Fréttablaðið - 03.07.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
í sumarskapiFIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 Rómantísk afdrepUm landið allt
BLS. 4
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Jóhannes Þorleiksson, verkfræðinemi og
trompet leikari, heldur mikið upp á æfingadans-
skó sem hann fann sér á netinu.
„Ég er búinn að sprikla á þessum skóm salsa, boogie
woogie og lindy hop. Þeir hafa reynst mér ákaflega
vel og gert lífið mitt talsvert auðveldara á dansgólf-
inu,“ segir Jóhannes um eftirlætis fatnaðinn sinn
sem eru æfingadansskór frá merkinu Bloch Sk
eru nokkurra mánaði
þetta er alveg eðlilegt,“ segir Jóhannes hlæjandi en
bætir því við að fatakaup geti stundum orðið erfið.
„Þetta getur verið dálítið pirrandi. Yfirleitt þegar
maður finnur einhverja skó sem eru flottir og manni
líst vel á, þá eru þeir ekki til í stærðinni manns.
Skórnir hér á landi ná oftast upp í 46 þannig að ég er
einu númeri frá.“ Jóhannes kveðst ekki vera mikil
heilt saf f
Létta lífið á dansgólfinu
Forvitnir geta komið og litið á Jóhannes í þessum forláta dansskóm á salsakvöldi á Sólon næstkomandi mánudagskvöld. Dans-
gólfið er opið fyrir alla og hefst með ókeypis byrjendakennslu klukkan átta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GEGNSÆTT Í TÍSKUNóg sést af beru holdi þetta sumarið þar sem hátísku-flíkurnar eru margar hverjar hálfgegnsæjar.
TÍSKA 2
SUMAR Í ELDHÚSINULitríkur borðbúnaður getur svo sannarlega lífgað upp á sumarveislurnar.
HEIMILI 4
ÚTSALA
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
3. júlí 2008 — 179. tölublað — 8. árgangur
Í SUMARSKAPI
Rómantísk afdrep
Sérblaðið Í sumarskapi
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
JÓHANNES ÞORLEIKSSON
Æfingadansskórnir
fundust á netinu
• tíska • heilsa • heimili • bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
FÓLK Mikla og ríkulega mynd-
skreytta umfjöllun er að finna um
Garðar Thor Cortes í nýjasta
tölublaði Hello. Blaðamaður
tímaritsins heimsækir Garðar og
Tinnu Lind
Gunnarsdóttur
á fallegt heimili
þeirra í Surrey
og það kemur
honum á óvart
hversu hógvær
tenórinn
íslenski er þó
kallaður sé
James Bond
óperunnar og að
rödd hans hafi
verið líkt við
sjálfan Pavarotti.
Nokkur heiður er fyrir Garðar
að vera tekinn til umfjöllunar í
Hello Magazine sem er eitt
vinsælasta tímarit sinnar
tegundar á heimsvísu. Þar er sjón-
um beint að þeim ríku og frægu
og er til dæmis fjallað um
Madonnu, Elton John, Cristiano
Ronaldo, Rod Stewart, ungfrú
England 2008 og prinsinn og
prinsessuna af Kent auk Garðars,
svo aðeins fáeinir séu nefndir, í
þessu tölublaði. - jbg / sjá síðu 46
Garðar Cortes nýtur athygli:
Hógvær í við-
tali við Hello
BJART NYRÐRA Í dag verða
austan eða suðaustan 5-10 m/s.
Bjartviðri á Norðurlandi en skúrir
sunnan til og vestan. Hiti 12-20 stig,
hlýjast á Norðurlandi.
VEÐUR 4
15
15 16
16
14
ORKUMÁL Fjórir starfsmenn REI
hafa sagt upp störfum frá og með
mánaðamótum.
Af þeim tilheyrðu þrír stjórn-
endahópi fyrirtækisins.
Mennirnir eru Grímur Björns-
son jarðeðlisfræðingur, Gunnar
Örn Gunnarsson, sem var í
Djíbútí-verkefninu, Vilhjálmur
Skúlason viðskiptalögfræðingur,
sem var í samningagerð, og Þor-
leifur Finnsson, í Djíbútí-verkefn-
inu.
Guðmundur F. Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri hjá REI, segir
að meðal eftirstandandi fjögurra
starfsmanna ríki stuðningur við
þá stefnumótunarvinnu sem fari
fram hjá stjórn REI. Þeir bíði
spenntir eftir að henni ljúki.
Heimildir herma að mönnunum
hafi borist atvinnutilboð og hafi
haft sínar hugmyndir um framtíð
REI. Þeim hafi ekki hugnast
stefna stjórnarinnar og kalli hana
stefnuleysi. Þeir hafi meðal ann-
ars viljað taka yfir verkefni REI
og setja inn í sitt eigið fyrirtæki.
Þeir hafi síðan sett stjórninni
stólinn fyrir dyrnar fyrir mánuði,
þegar Guðmundur Þóroddsson
var rekinn, og beðið um að helstu
stefnumál fyrirtækisins yrðu
skýrð innan mánaðar. Það hafi
ekki gengið eftir.
Ásta Þorleifsdóttir, stjórnar-
maður í REI, segir hins vegar að
uppsagnir hafi lengi legið í loft-
inu.
„Og fjórir úr 600 manna fyrir-
tæki [Orkuveitunni] eru kannski
ekki fréttir til næsta bæjar. Það er
enginn hörgull á mönnum og fjár-
festum sem vilja starfa með
okkur,“ segir hún.
Ákvörðunin muni því grátin
þurrum tárum innan stjórnar REI.
