Fréttablaðið - 08.08.2008, Side 2
Er mataræðið
óreglulegt?
LGG+ er fyrirbyggjandi vörn!
Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar
máltíðir – allt þetta dregur úr innri
styrk, veldur þróttleysi, kemur
meltingunni úr lagi og stuðlar að
vanlíðan. Regluleg neysla LGG+
vinnur gegn þessum áhrifum og
flýtir fyrir því að jafnvægi náist
á ný. Dagleg neysla þess
tryggir fulla virkni.
H
V
Í T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
2 8. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Breytingar á lögum
um miðlægan lyfjagagnagrunn
voru byggðar á röngum upplýsing-
um frá Landlæknisembættinu. Per-
sónuvernd gerir athugasemdir við
breytingarnar, sem gerðar voru á
lyfjalögum í vor og vill breyta
lögum á ný.
Persónugreinanlegar upplýsing-
ar um lyfjakaup landsmanna eru nú
geymdar í 30 ár, ekki þrjú ár eins og
áður var heimilt.
„Við teljum að þetta sé ekki í sam-
ræmi við grundvallarreglur um
meðalhóf í meðferð svo viðkvæmra
upplýsinga,“ segir Sigrún Jóhann-
esdóttir, forstjóri Persónuverndar.
Hún segir að samkvæmt þarfa-
greiningu sem fram fór fyrir nokkr-
um árum eigi að duga að geyma
upplýsingarnar í þrjú ár til að fylgj-
ast með misnotkun á lyfjum. Sé vilji
til þess að geyma upplýsingar leng-
ur í vísindaskyni sé hægt að gera
gagnagrunninn ópersónugreinan-
legan eða finna aðrar leiðir til að
tryggja öryggi upplýsinganna.
Í nefndaráliti meirihluta heil-
brigðisnefndar um breytingar á
lyfjalögum kemur fram að sam-
kvæmt umsögn Landlæknisemb-
ættisins séu gögn í sambærilegum
gagnagrunnum á hinum Norður-
löndunum varðveitt í 30 ár. Per-
sónuvernd kannaði lagaumhverfi
gagnagrunna á Norðurlöndunum,
og komst að því að þetta á ekki við
rök að styðjast.
Persónuvernd sendi nýverið heil-
brigðisráðherra og formanni heil-
brigðisnefndar Alþingis bréf þar
sem vakin er athygli á þessu. Sig-
rún segir það skoðun Persónuvernd-
ar að breyta verði lögunum á nýjan
leik svo persónugreinanlegar upp-
lýsingar séu ekki geymdar lengur
en nauðsynlegt sé í miðlægum
gagnagrunni.
Ásta Möller, formaður heilbrigð-
isnefndar Alþingis, segir að í öllum
tilvikum séu persónuverndarsjón-
armið virt, aðgangur að gagna-
grunninum lúti ströngum reglum
og sé aðeins heimill með samþykki
landlæknis.
„Við hlustuðum á þessi sjónarmið
Persónuverndar, en okkar mat var
það að þær upplýsingar sem við
hefðum í höndunum réttlættu þess-
ar breytingar,“ segir Ásta.
Hún segir þau sjónarmið hafa
verið mikilvæg að stundum komi
aukaverkanir lyfja ekki fram fyrr
en mörgum árum eftir að þeim var
fyrst ávísað.
Hvorki náðist í landlækni né
aðstoðarlandlækni við vinnslu
fréttarinnar. brjann@frettabladid.is
LYFJAGAGNAGRUNNAR Á NORÐURLÖNDUNUM
Ísland Upplýsingar geymdar í 30 ár.
Danmörk Upplýsingar geymdar í tvö ár.
Finnland Upplýsingar geymdar í 30 mánuði, og eftir það í tíu ár í öðrum
gagnagrunni með strangari aðgangsheimildum.
Noregur Dulkóðaður gagnagrunnur, upplýsingum er ekki eytt.
Svíþjóð Upplýsingar geymdar í annað hvort þrjá mánuði eða fimmtán
mánuði.
Heimild: Persónuvernd
Kristinn, er leiklistin þér í blóð
borin?
Já, mér rann blóðið til skyldunnar.
Ég hef alltaf leikið mikið en mitt
hlutverk nú er reyndar ekki blóðugt.
