Fréttablaðið - 15.06.2008, Page 66
26 15. júní 2008 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Eyjamaðurinn Hlynur Sigmarsson lýsti því yfir að hann væri hættur
afskiptum af handbolta í kjölfar þess að hann tapaði í formanns-
kjöri á ársþingi HSÍ í miðjum maí. Hlynur er kraftmikill maður
með eindæmum; lyfti grettistaki í málefnum handboltans í
Vestmannaeyjum og hleypti síðan miklu lífi í íslenska hand-
boltann síðasta vetur með vefsíðu sinni, handbolti.is.
Handknattleiksmenn og unnendur handbolta tóku
þeim tíðindum að Hlynur ætlaði að hætta afskiptum
af handbolta illa og stofnaður var undirskriftalisti á
netinu þar sem hann var hvattur til þess að halda
áfram sínu góða starfi í þágu handboltans. Yfir 400
manns skrifuðu nafn sitt á listann og þar á meðal
margir leikmenn og þjálfarar.
„Það var mjög ánægjulegt að sjá og finna fyrir þessum
stuðningi sem ég er mjög þakklátur fyrir. Ég elska hand-
bolta. Það hefur ekkert breyst og mun aldrei breytast
og þessi stuðningur letur mann ekki. Ég hef samt enga
ákvörðun tekið um framhaldið,“ sagði Hlynur í blíðunni
í Eyjum en komu þessi sterku viðbrögð honum á óvart?
„Bæði og. Ég vissi að margir í grasrótinni voru ánægðir með mig
og mín störf. Því miður náði stuðningurinn ekki til æðstu stjórn-
enda handboltans á Íslandi og það er að gera útslagið í þessu.
Ég hef ekkert heyrt frá þeim og engin viðbrögð fengið varðandi
síðuna mína. Ég hef sent HSÍ tvo tölvupósta varðandi það mál og
var að vonast til að þeir myndu nýta meðbyr síðunnar og
koma því máli í einhvern farveg en mér er ekki einu sinni
svarað,“ sagði Hlynur, sem vill ekki sjá að síðan góða deyi
drottni sínum eftir aðeins einn vetur.
„Mér finnst sorglegt að eftir öll mín ár í handboltanum
hef ég aldrei fengið neinar viðurkenningar né peninga frá
HSÍ. Mér finnst algjört lágmark að menn séu kvaddir eftir
gott starf í hreyfingunni og þeim þakkað fyrir samstarfið,“
sagði Hlynur, sem neitar því ekki að vera svolítið bitur. „Já,
ég get ekki leynt því enda taldi ég mig hafa gert margt gott
og ekki eiga svona framkomu skilið. Ég tel að menn eigi að
virða skoðanir hvers annars, geta talað um þær og síðan
skilið sáttir. Ákveðinn hópur manna er ekki á því máli og
það bitnar á hag handboltans og það finnst mér dapurt.“
HLYNUR SIGMARSSON: YFIR 400 MANNS SKORUÐU Á HANN AÐ HALDA ÁFRAM AÐ VINNA FYRIR HANDBOLTANN
Ég elska handbolta og það hefur ekkert breyst
HANDBOLTI Karlalandsliðið í hand-
bolta hélt blaðamannafund á
fimmtudag. Það var ákveðin kald-
hæðni í því að halda fundinn á hót-
eli enda strákarnir eflaust löngu
komnir með leið á þeim eftir langa
og stranga törn undanfarið.
Eftir ólympíuævintýrið er
undan keppni HM nú tekin við.
Ísland tapaði 34-26 fyrir Make-
dóníu ytra og þarf því að vinna
með í það minnsta átta mörkum í
síðari leiknum á morgun til að
komast á HM í Króatíu. Níu marka
sigur tryggir Ísland áfram.
„Mér leið líkamlega mjög vel en
það var svakaleg andleg þreyta í
okkur. Við vorum búnir að vera í
löngum törnum, í einhverjum
smábæ í Póllandi, svo í Magde-
burg og loks í Skopje. Það er ekki
eins og þetta hafi verið Barcelona,
London, Róm og París. Þetta var
mikil hótelseta og mikið af vond-
um hótelmat. Á fimmtudeginum í
Magdeburg, síðustu æfingunni
þar, fann maður fyrst fyrir því að
ekkert gekk upp og andinn var
ekki nógu góður,“ sagði Guðjón en
greinilegt er að leikmenn liðsins
eru mjög ósáttir með tapið úti.
