Fréttablaðið - 23.07.2008, Síða 29

Fréttablaðið - 23.07.2008, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 23. júlí 2008 21 Á hádegistónleikunum í Dóm- kirkjunni í Reykjavík á morgun koma fram hornleikarinn Svafa Þórhallsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleikari. Tón- leikarnir, sem hefjast kl. 12.15, eru hluti af röð tónleika sem haldnir eru í samvinnu Félags íslenskra organleikara og Alþjóð- legs orgelsumars. Á efnisskrá þeirra Svöfu og Sigrúnar eru þrjú verk. Fyrst leika þær fjóra kafla úr Svítu í D- dúr eftir G.F. Händel en svítan hefur verið umrituð fyrir horn og orgel. Þá leika þær Annum per Annum eftir Arvo Pärt, eitt þekkt- asta núlifandi tónskáld Eistlands. Síðast á efnisskrá þeirra er And- ante pour Cor et Orgue eftir franska tónskáldið Camille Saint- Saëns. - vþ Leiksýning Sokkabandsins Hér&nú! fer inn á aðal- dagskrá Leiklistarhátíðar- innar í Tampere sem þar er haldinn í byrjun ágúst. Þær sokkabandsstöllur slást í hóp þeirra íslensku leiksýninga sem hlotið hafa þann heiður að vera eina íslenska verkið sem þar er í ár. Tampere-hátíðin er ekki mikið þekkt utan Norðurlanda og má segja að áhugasvæði hennar liggi austar og suðureftir. Þetta er mikil hátíð fyrir 210 þúsund manna borg nyrst í Finnlandi sem reyndar er talin leikhúsmiðstöð Finnlands. Hún er nú haldin í fertugasta sinn. Þangað er boðið um tug sviðsetninga. Þá koma til borgarinnar á fjórða tug leik- flokka sem sýna utan dagskrár. Svo er opið skemmtitjald með rúllandi dagskrá söngflutnings og margt fleira er við að vera. Í tengslum við Tampere Teater- festival eru Norrænir leikhús- dagar með annarri dagskrá. Það er því nóg að gera. Í fyrra sóttu 76 þúsund gestir hátíðina og 26 þúsund sóttu sýningar hennar. Sýningarkvöldin voru 347. Má af þessum tölum sjá að Tampere breytist þessa viku eftir verslun- armannahelgi. Elma Lísa Gunnarsdóttir og Arndís Egilsdóttir eru hryggur- inn í Sokkabandinu. Kompaníð á nú fimm sviðsetningar að baki. Upphaflega var Þrúður Vilhjálms- dóttir þriðji maðurinn en nú eru þær tvær. Sýningar hópsins hafa allar orðið til með tilstyrk Leiklistarráðs. Allar sviðsetning- ar þeirra utan ein eru frumsmíð- ar. Hér&nú! var sett saman af leikhópi sem þær slógu saman og voru sýningar í Borgarleikhúsinu í fyrra. Verkið var svo valið á LOKAL, alþjóðlega leiklistarhátíð sem hér var í vor. Leitarmaður frá Tampere kom hingað og hafði upp úr heimsókninni tvær sýn- ingar sem nú eru á aðaldagskrá Tampere. Ferðin þangað nýtur styrks Thaliu sem er styrktar- sjóður í leikhúslífinu rétt eins og Loftbrú er í tónlistarlífinu. Bæði Arndís og Elma eru í hópi þeirra leikhúslistamanna sem eru á markaðnum. Arndís hefur einkum einbeitt sér að dagskrárgerð í útvarpi og leikið í sjónvarpsþátt- um og kvikmyndum. Elma er nú með árssamning við Þjóðleikhúsið þriðja árið í röð. Þær segja Sokkabandið hafa orðið til sökum verkefnaskorts. Hugmynd kom upp og þær fengu styrk. Og aftur og aftur. Þær eru í hópi þeirra sem hafa notið áhuga Leiklistarráðs þótt ekki fengju þær verkefni styrkt í ár. Rekstur á sýningum á litlum styrkjum er hark og oft bera menn