Fréttablaðið - 03.07.2008, Side 72
52 3. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Níunda umferðin hófst 11. júní þegar Fjölnir
vann Fylki 1-0 sem var annar leikurinn í taphrinu
Fylkis sem enn stendur yfir.
Dramatíkin var mest í Kríunni, KR-ÍA. Umdeild
mörk og umdeild rauð spjöld hafa ollið miklu
fjaðrafoki. Garðar Örn dómari baðaði sig í
sviðsljósinu og segist hreinlega ekki geta gengið
óáreittur um götur Reykjavíkur lengur. Leikir
liðanna hafa oft verið fjörugir og þessi olli
nákvæmlega engum vonbrigðum.
FH-ingar sýndu mikla seiglu með 2-1
sigri á Fram. Bikarmeistararnir eru á
toppnum með þriggja stiga forystu.
Tommy Nielsen er í liði umferðar-
innar í fimmta sinn í sumar, sem
segir sitt um styrk FH-varnar-
innar. Svo virðast Hafnar-
fjarðarpiltar alltaf geta
skorað mörk.
Valsarar bitu frá sér
og unnu Þrótt sannfærandi 3-0. Innkoma Guð-
mundar Benediktssonar breytti miklu fyrir Val.
Grindvíkingar og HK berjast í bökkum í kjallar-
anum og sættust á jafnan hlut suður með sjó á
meðan Keflvíkingar töpuðu stigum annan leikinn
í röð. 2-2 jafntefli þeirra gegn Blikum var frábær
skemmtun.
9. UMFERÐ LANDSBANKADEILDAR KARLA: FH TEKUR ÞRIGGJA STIGA FORYSTU
Krían olli engum vonbrigðum
TÖLURNAR TALA
Flest skot: 23, KR
Flest skot á mark: 11, KR
Fæst skot: 5, Fram
Hæsta meðaleink.: 6,83 Fjölnir
Lægsta meðaleink.: 4,55 ÍA
Grófasta liðið: 26 brot, ÍA
Prúðasta liðið: 7 brot, Grindav.
Flestir áhorf.: KR-ÍA, 2.011
Fæstir áhorf.: Grindvík-HK, 610
Áhorfendur alls: 6.315
> Besti dómarinn: Þrír dómarar
fengu einkunnina sjö hjá
Frétta blaðinu. Það voru Kristinn
Jakobsson, Einar Örn Daníelsson
og Jóhannes Valgeirsson.
Kjartan Sturluson (2)
Tommy Nielsen (5) Óli Stefán Flóventsson
Auðun Helgason (3)
Gunnar Már
Guðmundsson (3)
Jónas Guðni
Sævarsson (2)
Óskar Örn Hauksson (2)
Arnar Grétarsson (4)
Andri Steinn Birgisson Arnar Gunnlaugsson
Guðmundur Benediktsson
> Atvik umferðarinnar
Garðar Örn Hinriksson gerði hlé á leik KR og ÍA til að reka
Guðjón Þórðarson lengra upp í stúku eftir að hann fékk
reisupassann. Guðjón færði sig um fimm metra eftir nokk-
urt þóf og leik var haldið áfram.
> Ummæli umferðarinnar
„Það var uppálagt hjá okkur fyrir leik að láta dómarann
eiga sig og vera ekki í neinum orðaskiptum
við þá,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA,
eftir tapið gegn KR. Guðjón fékk rautt spjald
fyrir að eiga í orðaskiptum við dómarann
og tveir leikmenn sem sáu rautt fengu
annað gula spjaldið sitt fyrir að tjá sig
of gróft að mati Garðars Hinrikssonar.
FÓTBOLTI Tommy Nielsen var
nálægt því að hætta afskiptum af
knattspyrnu fyrir nokkrum árum
til að ganga í lögregluskóla í Dan-
mörku. Sem betur fer fyrir FH
snerist honum hugur. Hann hefur
verið einn allra besti leikmaður
Landsbankadeildarinnar í sumar
og fyrir frammistöðu sína í 2-1
sigrinum á Fram hlýtur hann
nafnbótina leikmaður umferðar-
innar hjá Fréttablaðinu.
Það var kominn tími á Tommy,
sem hefur verið fimm sinnum í
liði umferðarinnar. „Ég veit ekki
hvort ég á það skilið,“ sagði
Tommy, sem talar orðið fína
íslensku eftir fimm ára veru á
Íslandi. Hann er nýorðinn 36 ára
gamall og er ekkert að hægja á
sér.