„Það er leiðinlegt að þetta hafi
komið fyrir en það eru enn allir
möguleikar opnir. Við erum með
mun betra lið en þeir og úrslitin
líta illa út. Ég hef einu sinni orðið
Evrópmeistari svona, við töpuðum
með átta mörkum á útivelli en
unnum svo heimaleikinn með níu.
Ég veit því að þetta er vel hægt af
eigin reynslu,“ sagði Guðjón
Valur.
Ólafur Stefánsson játti því að
það væri gott að vera kominn heim
eftir langt ferðalag og dæsti um
leið og hann fékk sér vænan sopa
af íslensku kranavatni. „Það hefði
reyndar verið skemmtilegra ef
við hefðum unnið vinnuna okkar
almennilega þarna úti. Ólympíu-
leikarnir voru auðvitað frábærir
og tímabilið var gott hjá mér og ég
var því mjög glaður þangað til á
sunnudaginn,“ sagði Ólafur.
„Það stráir salti í tilveruna en
þetta er bara fyrri hálfleikur og
við fáum annað tækifæri. Við
þurfum að nýta það. Við ætlum að
bæta upp fyrir þetta. Vonin er
vissulega fyrir hendi. Átta mörk
er eins og 2-0 í fótbolta og við þurf-
um því að vinna 3-0,“ sagði Ólafur
og hélt áfram:
„Við þurfum að sýna úr hverju
við erum gerðir, sérstaklega
varnar lega, og láta þá finna fyrir
krafti sem þeir hafa ekki fundið
fyrir áður. Við þurfum að ná hraða-
upphlaupunum í gang enda erum
við hraðasta þjóð í heimi þegar við
náum þeim upp. Það er engin
ástæða til annars en að vera bara
„crazy“ á sunnudaginn og skilja
eftir einhverja blóðpolla á gólf-
inu,“ sagði fyrirliðinn. Hann seg-
ist þó ekki vera ýkja bjartsýnn
fyrir leikinn.
„Ég er aldrei mjög bjartsýnn.
Ég er frekar svartsýnn ef eitthvað
er. Það hjálpar mér. Ég var ekki
nógu sáttur við sjálfan mig í fyrri
leiknum, það var bara einhver
annar gaur þarna á vellinum. Ég
var allt í einu í einhverju egó-
trippi. Ég skaut allt of mikið og
veit bara ekki hvað gerðist. Ég á
því fullt inni og ætla að leyfa þessu
að koma aðeins til mín og hjálpa
líka öðrum að spila vel.“
Guðjón Valur kallar eftir stuðn-
ingi áhorfenda. „Við þurfum að
endurvekja þjóðhátíðarstemmn-
inguna hérna. Það skiptir miklu
máli að fólk mæti snemma og
verði tryllt alveg frá því langt
fyrir leik. Við þurfum að láta þeim
líða illa. Þegar við hlupum inn í
höllina úti þá var baulað á okkur,
sem eru reyndar aðstæður sem ég
kann hvað best við,“ sagði Guðjón
og glotti. „Þetta er ákveðin sál-
fræði og gæti byggt upp ákveðið
vonleysi hjá þeim ef þeir byrja
illa. Það er gríðarlega mikilvægt
að fá þennan mikla stuðning og 17.
júní-lögin mega meira að segja
vera þarna,“ sagði Guðjón.
hjalti@frettabladid.is
Skiljum blóðpolla eftir á gólfinu
Það er hugur í strákunum okkar. Þeir þurfa að vinna upp átta marka forskot gegn Makedóníu á sunnudag
en hafa tröllatrú á verkefninu. Hvað sem andlegri þreytu líður ætla þeir sér að komast á HM í Króatíu.
ERFITT VERKEFNI Ísland mætir Makedóníumönnum á sunnudag sem gáfu okkar mönnum engan grið ytra. Hér sést Ólafur
Stefánsson tekinn föstum tökum í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
HANDBOLTI Makedónía hefur aldrei
verið í betri stöðu til að tryggja
sér sæti á stórmóti í handbolta en
einmitt nú eftir átta marka sigur
á Íslandi í fyrri umspilsleik þjóð-
anna í Skopje um síðustu helgi.
Von íslenska liðsins liggur aftur
á móti í því að það hefur verið
mikill munur á frammistöðu
Makedóníu á heimavelli og úti-
velli í umspilsleikjum sínum
undan farin ár.
Í síðustu níu umspilum hafa
Makedónar verið átta sinnum
með og aldrei komist áfram. Þeir
hafa spilað átta heimaleiki og níu
útileiki í þessum umspilum þar
sem þeir seldu Íslendingum
heimaleikinn í undankeppni EM
2000.
