Fréttablaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 66
26 22. júní 2008 SUNNUDAGUR É g hitti Renzo Gracie í húsakynnum Mjölnis. Hann var þá nýkom- inn úr Bláa lóninu og lét vel af. Hann hélt námskeið helgina 14.-15. júní fyrir iðkendur í Mjölni þar sem færri komust að en vildu. Renzo var boðið til Íslands í gegnum Royal Group, fyrirtækjasamstæðu þrjátíu fyrir tækja í Abu Dhabi, næsts- tærstu borg Sameinuðu arabísku furstadæmanna (SAF) á eftir Dubai. Stjórnendur Royal Group hafa mikinn áhuga á Íslandi og þreifa fyrir sér hér á landi upp á samstarf. Maðurinn á bak við Royal Group er Sheikh Tahnoon Bin Zayed Al Nahyan, krónprins Abu Dhabi. Renzo hefur verið einka- kennari frá árinu 1993. Bróðir Tahoons er Sheikh Khalifa Zayed Al Nahyan, forseti SAF. Þeir bræður eru synir Zayeds bin Sultan Al Nahyan sem er arki- tektinn á bak við SAF; hann stýrði landinu í tuttugu ár og er enn þjóðhetja. Fimm ára á æfingar hjá afa En nóg um það. Renzo fæddist í Rio de Janeiro í Brasilíu árið 1967. Fjölskylda hans var engin venju- leg fjölskylda. Hann er af þriðju kynslóð bardagamanna en Gracie- fjölskyldan er sú virtasta innan bardagaheimsins. Afi hans, Carlos, fann upp brasilískt jiu-jitsu ásamt bróður sínum, Hélio. „Ég reyndi að sýna einhverja sambatakta í fótbolta en ég gat ekki neitt,“ segir Renzo glaðbeittur en afi hans og faðir byrjuðu að kenna honum að berjast þegar hann var fimm ára gamall. „Afi minn lærði hina upprunalegu íþrótt jiu-jitsu af Japönum og útfærði hana á sinn hátt. Hann skapaði því brasilískt jiu-jitsu sem ég er mjög stoltur af.“ „Ég ólst ekki upp í hörðu hverfi en fjölskyldan mín er stútfull af bardagamönnum. Ég ákvað því strax að halda heiðri fjölskyldu minnar á lofti. Þetta er lífsstíllinn minn,“ segir Renzo sem reyndar gerðist atvinnumaður á brimbrett- um í skamman tíma. Hann gerðist síðan atvinnumaður í bardaga- íþróttum og vann fjölda titla. Helgar sig íþróttinni „Ég ákvað að helga mig íþróttinni algjörlega. Ég er ánægður með að vinnan mín er nokkuð sem ég hef unun af. Þetta er reyndar ekki eins og vinna fyrir mér, þetta er bara ánægja. Að fá að lifa inni í þessu,“ sagði Renzo, sem fór í háskóla en hætti þá skólagöngunni. Renzo hefur keppt í brasilísku jiu-jitsu og í blönduðum bardaga- íþróttum (MMA, Mixed Martial Arts) og náð framúrskarandi árangri í báðum greinum. Vin- sældir MMA náðu nýjum hæðum þegar UFC-samtökin (Ultimate Fighting Championship) hófu keppni til að skera úr um hvaða bardagalist, þar sem vopn koma ekki við sögu, væri best. Einn af stofnendum UFC var Rorion Gracie, náfrændi Renzos. Áður fyrr voru reglur í keppn- um á vegum UFC ekki strangar og ljót meiðsli voru tíð. Í dag hafa reglurnar verið hertar þrátt fyrir að harkan sé enn gríðarleg. Renzo er með sitt eigið lið sem keppir í IFL-deildinni (International Fighting League). Það er fyrsta deildin í MMA-heiminum en hún var stofnuð árið 2006. Lið Gracies kallast nú The Gracie Academy en hét áður New York Pitbulls. Lið hans varð meistari á síðasta ári og fór það í gegnum tímabilið án þess að tapa bardaga. Ört stækkandi skóli Gracie býr nú í New York þar sem hann starfrækir samnefnd- an skóla, The Gracie Academy. „Ég hef alltaf kunnað vel við New York. Hún hefur þann eigin- leika að fagna öllum, þarna er fólk af nær öllu þjóðerni. Ég gat fundið Brasilíumenn, brasilískan mat og slíkt,“ segir Renzo, sem stofnaði skólann fyrir tólf árum. Skólinn fer ört stækkandi og æfingaaðstaðan er glæsileg. Í henni æfa 950 manns og eru fjórtán tímar starfræktir á hverj- um degi. Skólinn er í 3.000 fer- metra húsnæði sem Renzo von- ast til að stækka fljótlega til að geta komið allt að 1.500 manns fyrir. Hann stefnir jafnframt á að opna fjóra nýja skóla í New York og nágrenni á næstu árum. „Skólinn hefur stækkað ótrúlega hratt. Við byrjuðum með um fjörutíu manns en höfum heldur betur hækkað töluna. Hann stækkar með hverjum deginum,“ segir Renzo. Því eldri, því betri MMA er líf hans og sál en grunnur þess er brasilískt jiu-jitsu, að mati Renzos. „Ef þú kannt ekki BJJ, þá skaltu ekki keppa í MMA, þá taparðu bara,“ segir hann eins og hann sé að gefa blaðamanni föður- leg ráð. „Íþróttin er gríðarvinsæl. Þetta er í sjónvarpinu allan sólar- hringinn í Bandaríkjunum og iðkendum fjölgar stöðugt. Á heimsmeistaramóti í Kaliforníu um daginn kepptu yfir 1.500 manns,“ segir kappinn en yfir milljón manna horfðu á fyrsta bar- dagann í IFL-deildinni í sjónvarpi á síðasta ári. Renzo keppir enn, síðast snemma árs 2007, en stefnir á bar- daga á þessu ári. „Ég fer fljótlega að æfa aftur. Þá æfi ég sex daga vikunnar, tvisvar til þrisvar á dag, og fer á sérstakt mataræði,“ segir Renzo, sem orðinn er 41 árs gam- all. Aldurinn er alls ekki farinn að hafa slæm áhrif á kappann. „Ég hef verið að bæta mig frá því ég var fimm ára. Ólíkt mörgum íþróttum, þar sem menn vilja ekki eldast, þá er maður eins og gott vín í þessari íþrótt. Þetta er eins og skák, hugurinn skiptir öllu máli. Eini munurinn er að í skák eru menn ekki að kyrkja hver annan,“ segir Renzo og hlær dátt. Ekkert án íþróttarinnar Hann á konu og þrjú börn sem öll hafa stundað bardagaíþróttir, mis- mikið þó. „Elsta dóttir mín er ekki mikið fyrir þetta. Hún stundaði smá sparkbox en er meira fyrir tísku og slíkt,“ segir hann og brosir. „En yngri tvö börnin eru stórhrifin af þessu og stunda íþróttina af miklum móð. Bak- grunnur í þessari íþrótt jafnast á við hvaða háskólanám sem er, heimspekilega séð. Ég myndi ekki vilja að börnin mín misstu af því að upplifa það að vera á gólfinu og æfa sig.“ Ein besta upplifun Renzos á ferlinum kemur úr þjálfunarhlið- inni. „Að gera meistara úr nem- endum mínum er ótrúleg reynsla,“ segir Renzo, sem lifir fyrir íþrótt- ina. „Þessi íþrótt gefur mér allt sem ég er. Ef þetta verður tekið frá mér verð ég eins og tóm skel. Allt sem ég geri og kann kemur frá íþróttinni. Þetta hefur opnað ýmsar dyr fyrir mér og gert líf mitt afar skemmtilegt og við- burðaríkt. Að vera í kringum fólk- ið sem ég dáist að. Ef ég myndi deyja núna og mætti ráða hvernig líf mitt yrði, myndi ég hafa það nákvæmlega eins og það hefur verið,“ segir Renzo Gracie. Með bardagana í blóðinu ENN FLOTTUR Renzo er 41 árs gamall en formið er enn gott. Hann er reyndar ekki í sínu besta líkamlega ástandi um þessar mundir en ætlar fljótlega að fara að æfa sig fyrir næstu keppni. Ljósmyndari bað hann reyndar um að hífa inn „bumbuna“ fyrir myndatökuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Renzo Gracie er af þriðju kynslóð bardaga- manna. Afi hans fann upp brasilískt jiu-jitsu og heldur Renzo merki fjölskyldu sinnar á lofti. Í viðtali við Hjalta Þór Hreinsson segir Renzo frá uppruna sínum, hefðum og hvernig hann getur líkt bardagaíþrótt sinni við skák. Brasilískt jiu-jitsu Í grófum dráttum gengur brasilískt jiu-jitsu (BJJ) út á að ná yfirburðastöðu á móti andstæðingnum og fá hann svo til að gefast upp með lás, svæfingu eða einhvers konar taki. Dæmi um lás væri að snúa það mikið upp á handlegg andstæðingsins að það valdi sársauka og hann gefist upp, en slíkt er yfirleitt mannúðlegri leið til að yfirbuga árásarmann en til dæmis að brjóta kjálka hans með kýlingu eða sparki. Yfirburðastaða telst þá einhvers konar stelling eða staða þar sem andstæðingurinn getur ekki meitt þig, en þú getur meitt hann eða fengið hann á einhvern hátt til að gefast upp. (Af Mjölnir.is) SIGURSÆLL Renzo fagnar hér einum af lærisveinum sínum. Lið Renzos varð meistari í IFL-deildinni á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ ÖFLUGUR Renzo sést hér berjast árið 2006. Hann hefur unnið fjöldann allan af titlum á litríkri ævi. Á HLIÐARLÍNUNNI Renzo starfrækir eigið lið úr skóla sínum og er að mestu leyti nú á hliðarlínunni í stað þess að vera í bardagahringnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.