Fréttablaðið - 21.07.2008, Page 12

Fréttablaðið - 21.07.2008, Page 12
12 21. júlí 2008 MÁNUDAGUR GANGA.IS Ungmennafélag Íslands ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 4 23 61 0 5/ 08 • OR ætlar að knýja meirihluta bílaflota síns með vistvænum eldsneytisgjöfum árið 2013. www.or.is Ganga um Hengils- svæðið Þriðjudaginn 22. júlí verður farin fræðslu- og gönguferð á Hengilssvæðinu. Hugað verður að orkunni og beislun hennar, orkujarð- fræði, gróðri og sögu. Mæting í Hellis- heiðarvirkjun við Kolviðarhól kl. 19:30. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Leiðsögumenn eru Einar Gunnlaugsson jarðfræðingur og Guðríður Helgadóttir lífræðingur. Heimild Alþjóðlega saka- máladómstólsins til að rannsaka stríðsglæpi í Darfúr-héraði er komin frá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, sem fól dóm- stólnum málið fyrir þrem- ur árum. Á rúmlega klukkustundarlöngum fundi í öryggisráðinu, sem hald- inn var að kvöldi 31. mars árið 2005, samþykktu ellefu af fimmt- án aðildarríkjum ráðsins ályktun um að fela Alþjóðlega sakamála- dómstólnum, sem er stríðsglæpa- dómstóll á vegum Sameinuðu þjóðanna með aðsetur í Haag, að rannsaka ástandið í Darfúr-hér- aði, þar sem þjóðarmorð virtist hafa verið í algleymingi mánuð- um saman. Fjögur ríki sátu hjá við atkvæðagreiðsluna: Alsír, Brasil- ía, Kína og Bandaríkin. Fulltrúi Bandaríkjanna á fund- inum sagði stjórn sína vera sam- mála því að rannsaka eigi stríðs- glæpi í Darfúr og draga hina seku til ábyrgðar. Þess vegna hafi Bandaríkin ákveðið að beita ekki neitunarvaldi sínu í ráðinu, en sleppa því samt að greiða atkvæði vegna þess að þau eru andvíg dómstólnum í Haag. Niðurstaða saksóknara Aðalsaksóknari dómstólsins í Haag, Louis Moreno-Ocampo, hefur nú, rúmlega þremur árum síðar, komist að þeirri niðurstöðu að handtaka eigi Omar al-Bashir Súdansforseta fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mann- kyninu. Nefnd þriggja dómara dómstólsins, svonefnd forréttar- stofa, fékk um leið það verkefni að fara yfir sönnunargögnin, sem saksóknarinn hefur aflað, og taka afstöðu til þess hvort fara eigi fram á handtöku forsetans. Sú vinna gæti tekið nokkra mánuði. Fari svo að alþjóðleg handtökubeiðni verði lögð fram, gæti þó reynst hægara sagt en gert að handtaka al-Bashir. Súd- ansstjórn harðneitar því að dóm- stóllinn hafi nokkra lögsögu í málinu, enda er Súdan ekki aðili að dómstólnum – ekki frekar en Bandaríkin. Engin samvinna Þótt öryggisráðið hafi, í fyrr- nefndri ályktun frá 2005, krafist þess að Súdansstjórn sýni dóm- stólnum fulla samvinnu við rann- sókn málsins, þá hefur stjórninni ekki dottið í hug að ansa því. Á síðasta ári ákærði saksókn- arinn tvo aðra Súdani fyrir stríðs- glæpi í Darfúr. Annar þeirra er Ahmed Muhammed Harun, núverandi ráðherra mannúðar- mála í Súdan, en hann var áður yfirmaður öryggismála í Darfúr- héraði. Hinn er Ali Kushayb, einn helsti leiðtogi vígasveita araba, svonefndra janjaweed-sveita, sem dómstóllinn telur hafa full- vissu fyrir að hafi með vitund og að undirlagi stjórnvalda stundað skipulagða ofbeldisherferð á hendur íbúum Darfúr. Súdanstjórn tekur ekki í mál að framselja þessa tvo menn til dómstólsins. Því síður mun hún afhenda forseta landsins, þannig að ákæran er í reynd varla annað en orðin tóm sem útilokað gæti reynst að fylgja eftir í verki. Óvissa Óljóst er því hvaða gildi ákæra dómstólsins hefur í raun. Þó má reikna með því að þrýstingur á Súdansstjórn og al-Bashir for- seta aukist á alþjóðavettvangi. Hann mun ekki eiga jafn auðvelt með að ferðast til annarra landa, þar sem hann má fastlega búast við handtöku stigi hann á land sem aðili er að dómstólnum. Ekki verður staða hans þó svo slæm að hann eigi hvergi í skjól að venda. Bæði Arababandalagið og Afríkusambandið hafa gagn- rýnt yfirlýsingu saksóknarans og ákæruna á hendur al-Bashir. Hann ætti því að geta ferðast áfram til margra araba- og Afr- íkulanda, að minnsta kosti. Tímamót Ákæran á hendur al-Bashir mark- ar þó tímamót og er í raun eins- dæmi því aldrei fyrr hefur þjóð- arleiðtogi verið ákærður fyrir stríðsglæpi meðan hann situr enn að völdum. Í fjölmiðlum víða um heim hafa menn velt því fyrir sér hvaða þýðingu þessi tímamót hafi. Mark Levine, sagnfræðipróf- essor við Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum, spyr til að mynda í grein, sem birtist á vef arabísku fréttastöðvarinnar Al Jazeera, hvort nú verði ekki George W. Bush Bandaríkjafor- seti örugglega næst ákærður fyrir að fyrirskipa stríðsglæpi Bandaríkjahers í Írak. Fleiri hafa velt þessum mögu- leika fyrir sér, en hann virðist þó afar fjarlægur. Nærtækara er að óttast að ákæran og hugsanleg handtökubeiðni hafi áþreifanleg áhrif á starfsskilyrði þeirra alþjóðlegu friðargæsluliða sem starfað hafa í Darfúr-héraði. Nicolas D. Kristof, dálkahöf- undur í International Herald Tri- bune, spyr hins vegar hvort nú þurfi ekki að ákæra kínversk stjórnvöld fyrir að vera samsek þjóðarmorðinu í Darfúr-héraði, þar sem megnið af skotvopnum stjórnarhersins og vígasveitanna í Súdan hefur verið keypt frá Kína, auk þess sem Kína hefur selt Súdansstjórn herþotur og séð um að þjálfa súdanska orrustu- flugmenn. Þessi möguleiki einn og sér gæti styrkt stöðu íbúanna í Dar- fúr. Hætti Kínverjar að útvega Súdönum vopn gæti al-Bashir átt fárra annarra kosta völ en að sætta sig við öflugra friðargæslu- starf. Súdansforseti ákærður FRIÐARGÆSLULIÐAR Í DARFÚR Saksóknari stríðsglæpadómstólsins í Haag telur sig hafa fullar sannanir fyrir því að al-Bashir Súdansforseti beri ábyrgð á fjöldamorðum og öðru ofbeldi vígamanna í Darfúr-héraði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Al-Kaída, „bækistöðin“ á arabísku, eru alþjóðleg hryðjuverkasamtök súnní- íslamista sem Osama bin Laden stofnaði árið 1989. Endanlegt markmið þeirra er að sameina múslima í eitt ríki undir íslamskri stjórn sem væri „hreint“ af vestrænum áhrifum. Samtökin hafa staðið á bak við alræmdar hryðjuverkaárásir, á borð við árásirnar í New York árið 2001 og í London árið 2005. Hver er uppruni al-Kaída? Al-Kaída varð til meðal íslamskra vígamanna sem höfðu hrundið innrás Sovétmanna í Afganistan með aðstoð Bandaríkjamanna og Sádí-Araba. Höfuðstöðvar samtakanna færðust til Súdans 1991 en fluttust aftur til Afgan- istans 1996 þar sem vel var tekið á móti þeim af stjórn talibana. Samtökin komu þar upp þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn. Hvað hefur al-Kaída gert? Al-Kaída hefur staðið á bak við ýmis vel þekkt hryðjuverk. Meðal þeirra er sprengjuárás á sendiráð Bandaríkjanna í Kenýu árið 1998, árás á Tvíbura- turnana og Pentagon í Bandaríkjunum árið 2001, sprengjuárás í lestarkerfi Madrídar árið 2004 og sprengjuárás í lestarkerfi Lundúna árið 2005. Öflug deild al-Kaída hefur starfað í Írak og hindrað viðleitni til uppbyggingar eftir innrás Bandaríkjamanna og annarra árið 2003. Hvernig hefur „stríðið gegn hryðjuverkum“ gengið? Eftir hryðjuverkaárásina á Bandaríkin árið 2001 lýsti George W. Bush Bandaríkjaforseti yfir „stríði gegn hryðjuverkum“. Bandaríkjamenn réðust ásamt öðrum Atlants- hafsbandlagsríkjum inn í Afganistan í nóvem- ber 2001 og steyptu talibanastjórninni af stóli. Yfirstjórn al-Kaída, þar á meðal bin Laden, tókst þó að flýja austur yfir landamærin við Pakistan. Líklegt er að hún dveljist enn þar á svæðum sem pakistönsk stjórnvöld hafa lítið vald yfir. Bandaríkjamönnum hefur tekist að handsama eða drepa marga hátt setta aðila innan raða al-Kaída. Erfitt hefur þó reynst að uppræta samtökin þar sem innan þeirra starfar fjöldi deilda víða um heim sem starfað geta nokkurn veginn sjálfstætt. FBL-GREINING: HRYÐJUVERKASAMTÖKIN AL-KAÍDA Hreinsun íslamlanda FRÉTTASKÝRING: Stríðsglæpir í Darfúr-héraði í Súdan FRÉTTASKÝRING GUÐSTEINN BJARNASON gudsteinn@frettabladid.is Omar Hasan Ahmad al-Bashir Súdansforseti er 64 ára gamall. Hann er fyrsti þjóðarleiðtoginn sem Alþjóðlegi sakadómstóllinn í Haag ákærir fyrir stríðsglæpi. Hann var ofursti í her landsins árið 1989 þegar hann steypti stjórn landsins, varð sjálfur forsætisráð- herra og æðsti yfirmaður hersins. Fjórum árum síðar tók hann sér forsetavald og bannaði starfsemi stjórnmálaflokka. Árið 2005 féllst Bashir á frið- arsamkomulag sem batt enda á blóðugt borgarastríð milli norður- og suðurhluta Súdans, sem staðið hafði síðan 1983 og kostað nærri tvær milljónir manna lífið. Önnur borgarastyrjöld hafði þó brotist út árið 2003 í Darfúr-héraði, sem er vestan til í landinu. Íbúar þar, sem að meirihluta eru af ættbálkum þeldökkra Afríkuþjóða, höfðu fengið nóg af mismunun stjórnvalda, sem jafnan gerðu arabískum íbúum frá norðanverðu landinu hærra undir höfði. Darfúr- búar gerðu uppreisn, en stjórnin brást við af fullri hörku og er talin hafa fengið í lið með sér Janja- weed-vígasveitirnar, sem saksókn- arinn í Haag segir hafa stundað skipuleg fjöldamorð og nauðganir á íbúum héraðsins með fullri vitund stjórnvalda og hreinlega að undirlagi al-Bashirs sjálfs. Al-Bashir er sagður gefa lítið fyrir hugmyndafræði og stjórnmála- stefnur, heldur tekur á hverju máli eftir því sem honum sjálfum virðist koma best hverju sinni. En bregst ókvæða við ef honum þykir lítið úr sér gert. OMAR AL-BASHIR SÚDANSFORSETI ÁKÆRÐUR FYRIR STRÍÐSGLÆPI Omar al-Bashir komst til valda í Súdan árið 1989 og tók sér alræðisvald fjórum árum síðar. NORDICPHOTOS/AFP Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.