Fréttablaðið - 03.07.2008, Síða 60
40 3. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
Sinfóníuhljómsveit unga
fólksins, Ungfónía, mun
frumflytja verkið „Allt inn
ekkert út – Níels á Húsa-
víkurfjallinu“ eftir Benna
Hemm Hemm á Þjóðlaga-
hátíðinni á Siglufirði á
sunnudaginn. Tónleikarnir
verða síðan endurteknir
fyrir borgarbúa mánudag-
inn 7. júlí í Háskólabíói.
„Ungfónían hafði samband við
mig og kynnti fyrir mér þessa
hugmynd, að semja verk fyrir
mína hljómsveit og Ungfóníu
fyrir þjóðlagahátíð,“ segir tón-
skáldið Benedikt Hermann Her-
mannsson, betur þekktur sem
Benni Hemm Hemm. Áhuginn á
samstarfinu var síðan svo mikill
að Ungfónían og hljómsveit
Benna Hemm Hemm héldu
tvenna tónleika í Iðnó 19. júní
síðast liðinn þar sem lög hljóm-
sveitar Benna Hemm Hemm voru
spiluð í útsetningu fyrir sinfóníu-
hljómsveit.
Benni er með gráðu í tónsmíð-
um frá Listaháskóla Íslands og
hefur þess vegna samið nokkur
tónverk en þó aldrei fyrir sinfón-
íuhljómsveit. „Samstarfið hefur
verið ótrúlega skemmtilegt og
gaman að komast að því að engar
leynilegar hindranir koma í veg
fyrir þetta. Þetta er mjög svipað,
eins og alltaf þegar ég er að
semja,“ segir Benni spurður um
hvort ekki sé erfitt að semja fyrir
sinfóníuhljómsveit.
Nafn verksins „Allt inn ekkert
út – Níels á Húsavíkurfjallinu“ er
sótt í sögu sem afi Benna sagði
honum sem enginn annar hefur
heyrt. „Sagan er um Níels sem
vildi bruna niður fjallið á Húsa-
vík á skíðum. Honum var sagt að
það væri ekki hægt af því að hann
myndi springa. Hann fór upp á
fjallið og reifaði sig allan, brun-
aði niður og sprakk ekki. Sagan
var sérstaklega skemmtileg
þegar afi minn sagði mér hana,“
segir Benni. Hann segir að stemn-
ingunni í verkinu svipi til þess
þegar afi hans sagði honum sög-
una.
Sinfóníuhljómsveit unga fólks-
ins, í daglegu tali kölluð Ung fónía,
samanstendur af ungmennum á
aldrinum 14-25 ára sem leggja
stund á sígilt tónlistarnám í tón-
listarskólum höfuðborgarsvæðis-
ins. Hljómsveitin hefur verið
starfandi frá árinu 2004 undir
stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Tónleikar Benna Hemm og
Ungfóníu í Reykjavík verða í
Háskólabíói kl. 20 hinn 7. júlí.
Önnur tónverk á efnisskránni eru
„Vor í Appalachiafjöllum“ eftir
Aaron Copland og Sinfónía númer
þrjú, „sú skoska“ eftir Felix
Mendelssohn.
„Það er ótrúlegt að vera í hópi
með þessum stórskáldum,“ segir
Benni að lokum. vidirp@frettabladid.is
Ungfónía frumflytur verk
eftir Benna Hemm Hemm
HLJÓMSVEIT BENNA HEMM HEMM Benni segir ótrúlegt að vera í hópi stórtónskáld-
ana Copland og Mendelssohn.
Ljósmyndasýningin „Þorp – Það
sem augað sér ekki“ verður opnuð
í anddyri Norræna hússins á
laugar dag kl. 16. Á sýningunni
má sjá hluta afraksturs ljós-
myndaferðar á vegum ljósmynda-
félagsins Fókuss til Færeyja.
Þátttakendur hrifust af þorpun-
um og mannlífinu í Færeyjum og
ákváðu þeir því að gera færeyska
þorpinu skil með völdum mynd-
um sem sýna ýmsar hliðar á
þorpslífinu.
Hópurinn sýndi nokkrar mynd-
ir frá Færeyjaferð sinni á ljós-
myndasýningunni Hugnám á
Ljósanótt í Reykjanesbæ síðast-
liðið haust. Sýningin sem opnuð
verður í Norræna húsinu um
helgina fer svo til Færeyja á kom-
andi vetri og verður sett upp í
Norðurlandahúsinu í Þórshöfn.