Fyrirtækið hafi verið á góðri ferð
síðasta mánuðinn og tveir mann-
anna hafi nýlega klárað sín verk-
efni í Djíbútí.
Financial Times greindi frá því
í gær að Djíbútí-verkefnið yrði
fyrsta verkefni Fjármögnunar-
sjóðs Alþjóðabankans, í samstarfi
við REI.
Mennirnir vilja ekki tjá sig
opinberlega og ekki náðist í
Kjartan Magnússon, stjórnar-
formann REI. - kóþ
Lykilstarfsmenn REI
segja upp störfum
Fjórir starfsmenn REI sögðu upp störfum fyrir mánaðamót, en fjórir standa
eftir. Þeir sem sögðu upp munu hafa verið þreyttir á meintu stefnuleysi fyrir-
tækisins og sagðir hafa atvinnutilboð. Stjórn REI grætur þurrum tárum.
LÖGREGLUMÁL Dómsmálaráðherra
og lög regluyfirvöld vilja að íslensk
lög regla fái heimild til forvirkra
rannsóknaraðgerða, það er að
hægt verði að hefja rannsókn á
mönnum og hópum án þess að
fyrir liggi rökstuddur grunur um
tiltekið brot. Lúðvík Bergvinsson,
þingflokksformaður Samfylk-
ingar, kallar slíkt leyniþjónustu og
segir hugmyndina fráleita.
Fram kemur í nýrri hættu-
mats skýrslu Ríkislögreglustjóra
að lögreglu skorti forvirkar
rann sóknar heimildir til að takast
betur á við og fyrirbyggja skipu-
lagða glæpastarfsemi. „Það er í
mörgum tilfellum nauð synlegt
fyrir lögreglu að hafa þessar heim-
ildir,“ segir Ásgeir Karlsson,
stjórnandi greiningar deildar Ríkis-
lögreglu stjóra. Hann leggur þó
áherslu á að í öðrum ríkjum séu
þær háðar ströngu eftirliti.
„Ég hef oftar en einu sinni lýst
þeirri skoðun minni, að tryggja
þurfi lögreglu þessar heimildir
hér á landi,“ segir Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra.
Lúðvík Bergvinsson er á allt
öðru máli. „Á mannamáli heitir
þetta öryggislögregla eða leyni -
þjónusta,“ segir hann og telur ekki
þörf á slíkri stofnun. Nær væri að
eyða fé í að byggja upp almenna
löggæslu. „Við þessar aðstæður
þurfum við ekki að byggja upp
enn eina deildina eða stofnunina.
Það er fráleitt.“
Í fyrra var unnið frumvarp í
dómsmálaráðuneytinu um íslenska
öryggisþjónustu, sem væri að skil-
in frá lögreglu og hefði u mræddar
heimildir. Það er enn hjá ráðherra
til frekari útfærslna og hefur
fáum verið kynnt.
„Ég held að ég geti sagt það
fyrir Samfylkinguna að öryggis -
lögregla eða leyniþjónusta er ekki
á forgangslista hennar,“ segir Lúð-
vík, spurður um það hvort slíkt
frumvarp myndi njóta stuðnings
hans og samflokksmanna hans í
Samfylkingunni. - sh / sjá síðu 18
Lögreglan telur nauðsyn að rannsóknarheimildir verði rýmkaðar:
Stjórnarflokkarnir ósammála
Álver á Bakka
Álver leysir ekki allan vanda en
starfræksla þess getur hins vegar
orðið sú kjölfesta, sem þarf að
vera fyrir hendi til að íbúarnir geti
snúið vörn í sókn, skrifar Friðrik
Sophusson. UMRÆÐAN 28
Syngur á
Landsmóti
Hinn þrettán ára
Árni Beinteinn Árna-
son tekst á við enn eitt
stórverkefnið.
FÓLK 58
Fagnar 15 ára
rekstrarafmæli
Fjölskyldugarðurinn
var opnaður árið
1993. TÍMAMÓT 34
GARÐAR THOR
CORTES
VIÐSKIPTI „Við höfum ákveðið að
vísa málinu til Fjármálaeftirlits-
ins,“ segir Þórður Friðjónsson,
forstjóri Kauphallarinnar.
Kauphöllin hefur undanfarna
daga rannsakað viðskipti Lands-
bankans með íbúðabréf, 19. júní,
sama dag og ríkisstjórnin
tilkynnti um breytingar á
veðhlutfalli og hámarkslánum
Íbúðalánasjóðs. Þá seldi Lands-
bankinn íbúðabréf fyrir fjóra
milljarða króna, miklu meira en
aðrir.
Þórður segir að ekkert verði
fullyrt um að Landsbankinn hafi
brotið lög. - ikh / sjá síðu 24
Íbúðabréf Landsbankans:
Málið til Fjár-
málaeftirlitsins
HK slegið út af Haukum
1. deildarlið Hauka
sló HK út úr bikar-
keppninni í gær á
meðan Fjölnis-
menn tryggðu
sig áfram með
2-1 sigri á ÍBV í
framlengingu.
ÍÞRÓTTIR 54
VEÐRIÐ Í DAG
KVÖLDIN ERU KALDLYND ÚTI Á NESI Logi Bergmann Eiðsson og félagar voru meira en tilbúnir í þriðju golfholu kvöldsins þegar
þeir stigu á land á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Aron Karlsson bar Loga í land. Ætlun þeirra var að leika eina holu á átján golfvöllum
umhverfis landið á sólarhring, til styrktar MND-félaginu. Á hverju ári greinast um fimm Íslendingar með MND, sem er banvænn sjúk-
dómur sem herjar á hreyfitaugar líkamans. Þjónustuver Vodafone veitir allar upplýsingar um söfnunina í síma 1414. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI