Fréttablaðið - 13.06.2008, Side 38
13. JÚNÍ 2008 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● suðurland
Á Úlfljótsvatni er útilífsmiðstöð sem skátarnir
eiga og reka. Þar er fullkomin aðstaða fyrir tjald-
stæðisgesti, samkomusalir og afþreying.
Útileguaðstaðan á Úlfljótsvatni var upphaflega
byggð í kringum skátana sem eiga og reka staðinn. Á
seinni árum hefur hún verið stórlega bætt og opnuð
almenningi, einstaklingum og fjölskyldum sem leið
eiga um og líka stærri hópum.
Hreiðar Oddsson er eðalskáti og öllum hnútum
kunnugur á staðnum. „Sumir sem hingað koma vilja
bara nota tjaldsvæðið og njóta útiverunnar eins og
gengur. Aðrir þurfa aðstöðu fyrir hópa þar sem allir
geta setið saman, til dæmis ef um ættarmót eða fyr-
irtækishópa er að ræða. Við erum með stórt hús sem
við köllum Strýtu sem tekið var í notkun 2005. Þar
er 300 fermetra salur, ókyntur en með borðum og
bekkjum,“ segir Hreiðar.
Hann bætir við að einstaklingar á staðnum séu
sérþjálfaðir í hópeflisvinnu ef áhugi sé fyrir henni.
„Starfið hér er byggt upp af skátum og yfir sumar-
ið erum við með 20 til 30 skáta hér í vinnu á hverjum
degi,“ segir hann og bendir á að talsverðan mann-
skap þurfi í vinnu við sumarbúðir skátanna sem
starfræktar eru allt sumarið, auk þess sem sinna
þurfi flennistóru útisvæði og þrifum á ferðaþjón-
ustuhúsum.
„Við erum með 28 salerni fyrir tjaldgesti og sturtu-
aðstöðu sem fólk getur notað að vild, sér að kostnað-
arlausu. Í sumar erum við að taka í notkun hús með
þvottavélum og þurrkara. Þar er líka lítill salur ef
fólk þarf að komast inn vegna veðurs eða annars.
Núna áðan kom til dæmis helliskúr!“
Meðal þess sem una má sér við á Úlfljótsvatni er að
sigla því skátarnir eru með bátaleigu. Hreiðar segir
líka töluverða veiði í vatninu og að veiðileyfi fylgi
með í tjaldstæðagjaldinu svo hægt sé að vera á bakk-
anum og dorga.
Klifurturn og vatnsþrautabraut eru meðal afþrey-
ingartækja fyrir unglinga og eldri og nú er verið að
bæta við leiktækjum fyrir yngstu börnin, að sögn
Hreiðars. En eru engin skátamót framundan á svæð-
inu?
„Jú, við erum með mót núna um helgina fyrir yngstu
skáta landsins, sem eru 8 til 9 ára,“ svarar Hreiðar
og segir langt frá því að tölvuleikirnir hafi gengið að
skátahreyfingunni dauðri. „Hingað koma börn aftur
og aftur,“ segir hann. „Við finnum vel að þau eru
fegin að losna undan tölvunni og því áreiti sem henni
fylgir og komast út í náttúruna að leika sér.“ - gun
Hreiðar er forstöðumaður sumarbúða skáta á Úlfljótsvatni og
þekkir líka vel til starfsemi Útilífsmiðstöðvarinnar.
MYNDIR/BALDUR ÁRNASON
Gaman að bregða sér í róður út á vatnið þegar veður er gott.
Tjaldsvæðið er eitt hið fullkomnasta á landinu.
Alltaf fjör á Úlfljótsvatni
Ferðaþjónustan Útihlíð rekur
flottan níu holu, par 35 golfvöll í
Útihlíð, sem hannaður er af Gísla
Sigurðssyni, fyrrverandi lands-
liðsmanni í flokki öldunga í golfi.
Golfvöllurinn, sem kallast
Úthlíðar völlur, er hafður opinn frá
seinni hluta maímánaðar og fram
á haust eins lengi og veður leyfir.
Hann hentar bæði vönum og óvön-
um spilurum, en algengt er að fyr-
irtæki og stofnanir haldi þar golf-
mót. Hópar geta fengið tilboð í
golfmót og grillveislu á svæðinu.
Þá geta þeir sem eru í sumarhús-
um í Úthlíð leigt vikukort á golf-
völlinn. Þar er æfingarsvæði þar
sem hægt er að æfa sveifluna, auk
þess sem golfkennsla er í boði.
Vallargjöldin eru greidd á veit-
ingastaðnum Réttinni eða í Hlíðar-
laug. Ef þar er lokað er völlurinn
einnig lokaður öllum nema með-
limum Golfklúbbs Útihlíðar. Alls
kyns golfvörur fást í Réttinni, svo
sem kúlur og tí, og hægt að leigja
golfsett, kerrur og golfbíla. - mmr
Stutt úr bústaðnum á golfvöllinn
Kylfingar ræða málin við eina hindrunina á vellinum í Úthlíð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ferðaþjónustan Völlum opnaði nýlega gistihús í Mýrdalshreppi sem
verður opið allt árið um kring.
Gistihúsið er við Pétursey go tekur tuttugu manns í rúm . Hægt
er að velja á milli tveggja og þriggja manna herbergja með sér-
snyrtingu eða sameiginlegri. Matsalur er í gistihúsinu þar sem
boðið er upp á morgunverðar- og kvöldverðarhlaðborð. „Það er líka
alltaf hægt að kíkja til okkar í kaffisopa,“ segir forstöðukonan, Sig-
urbjörg Gyða Tracy, sem á og rekur gistihúsið ásamt eiginmanni
sínum, Einari Einarssyni.
Húsnæðið sem gistiheimilið er í var upphaflega útihús sem hjón-
in byggðu 1986, en ákváðu að breyta og nýta sem gistihús. „Síðasta
haust byggðum við svo sjálfstæða einingu við húsið sem nú er mat-
salur, eldhús og móttaka,“ segir Sigurbjörg.
Eitt og hálft ár tók að koma gistiheimilinu á fót en við hönnun
þess fengu hjónin hjálp úr óvæntri átt. „Hjá okkur var þýskur ljós-
myndari sem heyrði af þessari hugmynd okkar að opna gistihús.
Honum leist svo vel á að hann hafði samband við vin sinn sem er
arkitekt. Sá kom frá Þýskalandi til Íslands til að hjálpa við undir-
búning og bjó hjá okkur í viku. Við unnum úr hugmyndum okkar í
sameiningu og hann gaf okkur alla vinnu sína og teikningar,“ segir
Sigurbjörg.
Hjónin þekkja vel til ferðaiðnaðarins, þar sem þau hafa leigt út
tvö sumarhús á svæðinu frá árinu 2000 og gera enn. Fimm manns
geta gist í hvoru húsi og er þeim boðið upp á sams konar þjónustu
og í gistihúsinu. „Hægt er að fá uppbúin rúm, þrif, kvöld- og morg-
unverð. Við viljum gera þetta eins þægilegt og hægt er fyrir gesti,“
segir Sigurbjörg og bætir við að þau hafi ákveðið að stækka við sig
vegna aukinnar eftirspurnar, en mikill straumur íslenskra og er-
lenda ferðamanna hefur verið til þeirra undanfarin ár. Enda mikil
náttúrufegurð og nóga afþreyingu að hafa og má þar meðal annars
nefna hestaleigu sem hjónin reka samhliða gistihúsinu. - kka
Ferðamaður teiknaði húsið
Gistiheimilið er við Pétursey í Mýrdal.
Ferða-, menningar- og æskulýðsnefnd Hrunamannahrepps verð-
ur með skemmtilegar og fróðlegar gönguferðir í sumar. Yfirleitt
er ekki nauðsynlegt að panta pláss og ókeypis er í ferðirnar. Þetta
er sjöunda sumarið sem boðið er upp á þær og reynt er að höfða til
sem flestra með því að hafa þær langar og stuttar, erfiðar og létt-
ar.
Í öllum ferðum er fólki boðið upp á að skoða markverða staði og
eru það yfirleitt heimamenn sem leiða gesti um svæðið. Sem dæmi
má nefna ferð sem farin verður 10. júlí klukkan 20. Lagt verður af
stað frá kirkjustaðnum Hruna og þaðan farið að Hrunalaug. Geng-
ið á Galtafell, en þaðan er útsýni mikið ef veður er gott. Þá er hald-
ið eftir fellinu og fundin niðurganga austan megin þar sem Stóra-
Laxá rennur. Stuðlabergið í Hólahnjúkum verður skoðað og endað
við kirkjuna í Hrepphólum. Áætlaður göngutími eru fjórar klukku-
stundir og fararstjóri séra Eiríkur Jóhannsson prestur í Hruna.
Einnig er hægt að fara á eigin vegum og þá eru merktar göngu-
leiðir til dæmis á Miðfell og Högnastaðaás en einnig eru skemmti-
legar leiðir á Skipholtsfjall og Langholt.
Nánari upplýsingar um ferðirnar er hægt að nálgast á slóðinni
www.fludir.is. -stp
Hreyfing í Hrunamannahreppi
Ferða-, menningar- og æskulýðsnefnd Hrunamannahrepps býður meðal
annars upp á dagsgöngu um Stóru-Laxárgljúfur, sem er eina ferðin á þeirra
vegum sem þarf að panta í. MYND/MAGGA S. BRYNJÓLFSDÓTTIR