Fréttablaðið - 15.08.2008, Blaðsíða 25
[ ]Draugasetrið á Stokkseyri er skemmtilegur og fræð-andi staður sem gaman er að heimsækja. Áhugaverður áningarstaður í sunnudagsbíltúrnum.
Kántrýdagar á Skagaströnd
verða haldnir um helgina.
Kántrýdagar eru haldnir á Skaga-
strönd eins og flestir vita og verða
þeir haldnir um þessa helgi. Dag-
skráin verður einstaklega skemmti-
leg og fjölbreytt í ár. „Dagskráin er
mjög fjölbreytt og ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi, hvort
sem það eru tónleikar, sýningar eða
námskeið sem fólk er að leita eftir,“
segir Sigurður Sigurðarson, mark-
aðsráðgjafi Sveitarfélagsins á
Skagaströnd. „Til dæmis verður
spákonan Sigríður Klingenberg
með uppistand í Café Bjarmanesi,
dansleikur verður með hljómsveit-
inni Janus í Kántrýbæ og myndlist-
arsýningar. Þetta er einungis brot
af dagskránni, svo mikið er í boði.“
Einn áhugaverður atburður er
svokallað „busker“-námskeið.
„Busk“ er aldagömul listgrein og
hluti af menningu margra stór-
borga. „Buskarar“ koma fram á
götum og torgum og eru með alls
kyns uppistand, spila,
syngja og margt fleira.
Aðalleiðbeinandinn á
námskeiðinu verður tón-
listarmaðurinn KK.
Þátttakendum
gefst kostur á að
reyna sig við
busk á Skagaströnd
og jafnvel koma fram á
sviði ásamt KK og fleiri buskur-
um á Kántrýdögunum. KK hefur
fengið sér til halds og trausts einn
þekktasta busker Evrópu, Leo Gill-
espie.
Öllum er heimil þátttaka, skiptir
ekki máli á hvaða hljóðfæri þátttak-
endur spila.
Námskeiðið hófst í gær og stend-
ur til sunnudags en mögulegt er að
vera með frá föstudegi til
sunnudags. Skráning
er hafin á vefnum
skagastrond@
gmail.com.
Á Kántrý-
dögum verða
einnig haldn-
ir Listadagar
í fyrsta sinn.
Þeir verða í
gamla frystihús-
inu við Einbúastíg.
„Ég fékk þessa flugu í höfuðið fyrir
um ári og fékk Maríu Markovic
með mér í lið til að láta Listadagana
verða að veruleika,“ segir Erla
María Lárusdóttir, einn skipuleggj-
enda Listadaga. „Við erum með fólk
á ýmsum aldri sem öll eiga það sam-
eiginlegt að tengjast Skagaströnd á
einhvern hátt.“
„Á Listadögum verða sýningar
eftir ljósmyndara og málara. Sýnd-
ar verða teikningar og ljóð flutt og
tónlist leikin. Á opnunarhátíðinni á
laugardaginn verða síðan tónleikar
þar sem fjölbreytt tónlist verður
flutt.“
Þátttakendur í Listadögum eru á
öllum aldri. „Sá yngsti er að ég held
8 ára og sá elsti er á elliheimili,“
segir Erla María spennt. Ókeypis er
inn á hátíðina og á tjaldsvæðin.
Allar nánari upplýsingar má nálg-
ast á www.skagastrond.is.
sigridurp@frettabladid.is
Komdu vinur í Kántrýbæ
Það er líf og fjör á Kántrýdögum. MYND/ÁRNI GEIR INGVARSSON
Reykjanesbæ • Hafnargötu 10 • s: 421 4601 • www.rain.is • rain@rain.is