Kristinn Á. Friðfinnsson sóknarprestur
leikur um þessar mundir í blóðugu
hryllingsmyndinni Reykjavík Whale
Watching Massacre. Hann hefur leikið í
fjölda mynda.
PAKISTAN, AP Ríkisstjórnin í
Pakistan ætlar að kæra Pervez
Musharraf forseta til embættis-
sviptingar.
Asif Ali Zardari og Nawaz
Sharif, leiðtogar stjórnarflokk-
anna, segja nauðsynlegt að víkja
honum úr embætti sem fyrst.
Musharraf hefur neitað að
segja af sér þrátt fyrir almennar
óvinsældir eftir að hann sigraði
með umdeildum hætti í þingkosn-
ingum síðastliðinn vetur. Hann
hefur stjórnað landinu síðan 1999
þegar hann steypti Sharif, sem þá
var forseti, af stóli. - gb
Staða Musharrafs veikist enn:
Reynt að svipta
hann embætti
SHARIF OG ZARDARI Leiðtogar stjórnar-
flokkanna í Pakistan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í
Borgarnesi hefur frá því um
síðustu helgi þurft að hafa
afskipti af fjórum ökumönnum
sem stungið hafa af frá ógreidd-
um reikningum vegna eldsneytis-
kaupa. Segir lögregla verulega
aukningu á slíkum málum, hvort
sem hægt er að tengja það háu
eldsneytisverði eða ekki.
Myndavélar eru á öllum helstu
bensínstöðvum landsins svo
auðvelt er fyrir lögreglu að afla
gagna um viðkomandi aðila. Að
sögn varðstjóra er þeim venju-
lega boðið að gera upp sín mál.
Annars gangi málin sinn gang í
dómskerfinu. - ovd
Aka brott án þess að borga:
Aukinn elds neytis-
þjófnaður
Gagnagrunni breytt
á röngum forsendum
Persónuvernd segir rangar upplýsingar frá landlækni hafa verið notaðar þegar lög-
um um lyfjagagnagrunn var breytt. Upplýsingar um lyfjakaup eru geymdar í 30 ár.
Persónuverndarsjónarmið voru virt segir formaður heilbrigðisnefndar Alþingis.
REYKJAVÍK F-listi Ólafs F. Magnús-
sonar, borgarstjóra fær aðeins
1,8 prósenta fylgi í Reykjavík
samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sem Capacent gerði fyrir Stöð 2.
F-listinn fékk rúm 10 prósent
atkvæða í borgarstjórnarkosn-
ingunum vorið 2006.
Samkvæmt sömu könnun fær
Samfylkingin tæplega 48
prósenta fylgi sem er nærri
tvöfalt á við það sem flokkurinn
fékk í síðustu kosningum. Fylgi
Sjálfstæðisflokks minnkar úr
tæpum 43 prósentum í tæp 27 og
fylgi Framsóknarflokks minnkar
úr rúmum 6 í rúm 2 prósent.
Vinstri græn auka fylgi sitt úr
13,5 prósentum í tæp 22 prósent.
- ovd
Samfylkingin í mikilli sókn:
Meirihluti með
30 prósent fylgi
DEILT UM LYFJAGAGNAGRUNN Persónuvernd segir landlækni hafa gefið rangar upp-
lýsingar í umsögn sinni um breytingar á lyfjalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUMÁL Tvítugur Lithái er grunaður um að hafa
reynt að smygla fíkniefnum innvortis til landsins.
Kári Gunnlaugsson, aðaldeildarstjóri Tollgæslunn-
ar á Keflavíkurflugvelli, segir að maðurinn hafi verið
sendur í röntgenmyndatöku sem leiddi í ljós að
minnsta kosti tuttugu aðskotahluti í meltingarvegi
hans.
„Rannsóknin er samt enn á frumstigi svo að við
getum lítið aðhafst fyrr en við vitum um hvaða efni
er að ræða og hve mikið hann er með af þeim.“
Maðurinn var handtekinn við reglubundið eftirlit
Tollgæslunnar síðastliðinn miðvikudag. Hann var á
leiðinni hingað til lands frá Amsterdam í Hollandi og
er nú í vörslu lögreglunnar á Suðurnesjum.
Lögregla bíður þess nú að hlutirnir fari í gegnum
meltingarkerfi hans á eðlilegan hátt. Það tekur
venjulega nokkra daga en þó eru dæmi um að þau
hafi látið bíða eftir sér hátt á þriðju viku.