„Það versta sem ég gæti gert
væri að hægja eitthvað á mér
vegna aldursins. Ég hlusta auðvit-
að á líkamann en ég æfi alveg jafn
mikið og aðrir leikmenn. Ég er
kannski ekki eins og ég sé 25 ára
daginn eftir leik en þess á milli er
ég það líklega,“ sagði Tommy
glaðbeittur en hann er í afar góðu
formi um þessar mundir.
„Það er betra en í fyrra. Það
munaði miklu að meiðast ekkert
og ná öllu undirbúningstímabil-
inu. Annars lít ég bara svona vel
út af því að liðið er svo gott,“ sagði
hann, hógværðin uppmáluð.
FH-liðið fékk nýjan þjálfara
eftir síðasta tímabil. Heimir Guð-
jónsson er tekinn við skútunni
sem Ólafur Jóhannesson stýrði af
miklum myndarskap í fimm ár.
„Óli gerði frábæra hluti í fimm ár
en það var nauðsynlegt að fá nýtt
blóð inn. Heimir hefur staðið sig
frábærlega og breytingin var það
besta sem gat komið fyrir klúbb-
inn,“ segir Tommy, sem hælir
Heimi fyrir störf sín.
Hann viðurkennir líka að það
hafi verið sárt að horfa á eftir titl-
inum til Valsmanna á síðasta
tímabili eftir að hafa trónað efst á
töflunni í fimmtán umferðir af
átján. „Það var virkilega erfitt og
hungrið í að endurheimta titilinn
drífur okkur áfram núna.“
Hann segir reynsluna hjálpa
sér mikið, hún bæti upp fyrir það
sem hann hafi tapað. Augljósast
væri að benda þar á hraðann hjá
36 ára gömlum manninum en
hann játar það ekki svo glatt.
„Mér finnst ég ekki hafa tapað
miklum hraða á síðustu tíu árum.
Ég hef bætt það upp með reynsl-
unni og auknum leikskilningi en
það hægist ekki svo glatt á manni
þegar manni tekst að halda
skrokknum heilum,“ segir
Tommy, sem segir sinn helsta
veikleika líklega vera hægri
fótinn. „Ég gæti verið betri með
honum.“
Nielsen vill sem minnst segja
um framhaldið á ferlinum, hann
gerir aðeins eins árs samning í
senn. „Ég er orðinn það gamall að
ég tek bara eitt tímabil í einu.
Eftir tímabilið athugum við hvort
þeir vilja ráða gamlan mann
áfram og ég athuga hvort það sé
þess virði að halda áfram. Eins og
staðan er núna hef ég mjög gaman
af fótboltanum og ég sé ekki
ástæðu til að hætta,“ sagði
Tommy.
Hann vinnur með fótboltanum
hjá golfklúbbnum Keili í Hafnar-
firði. Þar líkar honum lífið en
hann er menntaður vallarstjóri
frá Skotlandi. Það er einmitt það
sem hann ætlar að fást við eftir
ferilinn en það er ekki langt síðan
hann tók þá ákvörðun. Áður heill-
aði lögreglustarfið.
„Vinnan mín þarna er aðal-
ástæðan fyrir því að ég er enn að
spila. Ég veit núna hvað ég ætla
að gera eftir að ferlinum lýkur
sem þýðir að ég get bara slappað
af og notið fótboltans. Eftir
sumrin 2003 og 2004 var ég ekki
viss og þá var ég nálægt því að
hætta í knattspyrnu til að fara til
Danmerkur í Lögregluskólann.
Nú stefni ég á að vinna sem vallar-
stjóri á golfvelli einhvers staðar í
heiminum. Ég lærði í Skotlandi
og ætli stefnan verði ekki sett
þangað þegar ég hætti,“ sagði
Tommy Nielsen. hjalti@frettabladid.is
Tók golfið fram yfir lögreglustörfin
Tommy Nielsen er leikmaður 9. umferðar hjá Fréttablaðinu. Hann var nálægt því að hætta áður en hann
vissi hvað hann vildi gera eftir ferilinn. Nú er sú óvissa horfin og hann nýtur boltans sem aldrei fyrr.
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingar hafa
samið við tvo erlenda bakverði.
Annar þeirra er Slobodan Subisic
sem lék með Snæfelli á síðustu
leiktíð og skoraði 12,3 stig að
meðaltali í leik. „Hann er góður
leikmaður sem styrkir okkur
mikið. Hann vildi ekki vera áfram
hjá Snæfelli en vildi spila á
Íslandi og því fannst okkur kjörið
að fá hann,“ sagði Valur Ingi-
mundarson, þjálfari liðsins, í gær.