Ljósmyndararnir sem eiga verk
á sýningunni eru Anna Jonna
Ármannsdóttir, Einar Ásgeirsson,
Elín Þórðardóttir, Georg
Theodórsson, Guðmar Guðjóns-
son, Helga Jörgensen, Helgi
Bjarnason, Kim Mortensen, Rafn
Sigurbjörnsson og Sæþór L. Jóns-
son. - vþ
Færeyskt mannlíf í
Norræna húsinu
Ljósmyndasýningin Mistur verð-
ur opnuð í ljósmyndagalleríinu
Fótógrafí á laugardag kl. 17. Höf-
undur sýningarinnar er Berglind
Björnsdóttir. Sýningin saman-
stendur af myndum af trjám og
gróðri sem stækkaðar eru á álplöt-
ur. Í fyrstu virðast myndirnar
óskýrar eins og þær renni saman
við rýmið. Síðan birtast þær, fjar-
lægar og daufar eins og fölnuð
minning í huga manns. Myndirnar
eru afrakstur tilraunar ljósmynd-
arans til að nýta ónýtar filmur.
Berglind hefur haldið nokkrar
einkasýningar síðastliðin ár og
tekið þátt í samsýningum bæði
hér heima og erlendis. Nýlega
vann Berglind myndverk fyrir
Thompson LES hótelið í New
York.
Sýningin Mistur stendur til 2.
ágúst. - vþ
Mistur og gróður
BERGLIND BJÖRNSDÓTTIR Sýnir ljós-
myndir í Fótógrafí frá og með laugar-
deginum.
FÆREYINGUR Þessi mynd er á meðal
þeirra sem sjá má á sýningunni Þorp í
Norræna húsinu.
Tónleikaröðin Sumartónleikar í
Akureyrarkirkju hefst næstkom-
andi sunnudag kl. 17, en boðið
verður upp á tónleika í kirkjunni
alla sunnudaga í júlí. Að vanda er
dagskrá hátíðarinnar fjölbreytt og
ættu flestir að finna eitthvað við
sitt hæfi. Danski orgelleikarinn
Bine Bryndorf mun leika orgel-
tónlist, hljómsveitin Spilmenn
Ríkínís flytur íslensk þjóðlög á
gömul íslensk hljóðfæri og Eyþór
Ingi Jónsson organisti í Akureyrar-
kirkju mun ásamt Michael Jóni
Clarke vinna með sálmaþema. Á
fyrstu tónleikum hátíðarinnar nú
á sunnudag mun stúlknakórinn
Graduale Nobili undir stjórn Jóns
Stefánssonar syngja íslenskar
kórperlur í bland við minna þekkt
erlend lög.
Það má víst fullyrða að
stelpurnar í Graduale Nobili hafi
komið, séð og sigrað þegar þær
stigu fyrst fram á sjónarsviðið í
apríl 2001 og héldu fyrstu tón-
leika sína í Langholtskirkju.
Gagnrýnendur kepptust við að
lofa kórinn og þegar fyrsta plata
kórsins kom út, nokkrum mánuð-
um síðar, var talað um sjald-
heyrða fágun, ótvíræð raddgæði
og innlifaðan söng. Þá gerðu
stúlkurnar sér lítið fyrir og
hrepptu önnur verðlaun í Evrópu-
keppni æsku kóra í Kalundborg í
Danmörku og skipuðu sér þar
með í röð fremstu æskukóra
heims aðeins örfáum mánuðum
eftir stofnun.
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju hafa farið fram árlega frá
því árið 1987. Upphafsmenn tón-
leikanna voru þau Margrét Bóas-
dóttir söngkona og Björn Steinar
Sólbergsson organisti við Akur-
eyrarkirkju. Tónleikaröðin gekk í
tólf farsæl ár undir nafninu Sumar-
tónleikar á Norðurlandi, en flutti
sig árið 1999 í Akureyrarkirkju og
hlaut af því núverandi nafn.
Tónleikarnir standa í klukku-
stund án hlés, aðgangur er ókeyp-
is og eru allir velkomnir. -vþ
Stúlknakór hefur
tónleikaröð
STÚLKNAKÓRINN GRADUALE NOBILI Kemur fram á fyrstu tónleikum ársins í tónleika-
röðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju.
Þeir sem elska smurt brauð í
sólskini, listasafn og „bröns“
á laugardagsmorgni, hjóla-
túra, eða Tívolí ættu að fara
til Kaupmannahafnar.
*Flug aðra leiðina með sköttum.
Safnaðu
Vildarpunktum Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
Farðu til Kaupmannahafnar,
í helgarferð eða í sumarleyfi,
taktu fjölskylduna með og dönsku
málfræðina úr tíunda bekk.
Værsågod! Þú átt skilið að hafa það
„hyggeligt“. Drífðu bara í því
að panta far!
M
A
D
R
ID
B
A
R
C
E
LO
N
A
PARÍS
LONDO
N
MANCHESTER
GLASGOW
MÍLANÓ
AMSTERDAM
MÜNCHEN
FRANKFURT
BERLÍN
KAUPMANNAHÖFN
BERGEN
GAUTABORG
OSLÓ
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
HA
LI
FA
X
BO
ST
ON
OR
LAN
DO
MINN
EAPOL
IS – ST. P
AUL
TOR
ONT
O
NE
W
YO
RK
REYKJAVÍK
AKUREYRI