Eins og áður sagði er ekkert enn vitað um efnin
sem maðurinn er með í iðrum sér en í nýlegum
málum af þessu tagi hefur verið um amfetamín eða
kókaín að ræða. - hþj
Tvítugur maður handtekinn grunaður um smygl:
Myndataka sýndi aðskotahluti
FÍKNIEFNI Í VÖRSLU LÖGREGLUNNAR Ekki er vitað hvaða efni
maðurinn er með. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÖRN Á barnanámskeiðinu Hestur
í fóstur gefst börnum tækifæri til
að taka að sér klár. Þar fá þau
innsýn í hestamennsku með því að
hirða hesta, fóðra þá, kemba,
moka undan þeim og fara í
útreiðartúra á tólf vikna löngu
námskeiði sem haldið er á vegum
Íshesta og hefur átt miklum
vinsældum að fagna síðustu ár.
„Að eignast vin í ljúfum klár er
það besta fyrir börnin, enda mikill
vinskapur sem kviknar milli
barns og hests, og tregafull
kveðjustund þegar námskeiði
lýkur,“ segir Silja Ólöf Birgis-
dóttir, starfsmaður Íshesta.
-þlg/sjá sérblaðið skólar og námskeið
Barnanámskeið hjá Íshestum:
Vinsælt að taka
hest í fóstur
FÉLAGSMÁL Borgarráð Reykjavíkur hefur sam-
þykkt að veita Mæðrastyrksnefnd 800 þúsund
króna styrk vegna öryggisgæslu á úthlutunardög-
um. Í vetur hafa tveir öryggisverðir frá Securitas
verið að störfum á úthlutunardögum.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar, segir þetta vera fyrirbyggj-
andi aðgerð. „Það hafa orðið smávægilegir
núningar og við viljum ekki að það gerist aftur.
Við viljum tryggja að allir séu öruggir,“ segir
Ragnhildur.
Hún segir samsetningu þeirra sem sækja aðstoð
til nefndarinnar hafa breyst. „Neysluvenjur fólks
hafa breyst mjög mikið og þetta er orðinn harðari
heimur. Fólki líður illa, það er óttaslegið og
vansælt og sér fram á að geta ekki látið enda ná
saman. Það getur skapað öryggisleysi og það
getur haft ýmislegt í för með sér.“
Ragnhildur segir engin alvarleg tilvik hafa
komið upp, en allur sé varinn góður. Annar
öryggisvörðurinn stýrir umferð, en hinn er inni
við þar sem afhending fer fram.
Mæðrastyrksnefnd sótti um styrk til velferðar-
ráðs en umsóknin barst of seint fyrir styrkúthlut-
un fyrir árið 2008. Ráðið mælti með því við
borgarráð að styrkurinn yrði veittur. - kóp
Borgarráð styrkir Mæðrastyrksnefnd um 800 þúsund krónur:
Öryggisgæsla hjá Mæðrastyrksnefnd
ÞARF ÖRYGGISGÆSLU Ragnhildur segir öryggisgæsluna hjá
Mæðrastyrksnefnd hafa gefið góða raun og vera fyrirbyggjandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNTAMÁL Nýbygging fyrir
unglingadeild Korpuskóla verður
byggð við skólann samkvæmt til-
lögu sem rædd var á fjölsóttum
fundi foreldra í Staðahverfi, for-
eldraráðs Korpuskóla og fulltrúa
frá menntasviði Reykjavíkurborg-
ar í Korpuskóla í gærkvöldi.
Tillagan gerir ráð fyrir að
nýbyggingin verði tekin í notkun
haustið 2010 en þangað til verði
unglingum kennt í Víkurskóla. Þá
verði bráðabirgðabyggingar við
skólann fjarlægðar en myglu-
sveppir og bakteríur greindust í
miklu magni í sýnum sem tekin
voru í byggingunum í júní.
Júlíus Vífill Ingvarsson, formað-
ur menntaráðs Reykjavíkur segir
kostnað við nýbygginguna áætlað-
an um 110 milljónir króna. Nýjar
bráðabirgðabyggingar myndu
hinsvegar kosta 80 milljónir en
endingartími slíkra bygginga væri
þar að auki helmingi skemmri en
nýrra viðbygginga.
- ovd/ht
Bráðabyrgðabyggingar teknar:
Byggt við
Korpuskóla
SPURNING DAGSINS