Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 18

Fréttablaðið - 22.07.2008, Síða 18
[ ] Í amstri dagsins er oft erfitt að ná slökun þegar heim er komið og eiga margir erfitt með að festa svefn. Til eru margs konar hjálpartæki við slök- un sem vert er að athuga. „Við erum með slökunartónlist og slökunarhugleiðslu þar sem talað er inn í taugakerfið og líffærin til að ná djúpri slökun, fólk hefur mikið verið að nota þetta til að hjálpa því að sofna,“ segir Herdís Björnsdóttir, eig- andi búðarinnar Gjafir jarðar í Ingólfsstræti. „Við erum líka með hugleiðslutónlist og heilunartónlist sem nýtist eins, svona slakandi tónlist þar sem fólk fer inn í tónana og slakar vel á.“ Þegar Herdís er innt eftir því hvað sé nýjast stendur ekki á svari: „Við erum með talaðar hugleiðslur á íslensku, það er það nýjasta sem við eigum, þær byggj- ast upp á slökun.“ Til eru nokkrir titlar af íslensku diskunum, eins og Bara slökun og Prófkvíði. „Allir þessir diskar eru í þeim dúr að ná slökun, heila sjálfan sig og annað sem fólk þarf að eiga við, hvort sem það er andlegt eða lík- amlegt.“ Herdís segir að slökunardiskar séu mjög vinsælir meðal fólks sem á erfitt með að festa svefn. „Það er mjög algengt að fólk komi hingað og biðji um leiðsögn um hvað sé best til að sofna. Þeir sem eru vinsælastir núna eru Heilaðu líkama þinn og Algjör slökun.“ Í versluninni Betra líf í Kringlunni fæst einnig mikið af slökunardisk- um. „Við erum með mikið af slökunardisk- um eins og frá Garðari Garðarssyni sem er eins konar sjálfsdáleiðsla, fólk er mjög ánægt með hann,“ segir Snæfríður Jensdóttir, eigandi Betra lífs. Þegar Snæfríður er spurð um hvað sé nýjast af nálinni segir hún að það séu hugleiðsludiskarnir. „Það hafa aldrei verið til hug- leiðsludiskar, þeir eru nýkomnir og eru mjög vinsælir eins og slökunardiskarnir.“ sigridurp@frettabladid.is Andleg og líkamleg slökun Íslensku heilunardiskarnir eru það nýjasta á markaðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Herdís Björnsdóttir, eigandi verslunarinnar Gjafir Jarðar, segir að það sé algengt að fólk biðji um leiðsögn um hvað sé best að nota til að sofna. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Snæfríður Jensdóttir, eigandi Betra lífs, segir að slökunardiskar séu mjög vinsælir hjá henni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vítamín geta verið góð viðbót við holla fæðu til að fá öll næringarefnin sem líkaminn þarfnast. Bæklingur um næringu ung- barna sem gefinn er út af Lýð- heilsustöð hefur verið þýddur á fimm tungumál. Bæklingurinn Næring ungbarna kom út á íslensku árið 2003. Hann hefur nú verið þýddur á ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og taílensku. „Hér á Íslandi er hópur sem talar ekki íslensku,“ segir Elva Gísla- dóttir, verkefnastjóri næringar hjá Lýðheilsustöð, og bætir við að mjög mikilvægt sé að sá hópur fái upp- lýsingar um næringu ungbarna. Spurð að því hvers vegna þessi fimm tungumál hafi orðið fyrir val- inu, segir Elva það hafa verið gert í samvinnu við heilsugæsluna og Alþjóðahúsið. „Kannað var hlutfall fólks á barneignaaldri og hlutfall fólks með ungbörn. Það varð úr að þetta væri markhópurinn okkar fyrir þennan bækling.“ Ákveðið var að gefa þýðingarn- ar ekki út á prenti. Þær eru hins vegar aðgengilegar á www.lyd- heilsustod.is undir flipanum útgef- ið efni. „Æskilegt er að heilsu- gæslustarfsfólk afhendi bæklinginn um næringu ungbarna og ljósrit á viðkomandi tungumáli. Þá hefur fólk hvort tveggja í hönd- unum,“ segir Elva. Íslenskur útdráttur var svo gerð- ur úr bæklingnum og þýddur á tungumálin fimm. Hann er að finna á fyrrnefndri vefsíðu og hentugur fyrir þá sem eingöngu þurfa á kjarnanum um næringu ungbarna að halda. Íslenski bæklingurinn um nær- ingu ungbarna liggur hins vegar frammi á heilsugæslustöðum, en þegar komið er í ungbarnavernd fer fagfólk á staðnum yfir inni- haldið með foreldrum eða forráða- mönnum. - mmf Næring á fimm tungumálum Bæklingurinn er aðgengilegur á netinu. www.fm957.is 67% landsmanna undir fertugu hlustar á FM957 Capacent Zúúber snýr aftur! Búðu þig undir að vakna klukkan sjö mánudaginn 28. júlí. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.