lítið úr být- unum. Þær segja Hafnarfjarðar- leikhúsið hafa staðið vel við bakið á þeim sýningum sem þær hafa fengið inni með suður í Firði. Hér&nú! fékk inni í Borgarleik- húsi samkvæmt samningi LR og Reykjavíkurborgar. Þá er hóp eins og Sokkabandinu að bætast lið- styrkur í nýjum innréttingum í Tjarnarbíói. Þær hafa leikið víðar: í Iðnó og í Sjóminjasafninu úti á Granda. Þær eru nú að læra textann á ensku. Hluti af leikmynd fer með þeim en „svo verður maður bara að bjarga sér á staðnum“, segir Elma Lísa. „Þeim fannst eitthvað pönk í þessu og að sýningin væri í takt við það sem er að gerast víða í leikhúsi meginlandsins,“ segir Arndís. „Ætli við fáum ekki fleiri boð,“ segir Elma og yppir öxlum. Þær viðurkenna að fyrstu tilraunir þeirra hafi bæði verið sjálfstyrk- ing og atvinnuleysi. „Ögrunin var að búa eitthvað til úr engu,“ segir Arndís. Og nú verður verk þessa hóps lagt undir erlenda mælistiku. Þau fara um tólf og bætast í stóra sveit íslenskra leikhúsmanna sem verður í Tampere. pbb@frettabladid.is Sýning þýsku myndlistarkonunn- ar Önnu Mields var opnuð í Dalí Gallery, Brekkugötu 9 á Akur- eyri, í gær. Á sýningunni má sjá verk sem tengjast hefðbundnum uppstillingum og blæti. Sýningin hverfist að nokkru leyti um ímyndaða persónu sem ber nafnið Sibille Schmidt. Sibille þessi er kona um fertugt sem býr í Austur-Þýskalandi seint á átt- unda áratug síðustu aldar. Mields reynir með verkum sínum að skapa svipmynd af hugarástandi Sibille Schmidt; sýningargestir geta virt fyrir sér ýmsa hluti sem Schmidt umgengst í dagsdaglegu lífi sínu. Sýning Önnu Mields stendur til 31. júlí. - vþ Innsýn í líf ímyndaðrar konu Kl. 20 Finnski listamaðurinn Tero Nauha kynnir sig og verk sín á listamanna- spjalli í SÍM-húsinu, Hafnarstræti 16, í kvöld kl. 20. Nauha stundaði myndlist- arnám í Finnlandi, Póllandi og Hollandi og hefur undanfarin ár unnið í nánu samstarfi við konu sína, Karolinu Kucia frá Póllandi, en saman mynda þau tvíeykið Kukkia Group. Karolina tekur einnig þátt í spjallinu. SÁLARLÍF SIBILLE SCHMIDT Verk eftir þýsku listakonuna Önnu Mields. menning@frettabladid.is Meðan á hátíðinni í Tampere stend- ur er haldið upp á Norræna leikhús- daga og er það ánægjulegt tækifæri til að sameina þessar tvær hátíðir. Verður því talsvert meira af nor- rænu leikhúsfólki í Tampere. Á Norrænum leikhúsdögum verða Leikskáldaverðlaun Norður- landa afhent í níunda sinn. Annað hvert ár eru valin áhugaverðustu frumsömdu verkin í hverju landi frá árunum á undan, þau sett undir alþjóðlega mælistiku og eitt verð- launað. Verkin sem nú eru tilnefnd eru Om et øjeblik eftir Peter Asm- ussen frá Danmörku, Fundamental- ist eftir Juha Jokela frá Finnlandi sem flutt verður á hátíðinni af fær- eyskum leikhóp, Óhapp Bjarna Jónssonar, og Valerie Jean Solanas ska bli president i Amerika eftir Sara Stridsberg frá Svíþjóð. Verðlaunin voru veitt í fyrsta sinn 1992 á Norrænum leikhúsdög- um í Reykjavík og fékk Hrafnhild- ur Hagalín þá verðlaunin fyrir Ég er meistarinn. Aðrir norrænir höf- undar sem þegið hafa þennan heið- ur fyir verk sín eru Kari Hotakain- en, Astrid Saalbach, Jóanes