Hinn heitir Heath Sitton og er
Bandaríkjamaður. „Sitton er
leikstjórnandi sem er mikil
skytta. Hann á að gera aðra
leikmenn í kringum sig betri,“
sagði Valur, sem ætlar líklega að
bæta við sig einum stórum
leikmanni til viðbótar fyrir
tímabilið. Áður hafði Njarðvík
samið við Magnús Gunnarsson
frá Keflavík og Sævar Sævarsson
hjá Blikum en Brenton Birming-
ham og Hörður Axel Vilhjálmsson
fóru. Þá er orðið ljóst að Jóhann
Árni Ólafsson verður áfram hjá
Njarðvíkingum. - hþh
Njarðvíkingar stórhuga:
Sömdu við tvo
erlenda bakverði
SPENNTUR Valur er spenntur fyrir kom-
andi tímabili, lið hans er farið að taka á
sig góða mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STERKUR Tommy Nielsen
hrósar bæði Frey Bjarna-
syni fyrir góða samvinnu
og raunar öllu liðinu, sem
hann segir að láti sig líta
betur út.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍEL
FÓTBOLTI Lárus Orri Sigurðsson
ætlar að hætta að setja sjálfan sig
í Þórsliðið og leggja knattspyrnu-
skóna á hilluna. Lárus er þjálfari
Þórs en hann hefur komið við
sögu í átta af níu leikjum liðsins í
1. deildinni í sumar. Lárus Orri
sagði við Vikudag á Akureyri að
ákvörðunin hefði ekki verið
auðveld, skrokkurinn þyldi álagið
einfaldlega ekki lengur. Lárus
Orri, sem er 35 ára gamall, lék 42
landsleiki fyrir Ísland. - hþh
Lárus Orri Sigurðsson hættur:
Skrokkurinn
búinn að fá nóg
HÆTTUR Lárus Orri er hér í leik með
WBA gegn Man. Utd árið 2002.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
GOLF Atvinnukylfingurinn Ólöf María Jóns-
dóttir er komin á fullt á ný eftir að hafa eign-
ast barn og ætlar sér að halda kortinu sínu
á evrópsku mótaröðinni.
Ólöf hefur þegar keppt á fimm mótum
á þessu tímabili og náði bestum árangri
á opna skoska mótinu í byrjun maí
þegar hún varð í 57. sæti.
Ólöf María varð fyrst íslenskra
kylfinga til að tryggja sér þátttöku-
rétt á Evrópumótaröðinni árið 2005.
Hún hélt keppnisrétti sínum eftir
fyrsta árið en missti síðan mikið úr
þegar hún meiddist og varð síðan
ófrísk í kjölfarið.
Ólöf fékk að halda þátttökurétti
sínum að mestu á evrópsku mótaröð-
inni á þessu ári þrátt fyrir að hafa
misst úr allt árið í fyrra. Hún
fékk metið læknisvottorð
og sjúkraskýrslu vegna
veikinda sonarins en
sonur hennar Gústaf er nú allur að
braggast eftir að hafa verið mjög
veikur fyrstu mánuðina.
„Ég er að fara út á mánu-
daginn að keppa á tveimur
mótum á Írlandi og á Ítalíu.
Svo förum við aftur til
Ameríku og það eru fullt af
mótum fram undan í haust. Ég er ekki alveg
búin að setja þetta allt niður en það eru örugg-
lega sjö mót sem ég á eftir að keppa á í haust,“
segir Ólöf María.
Ólöf vann á dögunum Kaupþingsmótið á
Akranesi en það var fyrsta mót hennar á
Íslandi síðan hún tók þátt á Íslandsmótinu í
höggleik í Leirunni árið 2005.
„Það var frábært að koma heim því ég hef
ekki keppt hérna heima svo lengi. Maður varð
aðeins að sýna sig og sjá aðra. Það er búið að
vera mjög gaman,“ segir Ólöf María.
Það er hugur í Ólöfu Maríu sem ætlar sér að
tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni
á næsta ári.
„Ég er að vonast til að vera komin í topp-
form á Oslóarmótinu í lok ágúst. Ég ætla bara
að taka þetta með stæl og reyna að halda kort-
inu. Það er markmiðið,“ segir Ólöf María. - óój
Atvinnukylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir úr Keili er á leið á mót á Írlandi og á Ítalíu í næstu viku:
Verður komin í toppform á ný í ágúst
METNAÐARFULL
Ólöf María Jóns-
dóttir ætlar sér að
halda sér í hópi
þeirra bestu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA