Fréttablaðið - 22.07.2008, Blaðsíða 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA SUMAR VINNUVÉLAR O.FL.
Theódóra Kolbrún Jónsdóttir, 23 ára hjúkrunar-
fræðinemi, hugsar vel um heilsuna og segist
einungis stunda þá hreyfingu sem henni finnst
skemmtileg.
„Mér finnst ekki gaman að fara á líkamsræktarstöðv-
arnar, sérstaklega ekki á sumrin þegar veðurblíðan
leikur við okkur Íslendinga flesta daga. Ég fer örsjald-
an, en þá þarf ég að þvinga mig til að fara,“ segir úti-
vistarkonan og hjúkrunarfræðineminn Theódóra Kol-
brún, en hún kýs frekar skemmtilega útihreyfingu.
„Mér finnst fátt betra en að setja iPod í eyrun, setjast á
hjólið mitt og hjóla um Reykjavík, jafnvel skella mér í
sund í leiðinni en ég er mikil sundmanneskja og þykir
mjög gaman að taka einn góðan sundsprett í Árbæjar-
lauginni, það er mín laug.“ Theódóra Kolbrún hjólar
einnig ávallt í vinnuna. „Á þessum tímum er ekkert vit
fyrir námsmenn að reka bíl, því ákvað ég að nota hjól
sem mitt farartæki og sé ekki eftir því, kostar ekkert
og manni líður svo ótrúlega vel, því maður hugsar um
heilsuna jafnframt því að komast á milli staða.“
En Kolbrún hugsar ekki aðeins um hreyfinguna held-
ur passar hún sig einnig á að borða hollan og næringar-
ríkan mat. „Ég hugsa mikið um hvað ég borða, reyni að
borða mikið af ávöxtum og drekka mikið vatn.“
Þegar Kolbrún er innt eftir því hvað skiptir mestu
máli í sambandi við heilsuna stendur ekki á svörum:
„Svefninn skiptir öllu máli. Hann gefur okkur orkuna
til að takast á við daginn,“ segir Kolbrún og heldur
áfram leið sinni, hjólandi að sjálfsögðu.
sigridurp@frettabladid.is
Hreyfing, næring og hvíld
Theódóra Kolbrún, eða Kolla eins og hún er kölluð af fjölskyldu og vinum, festi kaup á þessu forláta hjóli í Danmörku þegar hún
var þar við vinnu síðastliðið sumar. Hefur það komið að mjög góðum notum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
EKKERT STRESS
Alls konar geisladiskar eru
til með slökunartónlist og
slökunarhugleiðslu fyrir
þá sem eiga erfitt með að
festa svefn eða slaka á í
amstri dagsins.
HEILSA 2
LEIKIÐ Í FRÍINU
Gott er að eiga bæði
útileikföng og innileikföng
eða spil í sumarbústaðnum
svo börnin hafi eitthvað við
að vera í fríinu.
SUMAR 3