkra
athygli vekur að einnig tekur þátt
sænskur kór; Åkersberga Kammar-
kör frá Stokkhólmi. Margrét seg-
ist hafa orðið vör við þó nokkurn
áhuga á Kórastefnunni frá
erlendum kórum. „Nýverið var
opnuð heimasíða fyrir Kórastefn-
una, en markmiðið með síðunni er
að gera þátttöku í stefnunni
aðgengilegri fyrir erlenda kóra.
Ég hef fengið nokkrar fyrirspurnir
frá erlendum kórum sem hafa
áhuga á að koma hingað til lands
og taka þátt í Kórastefnunni, en
kostnaðurinn við slíkt ferðalag er
auðvitað mikill og strandar þátt-
takan oftast á því. En við stefnum
að því í framtíðinni að það komi
tveir til þrír erlendir kórar á ári og
syngi með.“
Tónlistarunnendur á Norður-
landi geta greinilega hugsað sér
gott til glóðarinnar nú um helgina.
Áhugasömum er bent á heimasíðu
kórastefnunnar, www.korastefna.
is, en þar má nálgast nánari upp-
lýsingar um dagskrána og kaupa
miða á tónleika. vigdis@frettabladid.is
Kórar hittast í söngelskri sveit
MARGRÉT
BÓASDÓTTIR
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
24
48
0
5/
08
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 2-8
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Bifrreiðaverkstæði Reykjavíkur ehf.
Bæjarflöt 13
Reykjavík
Sími: 577-7080
Bílatangi ehf.
Suðurgötu 9
Ísafjörður
Sími: 456-4580
Kaupfélag Skagfirðinga
Ártorgi 1
Sauðárkrókur
Sími: 455-4500
Bílaleiga Húsavíkur ehf.
Garðarsbraut 66
Húsavík
Sími: 464-2500
Toyota - Varahlutir
Núna er 15% afsláttur af rúðuþurrkum hjá sölu- og þjónustuaðilum Toyota um allt land.
Gildir til 30. júní 2008. Njóttu sumarsins og fegurðar landsins í gegnum hreina framrúðu.
Komdu og skiptu um þurrkur – fyrir ánægjulegri akstur.
Viðurkenndir Toyota varahlutir í alla bíla, alls staðar.
Njóttu útsýnisins í sumar