Fréttablaðið - 29.07.2008, Qupperneq 26
29. JÚLÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR6 ● fréttablaðið ● vinnuvélar
Vinnuvélar eru jafn mismun-
andi og þær eru margar. Þær eiga
það þó allar sameiginlegt að vera
stærri og stæðilegri en venjuleg
vinnu- og farartæki. Ekki er að
ástæðulausu að krafist er meira-
prófs á svona risavélar, þótt það
virðist ekki alltaf duga til. Al-
menn skynsemi og góð rýmis-
greind þyrfti einnig að fylgja
með prófinu, þar sem ýmislegt
getur gengið á í vinnuvélabrans-
anum eins og eftirfarandi mynd-
ir segja til um. Sumt er skoplegt
á meðan annað er á mörkum þess
fáránlega. -kka
Uppákomur í vélaheimi
Þessi risavaxna grafa, byggð af Krupp, getur færst sig úr stað. Síðast lagði vélin í
langferð árið 2001 og ferðaðist þá 22 kílómetra yfir vegi, lestarteina, akra og bæi.
Fjarlægja þurfti rafmagnslínur og sandhrúgum voru hellt yfir lestarteina og vegi til
að koma í veg fyrir skemmdir. MYND/WWW. SWAPMEETDAVE.COM
Mikilvægt er að ökumenn stórra vinnuvéla átti sig á hæð
farartækja sinna, annars er hætta á að festast eins og þessi
mynd sýnir.
Þær eru misstórar vélarnar sem nota þarf í verkefnin. Hérna
hjálpast litli og stóri að við að klára það sem gera þarf.
Yfirleitt er það sandurinn sem er geymd-
ur aftan á vörubílnum en ekki öfugt.
Mikilvægt er að vera á réttum stað áður
en gengið er í verkin, annars getur farið
illa.
Þeir eru mislangir armarnir á þessum
vinnuvélum. Þessi er kannski aðeins
meira en í meðallagi langur en er eflaust
góður til síns brúks samt sem áður.
„Við erum aðallega í jarðvegs-
flutningum hvers konar en líka í
gámakeyrslu og húsaflutningum.
Auk þess bjóðum við í ýmis verk
á opinberum vettvangi,“ segir
Örn Johansen, framkvæmdastjóri
alhliða flutningsfyrirtækisins
trukkur.is.
Vandasamt er að flytja heilu bú-
staðina og þarf að undirbúa verk-
ið vel að hans sögn. „Þegar við
fluttum bústað síðast frá Mos-
fellsbæ að Hvanneyri var það tólf
tíma ferðalag og framkvæmt í lög-
reglufylgd. Öll tilskilin leyfi þurfa
að liggja fyrir en við urðum til
dæmis að fá leyfi frá Vegagerð-
inni, lögreglunni, Rarik og fleir-
um.“ Auk tólf tíma flutnings tók
jafnmarga tíma að undirbúa flutn-
inginn þannig að heill sólarhring-
ur fór í verkið. „Síðan þurfti stór-
an krana upp í Borgarnes til að
hífa þetta af, þannig að þetta er
heil mikil framkvæmd,“ segir
Örn.
Vegna þeirra fjölbreyttu flutn-
ingaðferða sem trukkur.is sér-
hæfir sig í hafa starfsmennirnir í
nógu að snúast og mun meðal ann-
ars eiga í samstarfi við Topp verk-
taka ehf. á næstunni sem eru um-
boðsaðilar verktakanna Adakris
UAB frá Litháen.
Sjá www.trukkur.is. -hs
Tekinn með trukki
Örn Johansen, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins trukkur.is, hefur mikla reynslu
af hvers kyns flutningum. MYND/TRUKKUR.IS
Dágóðan tíma tekur að
flytja heilan bústað og
mikilvægt er að undirbúa
flutninginn vel.
Enn finnast malarvegir hér á landi
og til að halda þeim við þarf góða
veghefla og hefilstjóra. Vegagerð-
in keypti tvo nýja Volvo G960-
hefla af Brimborg nýlega. Þeir
fóru norður í land, annar þeirra á
Hvammstanga.
„Þessi hefill kom fyrir þrem-
ur vikum og hefur ekki stoppað
síðan nema yfir blánóttina,“ segir
Jón Guðbjörnsson sem stýrir
Hvammstangaheflinum um þess-
ar mundir í afleysingum.
Fjölmargir vegir í Húnavatns-
sýslum eru án bundins slitlags og
má þar nefna vegina um Blöndu-
dal, Svínadal, Vatnsdal og Svart-
árdal, um Vatnsnesið, Miðfjörð og
Heggstaðanesið. „Vatnsneshring-
urinn einn er um hundrað kíló-
metrar. Svo þarf að hefla að Borg-
arvirkinu. Það er feikna umferð
þangað,“ segir Jón sem einnig
heldur við veginum inn að Blöndu-
virkjun og alla leið á Hveravelli.
Spurður hvort fólk sé ekki þakk-
látt fyrir þær umbætur sem hann
vinnur að svarar hann: „Umferðin
tekur nú ekki mikið tillit til svona
tækja. Mönnum liggur svo mikið á
að þeir reyna að komast framhjá
þótt vegurinn sé örmjór og aðeins
nokkrir metrar í útskot. Einn fór
nú út af við hliðina á mér í gær.“
Nýi hefillinn er 17,5 tonn að
þyngd og 235 hestöfl „Þetta er
fínn hefill,“ segir Jón. „Það kom
bara ekki allt með honum sem
átti að fylgja og það hefur aðeins
valdið okkur veseni. En sá gamli
var orðinn ansi slappur og þarfn-
aðist mikils viðhalds og þessi er
miklu betri og fljótvirkari. Tönn-
in er feti breiðari og svo er skipt-
ingin mjög fullkomin. Það er hægt
að hafa hana beina, hálfsjálfvirka
eða alveg sjálfvirka og gírkassinn
er með ellefu gíra áfram og sex
aftur á bak.“
Hefillinn er með Vogel-smur-
kerfi sem var sett í hann af Rotor
í Hafnarfirði. Jón kveðst því ekki
þurfa að smyrja nema fjóra til
fimm koppa og það gerir hann á
hverjum degi. En finnst honum
gaman að ferðast um á veghefli?
„Já, það er ágæt vinna,“ svar-
ar hann og þau verða lokaorðin í
þessu spjalli. -gun
Stoppar bara yfir blánóttina
Jón Guðbjörnsson stoppar ekki á nýja Volvoheflinum nema yfir blánóttina því mikið
er af malarvegum í Húnavatnssýslunum. MYND/ÞORVALDUR BÖÐVARSSON