Makedónar hafa unnið fjóra af
þessum átta heimaleikjum og
markatalan í þeim er hagstæð
upp á 9 mörk. Makedónar hafa
hinsvegar tapað öllum níu úti-
leikjum sínum með samtals 69
mörkum eða 7,7 mörkum að með-
altali.
Minnsta útitapið kom einmitt
gegn Íslandi í umræddu umpsili
fyrir EM 2000 en Ísland vann þá
fyrri leikinn með aðeins einu
marki en hann var skráður sem
heimaleikur Makedóníu. Íslenska
liðið vann síðan seinni leikinn
með 16 marka mun.
Minnsta tap Makedóna á úti-
velli í hinum leikjunum átta var
fjögurra marka tap á móti Ung-
verjum í undankeppni EM 2004
en Makedónar höfðu unnið fyrri
leikinn með tveimur mörkum.
Mesta sveiflan var á milli leikja
Makedóna og Ísraela í umspili
fyrir EM 2002. Ísraelar unnu
heimaleikinn sinn með 10 mörk-
um en töpuðu síðan með 6 marka
mun í Skopje. - óój
MAKEDÓNAR Í UMSPILUM
FYRIR STÓRMÓT
EM 2008 Slóvenía
Heimaleikur -1 Útileikur: -5
EM 2006 Ungverjaland
Heimaleikur -3 Útileikur: -11
HM 2005 Serbía
Heimaleikur -1 Útileikur: -8
EM 2004 Ungverjaland
Heimaleikur +2 Útileikur: -4
HM 2003 Ísland
Heimaleikur -5 Útileikur: -5
EM 2002 Ísrael
Heimaleikur +6 Útileikur: -10
HM 2001 Ísland
Heimaleikur (úti) -1 Útileikur: -16
EM 2000 Ísland
Heimaleikur (úti) +3 Útileikur: -9
Frammistaða Makedóníu í umspilsleikjum sínum undanfarin ár gefur íslenska landsliðinu von á sunnudag:
Makedónía tapar úti með 7,7 mörkum að meðaltali
SLAKIR Á ÚTIVELLI Kiri Lazar-
ov og félagar eru allt annað
lið á útivelli en á heimavelli
FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
> Íslandsmet hjá Erlu Dögg
Sundkonan magnaða Erla Dögg Haraldsdóttir er í flottu
formi þessa dagana en í gær bætti hún 16 ára gam-
alt Íslandsmet Ragnheiðar Runólfsdóttur í 200 metra
bringusundi á móti í Frakklandi. Erla
Dögg synti á 2:39,46 mínútum, sem
er langt undir Ólympíulágmarki. Erla
Dögg mun því keppa í að minnsta
kosti þrem greinum í Peking en áður
hafði hún náð Ólympíulágmarki í
200 metra fjórsundi og 100 metra
bringusundi.
FÓTBOLTI Portúgalski miðjumaður-
inn Deco er að öllum líkindum á
leið með landsliðsþjálfaranum
sínum, Luiz Felipe Scolari, til
Chelsea að því er BBC-fréttastof-
an greindi frá í gær, en þeir telja
sig hafa heimildir fyrir þessu.
Deco neitaði þessum tíðindum í
spjalli við spænska blaðið El
Mundo Deportivo. BBC segir að
Deco hafi fengið frí hjá Scolari á
fimmtudaginn sem hann hafi nýtt
til þess að ræða við Roman
Abramovich, eiganda Chelsea.
Barcelona hefur gefið Deco
leyfi til þess að tala við önnur
félög og BBC segir Deco vera
spenntari fyrir því að fara til
Chelsea en að fara til Inter þar
sem hans gamli stjóri, José
Mourinho, er orðinn þjálfari.
Svo er það einnig að frétta af
Chelsea að Didier Drogba segist
ekki vera á förum frá félaginu en
fastlega var búist við því að hann
myndi hverfa á braut og tippuðu
flestir á að hann myndi endurnýja
kynnin við Mourinho í Mílanó.
„Ég er með samning við
Chelsea til ársins 2010 og er enn
leikmaður Chelsea. Ég gleðst með
Mourinho því ég veit að hann
saknaði þess að þjálfa en eins og
ég sagði þá er ég með samning til
2010,“ sagði Drogba.
- hbg
Chelsea að fá liðsstyrk:
Deco líklega til
Chelsea
DECO Er talinn hafa hitt Abramovich
síðasta fimmtudag.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES