Fréttablaðið - 15.06.2008, Síða 70
30 15. júní 2008 SUNNUDAGUR
HVAÐ SEGIR MAMMA?
„Ég er eðlilega mjög stolt af
þessari nýju plötu hans og öllu
sem hann hefur verið að gera. Ég
spurði hann: „Og hvað spurðirðu
mömmu?“ – „Æ það var nú svo
margt.“ Ég hef fylgst með honum
frá því að hann byrjaði og reynt
að fara á alla tónleika. Það er
sko ekki leiðinlegt þegar maður
er á tónlistarverðlaunum og tveir
synir manns fá verðlaun.“
Gróa Hreinsdóttir, móðir Sigurðar
Guðmundssonar, sem gaf út plötuna Oft
spurði ég mömmu á dögunum.
Hvað er að frétta?
Það er bara allt mjög gott að
frétta.
Augnlitur: Blár/grár, liturinn
breytist eftir því hvernig
skapi ég er í.
Starf: Auglýsingaleikstjóri.
Fjölskylduhagir: Ég er
í sambúð og með lítinn
hryðjuverkamann á leiðinni í
lok sumars.
Ertu hjátrúarfullur?
Á vissan hátt, já. Ég á til
dæmis húfu sem ég ferðast
alltaf með þó svo að ég noti
hana aldrei. Þessi húfa hangir
alltaf á handfarangrinum
mínum og er orðin ansi skítug
og ljót eftir öll ferðalögin.
Uppáhaldsmatur:
Allt sem menningar-
klúbburinn Matur og Massi
eldar finnst mér gott.
Fallegasti staðurinn:
Toppurinn á Snæfellsjökli
þegar það er sól.
iPod eða geislaspilari: iPod.
Helsti veikleiki:
Mamma mín mundi segja að
minn helsti veikleiki sé að
ég kunni ekki að fara með
peninga.
Helsti kostur:
Ég bý til mjög góða berna-
ise-sósu.
Helsta afrek: Ætli það sé
ekki tilvonandi sonur minn.
Hver er draumurinn?
Að taka titilinn Best klæddi
maður ársins af Jóhanni
Meunier næsta ár.
Hver er fyndnastur/
fyndnust?
Ísey Sævarsdóttir, litla systir
mín.
Hvað fer mest í taugarnar
á þér?
Leiðinlegt fólk fer í taugarnar
á mér.
Hvað er mikil-
vægast?
Ást og ham-
ingja.
HIN HLIÐIN ÞÓRHALLUR HELGI SÆVARSSON AUGLÝSINGALEIKSTJÓRI
Býr til mjög góða bernaise-sósu
Þegar veðrið leikur við landann
og sólin er sem hæst á lofti fyllast
ísbúðir bæjarins af fólki. Fjöl-
margar ísbúðir eru víðsvegar um
bæinn og því getur verið úr vöndu
að ráða þegar kemur að því að
velja besta ísinn. Fréttablaðið fór
á stúfana og fékk með sér álits-
gjafana Jóhann G. Jóhannsson
leikara, Ernu Hrönn Ólafsdóttur
söngkonu og Emilíu Benediktu
Gísladóttur dansara til að taka út
hefðbundinn vanilluís úr vél í
nokkrum af helstu ísbúðum bæjar-
ins og gefa honum einkunn frá
einum upp í fimm. Besti ísinn
reyndist vera í Ísbúð Vestur-
bæjar.
Ísbúðin Erluís, Fákafeni 9
Rúmgóð búð þar sem hægt er að
sitja á háum stólum við gluggana
eða við lægri borð fyrir börnin.
Vinsælast: Ís í brauðformi, bragða-
refur fyrir unglingana og trúðaís
fyrir börnin.
Nýjungar: Hægt að fá ís án við-
bætts sykurs.
Verð: Lítill ís í brauðformi 160
krónur.
Álitsgjafarnir sögðu um hefð-
bundna ísinn: „mjúkur ís, ekki of
sætur.“ „Hentar þeim sem vilja
mikið rjómabragð.“ „Kjörísinn er
alltaf góður.“
Einkunn: 3,5
Ísbúðin í Álfheimum
Gefur sig út fyrir að vera með
landsins mesta úrval af ís og
býður meðal annars upp á ekta
ítalskan kúluís að hætti eigand-
ans, sem lærði ísgerð á Ítalíu.
Vinsælast: Bragðarefur og frost-
bræðingur, þar sem ís og ýmsu
góðgæti er hrært saman á fros-
inni marmaraplötu.
Nýjungar: Ískaldi ísinn sem inni-
heldur aðeins 2,9 prósent fitu,
fjórar tegundir af jógúrtís og
frostbræðingurinn.
Verð: Lítill ís í brauðformi 200
krónur.
Álitsgjafarnir sögðu um hefð-
bundna ísinn: „Mjög hlutlaus og
bragðlítill.“ „Sérstakt eftirbragð.“
„Aðeins of sætur.“
Einkunn: 1,5
Álitsgjafarnir sögðu um „ískalda
ísinn“: „Mjög góður.“ „Líkur
Brynjuís en nær ekki sama norð-
lenska bragðinu.“ „Of mikið frost
í honum.“
Einkunn: 3
Ísbúð Vesturbæjar
Lítil ísbúð sem hefur fest sig í
sessi og hefur nú opnað útibú á
Grensásvegi 50.
Vinsælast: „Gamli ísinn“ í brauð-
formi og bragðarefir.
Nýjungar: Engar sérstakar.
Verð: Lítill ís í brauðformi 170
krónur.
Álitsgjafarnir sögðu um „nýja
ísinn“: „Léttur og mjúkur.“
„Fínasta eftirbragð.“ „Passlega
mikið rjómabragð en jafnast ekki
á við gamla ísinn.“
Einkunn: 3
Álitsgjafarnir sögðu um „gamla
ísinn“: „Skemmtilega þéttur, með
gott mjólkurbragð.“ „Gæti borðað
hann í lítratali.“ „Besti ísinn í
bænum.“ „Ég biði í röð eftir þess-
um.“
Einkunn: 5
Ísbúðin Ingólfstorgi
Mjög lítil ísbúð þar sem afgreitt
er í gegnum lúgu í hjarta
miðbæjar ins.
Vinsælast: Ís í brauðformi og
bragðarefur.
Nýjungar: Jógúrtís sem er fitu-
og sykurminni.
Verð: Lítill ís í brauðformi 190
krónur.
Álitsgjafarnir sögðu um hefð-
bundna ísinn: „Mjög girnilegur að
sjá en of mikið rjómabragð.“
„Varð fyrir vonbrigðum.“ „Of
sætur og vont eftirbragð.“
Einkunn: 0,5
Álitsgjafarnir sögðu um jógúrtís-
inn: „Alls ekki að gera sig.“
„Versti ís sem ég hef smakkað á
ævinni.“ „Hvers konar bragð er
þetta?“
Einkunn: 0
JÓI, ERNA HRÖNN OG EMILÍA: ÍSINN BRAGÐAST VEL Á SUMRIN
Besti ísinn er í vesturbænum
LÍTILL ÍS Í BRAUÐFORMI Hefðbundinn
vanilluís úr vél reyndist vera mjög mis-
munandi milli ísbúða.
ÁLITSGJAFARNIR Í GÓÐUM GÍR Jóhann, Erna og Emilía smökkuðu ís í fjórum af helstu ísbúðum bæjarins og gáfu honum ein-
kunn. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
„Upphaflega ætlaði ég aðeins að
vera viku í Rio de Janeiro en ég
varð svo heilluð af borginni að ég
ákvað að vera lengur,“ segir Anna
Smáradóttir, sem vann í þrjá mán-
uði sem enskukennari í einu af
fátækrahverfum Rio de Janeiro í
Brasilíu. Spurð hvernig hún hafi
fengið starfið segir hún: „Maður
sem ég þekki kom mér í samband
við konuna sem rekur skólann.
Þetta var sjálfboðaliðastarf á
vegum nýrra samtaka sem kallast
Favela Reszetiva og ég var fyrst
til að taka að mér kennarastarfið.“
Anna segir að menntakerfið í
Brasilíu sé mjög slæmt og að hún
hafi heyrt af enskukennurum sem
tali litla sem enga ensku. Í bekkn-
um sem Anna kenndi var fólk á
öllum aldri, allt frá börnum til full-
orðinna, og margir bjuggu við
mjög bág kjör. „Kennslan gekk
mjög vel þrátt fyrir takmarkaða
kunnáttu í portúgölsku. Ég þýddi
kennsluefnið yfir á portúgölsku
fyrir hverja kennslustund og var
því vel undirbúin fyrir tímana.
Annars held ég að það sé ekki endi-
lega nauðsynlegt að kunna tungu-
mál heimamanna til að geta kennt
ensku. Brasilíumenn eru hálfgerð
letiblóð og vilja fyrst og fremst
hafa gaman af kennslunni, oft end-
aði ég á því að leika hluti og dýr
fyrir bekkinn og reyndist það mjög
vel,“ segir Anna.
Eftir dvölina í Rio segist Anna
sjá eftir því hversu áhugalaus
námsmaður hún var á yngri árum.
„Það eru forréttindi að geta gengið
að góðri menntun vísri eins og við
gerum hér á Íslandi,“ segir hún. „Í
Brasilíu verða menn að greiða
háar fjárhæðir vilji þeir hljóta
sæmilega menntun og það er alls
ekki á allra færi. Þess vegna eru
samtök eins og Favela Reszetiva
mikilvæg.“
Á næsta ári hyggst Anna snúa
aftur til Brasilíu og taka þar Celta-
námskeið sem veitir henni alþjóð-
leg kennsluréttindi í ensku. „Ég er
strax byrjuð að safna mér fyrir
flugmiðanum út,“ segir Anna að
lokum. - sm
Kenndi ensku í fátækrahverfi í Brasilíu
FÁTÆKRAHVERFI Í RIO DE JANEIRO
Fólk býr víða við mikla fátækt í borginni.
ANNA SMÁRADÓTTIR Er byrjuð að safna
fyrir næstu ferð út. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Félag Kráareigenda hélt
fund á miðvikudag um
hvernig skuli bregð-
ast við þeim tíðind-
um að Ölstofunni
og Vegamótum
er gert að
loka klukkan
þrjú um helgar en ekki hálf sex.
Meðal hugmynda er að vera ekki
með kaffisölu á 17. júní sem og
að athuga hvort samstaða náist
meðal veitingastaðaeigenda um að
loka allir klukkan þrjú um helgar.
En Kormákur Geirharðsson og
félagar meðal verta segja að svo
virðist sem menn séu búnir að
steingleyma því hvers vegna opn-
unartími var rýmkaður.
Geirfuglar, sú gáskafulla og ágæta
hljómsveit sem leikarinn Halldór
Gylfason fer meðal annars fyrir,
stefndi að því að vera með útgáfu-
tónleika að kvöldi mánudags. Ný
plata frá þeim ber heitið Árni Berg-
mann og feta þeir með nafngiftinni
í fótspor Mínus sem gaf út plötuna
Halldór Laxness. Útgáfutónleikunum
hefur nú verið frestað en kona Árna
Bergmann, Lena Berg-
mann, lést nýverið og
verður jarðsungin í vik-
unni. Hinum tillitssömu
Geirfuglum þótti
ekki við hæfi að
fagna útgáfu plötu
sinnar í sömu viku
og það er. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VELJUM LÍFIÐ
22.10.1979
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Írar.
2. Jutta Urpilainen.
3. 28. apríl.