Fréttablaðið - 22.07.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Í dag er þriðjudagurinn 22. júlí,
205. dagur ársins.
4.04 13.34 23.02
3.25 13.19 23.10
Við árbakka úti á landi er hægt að veiða síli. Fyrir þá sem ekki
vita þá eru það afskaplega litlir og
ómerkilegir fiskar sem skipta þó
sköpum í lífríkinu. Fækki þeim
fækkar stærri fiskum og fuglum
sem á þeim nærast. Systur mínar
stunduðu eitt sinn hornsílaveiðar af
kappi við ána. Það var þó úr vöndu
að ráða þegar kom að því að nýta
aflann og eitthvað fór það í taugarn-
ar á móður minni að finna krukkur
og fötur um húsið fullar af úldnu
vatni og rotnuðum smáfiskum.
MÓÐIR mín var því manna fegn-
ust þegar lítilli tjörn var komið fyrir
nálægt kirkju við bæjarmörk næsta
þorps. Hún bað systurnar vinsam-
legast að hefja sílasleppingar þar.
Það myndi eflaust veita börnunum í
þorpinu gleði að fylgjast með leik
hornsíla í tjörninni auk þess sem
búseta þeirra þar gæti ef til vill
laðað að sér endur sem síðar myndu
eignast unga. Systurnar sáu þetta
dásamlega samlífi fiska og fugla í
tjörninni í hillingum, sannfærðar
um að hornsílin myndu færa þorps-
búum ánægju um ókomna framtíð.
HORNSÍLIN stórvöxnu döfnuðu
með eindæmum vel í tjörninni í
þorpinu. Svo vel að næsta sumar
tóku glöggir menn að furða sig á því
að þar var farinn að svamla um
ungur lax. Fróðir menn voru fengnir
til að skoða aflann sem þorpsbörnin
höfðu dregið þar á land. Undur nátt-
úrunnar vöktu mönnum enn og aftur
lotningu í brjósti. Fljótlega var kom-
ist að þeirri niðurstöðu að tilvist litlu
stórlaxanna væri að öllum líkindum
blanda af himneskum og jarðnesk-
um atburðum. Einhver fuglinn hefði
ugglaust misst fisk ítrekað ofan í
vatnið á leið sinni um svæðið. Eitt-
hvað sagði systrunum að þær kynnu
að eiga einhvern þátt í náttúru-
undrinu ásamt laxasleppingum sem
þar eru stundaðar svo ríkir menn
geti síðar veitt þar stórlaxa en um
það ákváðu þær að þegja.
KOMA fróðu mannanna að tjörn-
inni til að kanna afla barnanna varð
svo til þess að einhver þeirra hugs-
aði með sér að þarna gæti nú hugs-
anlega skapast hætta á drukknun.
Var því komið upp stóreflis girðingu
umhverfis tjörnina sem gerði börn-
unum ókleift að komast að henni og
öndunum sem á hana var plantað
ómögulegt að komast burtu. Næsta
sumar voru þar engin börn, engar
endur og enginn lax og hefur verið
þannig síðan. Samt er ekki annað
hægt en að glotta við tilhugsunina
um að eitt sumar hafi bæjarbúum
verið gefinn kostur á að veiða lax
sem annars hefur nánast aðeins
verið á færi ríkra útlendinga að
handsama á svæðinu. Þó ætti fólk að
varast að rugla saman laxi og sílum
þótt tjörnin sem þau svamla í sé
smá.
Síli og laxar
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur