Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.08.2008, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 15.08.2008, Qupperneq 22
22 15. ágúst 2008 FÖSTUDAGUR Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. DEBRA MESSING LEIKKONA ER 40 ÁRA Í DAG „Þegar ég var barn söng ég ávallt og dansaði fyrir móður mína, á milli þess sem ég horfði á þættina I love Lucy og The Carol Burnett Show.“ Debra Messing fæddist þenn- an dag í Brooklyn, New York. Hún er þekktust fyrir leik sinn í skemmtiþáttunum Will & Grace. Á þessum degi árið 1969 hófst tónlistarhátíðin Woodstock. Há- tíðin var hald- in í Bethel í New York-ríki, sextíu og níu kílómetr- um frá bænum Woodstock. Woodstock-hátíðin einkenndi þau menningarskil sem áttu sér stað í bandarísku samfélagi. Ungt fólk þessa tíma vildi meira frelsi og reis upp gegn íhalds- sömum gildum sjötta áratug- arins og afturhaldslegri stjórn- málastefnu kalda stríðsins. Hippatímabilið blómstraði bæði í samfélaginu og á hátíðinni. Talið er að rúm- lega fjögur hundr- uð þúsund manns hafi komið saman til að hlýða á þá sem fram komu á hátíðinni. Meðal þeirra sem spiluðu voru: Jimi Hendrix, Joe Cocker, Creedence Clearwater Revival og Joni Mitchell. Slagorð Woodstock voru; Þrír dagar af tónlist og frið og var hátíðin sú stærsta í heiminum á þessum tíma. Tímaritið Rolling Stone valdi Woodstock-hátíðina á lista yfir fimmtíu stærstu atburði sem breytt hafa sögu rokksins. ÞETTA GERÐIST: 15. ÁGÚST 1969 Rokkhátíð allra tíma Í dag hefst tónlistarhátíðin Berjadag- ar í Ólafsfirði og stendur hátíðin fram á sunnudag. Þetta er í tíunda sinn sem hátíðin er haldin. Örn Magnússon, listrænn stjórn- andi og framkvæmdastjóri hátíðarinn- ar, segir að ýmislegt verði gert til halda upp á þessi tímamót, en á hátíðinni er flutt aðgengileg kammertónlist auk annarra uppákomna. Að sögn Arnar var löngu búið að ákveða að flytja Árstíðirnar fjórar eftir Vivaldi á tíu ára afmæli hátíðarinnar. „Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari leikur einleik í Árstíðunum og hefur hún fengið til liðs við sig gott fólk úr Sinfóníuhljómsveitinni, Bachsveitinni í Skálholti og úr öðrum sveitum. Guð- mundur Ólafsson leikari mun svo lesa sonettur Árstíðanna,“ segir Örn. Á laugardaginn verða tónleikar í gömlu kirkjunni á Kvíabekk þar sem flutt verður tónlist úr íslenskum hand- ritum við undirleik gamalla hljóðfæra. „Notuð verða hljóðfæri sem sjást ekki á hverjum degi, eins og langspil, harpa og gígja. Það verður fjölskylduhljóm- sveitin Spilmenn Ríkínís sem flytur veraldleg lög, ástarljóð og kvæði úr handritinu Melódíu frá 1650,“ segir Örn. Enn fremur mun Eggert Péturs- son myndlistarmaður opna sýningu á nýjum verkum í Listhúsi í Fjalla- byggð. Að sögn Arnar verður hátíðin í ár með hefðbundnu sniði. „Við höfum allt- af vandað okkur mjög með efnisskrána þannig að ég vil nú ekki segja að þessi hátíð verði glæsilegri en fyrri hátíðir. Þær hafa alltaf verið mjög vandaðar,“ segir Örn, en hann hefur verið fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar nær öll árin. Einkunnarorð Berjadaga eru tón- list og náttúra og segir Örn hugmynd- ina þá að fólk geti notið fallegrar tón- listar í stórbrotinni náttúru Tröllaskag- ans. Örn er sjálfur klassískt menntað- ur píanóleikari og hugsuðurinn á bak við hátíðina. „Ég var í tónlistarnámi erlendis og mig langaði að flytja tón- listina heim til Ólafsfjarðar, en ég er þaðan. Haustið er líka eftirlætistíminn minn. Þannig varð hugmyndin að hátíð- inni til,“ segir Örn. Á þeim tíu árum sem Berjadagar hafa verið haldnir hefur hróður henn- ar og orðspor farið vaxandi. „Hátíðinni hefur verið vel tekið og ljómandi vel sótt,“ segir Örn. Þeir sem vilja kynna sér dagskrá há- tíðarinnar er bent á heimasíðuna www. fjallabyggd.is. klara@frettabladid.is TÓNLISTARHÁTIÐIN BERJADAGAR Í ÓLAFSFIRÐI: HALDIN Í TÍUNDA SINN Árstíðirnar í fallegri náttúru ÖRN MAGNÚSSON, framkvæmdastjóri Berjadaga í Ólafsfirði, segir dagskrána í ár stórglæsilega að vanda. MYND/SINDRI SVAN ÓLAFSSON timamot@frettabladid.is Okkar ástkæra Ágústa Skúladóttir Vallholti 39, Selfossi, sem lést mánudaginn 4. ágúst verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 16. ágúst klukkan 11.00. Kjartan T. Ólafsson Jökull Veigar Kjartansson Elín Sigmarsdóttir Ólafur Helgi Kjartansson Þórdís Jónsdóttir Skúli Kjartansson Nancy Barish Hjálmar Kjartansson Guðný Anna Arnþórsdóttir Bergdís Linda Kjartansdóttir Þórður Kristjánsson ömmu- og langömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín H. H. Magnúsdóttir sem andaðist 1. ágúst sl., verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 18. ágúst kl. 15.00. Arndís R. Magnúsdóttir Gunnar G. Kristjánsson Magnús Á. Magnússon Hrafnhildur Ingólfsdóttir Sverrir S. Magnússon Svala H. Jónsdóttir Sævar Magnússon Halla Þ. Stephensen Halla B. Magnúsdóttir Þorsteinn G. Ólason barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Hörður Þórhallsson húsasmiður, Brúnavegi 5, Reykjavík, lést á líknardeild Landakotsspítala þriðjudaginn 12. ágúst. Verður jarðsunginn föstudaginn 22. ágúst kl. 15.00 frá kirkju Óháða safnaðarins. Halldóra K. Guðjónsdóttir Elín Birna Harðardóttir Ársæll Gunnsteinsson Katrín Úrsúla Harðardóttir Guðni B. Guðnason G. Svafa Harðardóttir Þórhallur G. Harðarson Brynja Björk Rögnvaldsdóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðdís Guðmundsdóttir andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð miðvikudag- inn 6. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Reynir Sveinsson Guðlaug Leifsdóttir Smári Sveinsson Bergdís Sigurðardóttir Kristinn Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ragnar Vigfússon síðast til heimilis að Miklubraut 1, Reykjavík, lést föstudaginn 8. ágúst. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 20. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður í Vopnafjarðarkirkjugarði fimmtudaginn 21. ágúst. Vigfús Már Ragnarsson Margith Eysturtún Sigþór Viðar Ragnarsson Elsa Auður Sigfúsdóttir Jóhannes Óli Ragnarsson Lena Rögnvaldsdóttir Ragnar Þór Ragnarsson Andrias E. Vigfússon Arndís E. Vigfúsdóttir Alexander Máni Sigþórsson Ástkær sambýlismaður minn og bróðir, Svanur Jónsson frá Höfnum, Njálsgötu 32B, Reykjavík, lést sunnudaginn 3. ágúst á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Pranom Mankamnert Ragna Bjarnadóttir (Lóa). Okkar ástkæra Unnur Kristjánsdóttir frá Þingvöllum, andaðist á sjúkrahúsi Stykkishólms 11. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Aðstandendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.