Nielsen, Jon Fosse, Lars Norén, Paavo Haa- vikko og Svend Holm. Ekkert verð- launaverka þeirra hefur komið á svið hér á landi. Norrænir leikhúsdaga eru nú haldnir á sjötugs afmæli norræns leikhússamstarfs. Hátíðin nýtur styrkja Norrænu ráðherranefndar- innar. Öll tilnefndu verkin eru leik- lesin á hátíðinni nema færeyska framlagið. Tilgangur daganna er að efla samskipti milli norrænna leik- flokka og leikhúsfólks. Að auki er boðið uppá námskeið, kynningar og umræður auk alls þess fjölda leik- sýninga sem má skoða á hátíðinni. Sökum þess að dagskrána sækja margir alþjóðlegir gestir er opin- bert tungumál hátíðarinnar enska. Margt er forvitnilegt á dagskrá þessa daga og kemur íslenskt leik- húsfólk að þeirri vinnu: umræður um sjálfsmynd og menningu í nor- rænu leikhúsi; þemu í rússneskri, baltneskri og bandarískri leikritun og einnig í norrænni leikritun þar sem Hlín Agnarsdóttir verður á palli. Í ljósi reynslu munu menn ræða hvers vegna norræn leikrit eru læst innan landamæra þjóð- anna. Hávar Sigurjónsson verður á palli að stýra umræðum um höf- undasmiðjur og nýjar leiðir í sköp- un leikverka. Ragnheiður Skúla- dóttir leiðir umræður um hlutverk gagnrýnenda í nýju fjölmiðlaum- hverfi. Egill Heiðar Anton Pálsson ræðir í hóp um bann svið og rit- skoðun í leik- húsi. -pbb Norrænir leikhúsdagar Það verður mikið um að vera í tónlistar- og menningarhúsinu Hömrum á Ísafirði þessa vikuna. Píanóleikarinn Anna Áslaug Ragn- arsdóttir kemur þar fram á tón- leikum annað kvöld kl. 20 og leik- ur ýmsar píanóperlur eftir Bach, Beethoven, Chopin, Jónas Tómas- son og Olivier Messiaen. Aðgang- ur að þessum skemmtilegu tón- leikunum er ókeypis. Á föstudagskvöld kl. 20 er svo komið að því að rúmenski ljós- myndarinn Octavian Balea opni sýningu á verkum sínum í Hömr- um undir yfirskriftinni Engill og brúða. Aðaluppistaða sýningar- innar eru ljósmyndir sem hann tengir við frægt tónverk Bachs, Goldberg-tilbrigðin. Kvöldið er þó ekki einungis helgað ljós- myndalistinni þar sem að finnski harmóníkuleikarinn Terhi Sjö- blom kemur fram við opnun sýn- ingarinnar og leikur nokkur vel valin verk. Terhi kemur svo fram á tónleikum í Hömrum á laugar- dag kl. 16, en á efnisskrá hennar eru aðallega verk eftir norræn tónskáld. Aðgangur að tónleikun- um og sýningunni er ókeypis en þau Octavian og Terhi hlutu styrk úr Norræna menningarsjóðnum til Íslandsferðarinnar. - vþ Ljósmyndir af tónlist Bachs, píanó og nikka ANNA ÁSLAUG RAGNARSDÓTTIR Kemur fram á tónleikum í Hömrum á Ísafirði annað kvöld. Hér&nú! fer til Finnlands LEIKLIST Elma Lísa Gunnarsdóttir og Arndís Egilsdóttir, leikkonur og stofninn í Sokkabandinu. MYND: FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Tónlist fyrir orgel og horn á hádegistónleikum SIGRÚN MAGNA ÞÓRSTEINSDÓTTIR Kemur fram á tónleikum í Dómkirkjunni í hádeginu á morgun. LEIKLIST Sara Stridsberg er tilnefnd fyrir leikverk sitt upp úr skáldsögunni - heim- ildaverkinu - Jean Solanas ska bli president i Amerika sem tryggði henni bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs í fyrra.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.