Fréttablaðið - 15.08.2008, Side 30
Birna Dögg Guðmundsdóttir hætti
störfum sem verslunarstjóri Tops-
hop til þess að setjast aftur á skóla-
bekk. Í haust hyggur hún á nám í út-
stillingum í Iðnskólanum í Hafnar-
firði og segist hún hlakka mikið til
námsins.
Hvernig mundir þú lýsa stílnum
þínum? Stíllinn minn er svolítið
„twisted“, svona eins og ég sjálf,
enda fædd á mörkum tveggja
stjörnumerkja. Hann rokkar frá
því að vera fremur „casual“ í að
vera elegant. Þar inn í spilar svo
veðurfar og skap.
Hvaðan sækirðu þér innblástur þegar
kemur að fatastílnum? Hér og þar,
en líklegast í mínu nánasta um-
hverfi, auðvitað tekur maður allt-
af smá mið af blöðunum. Ég reyni
þó allaf að vera sjálfri mér trú og
klæði mig í það sem mér finnst
vera fallegt og fara mér vel.
Hvar verslarðu helst? Hér heima
versla ég helst í Rokki og rósum og
Topshop þar sem sterk bönd tengja
mig við þá búð. Ég hætti þar sem
verslunarstjóri fyrir stuttu til þess
að setjast aftur á skólabekk. Einnig
hef ég haft gaman af því að kíkja í
Kronkron eftir mánaðamót.
Áttu þér einhvern uppáhaldshönnuð?
Ég á mjög erfitt með að svara þess-
ari spurningu. Oft er einhver ein
lína alveg geggjuð hjá hönnuði og
sú næsta alveg út í hött. En ég var
hrifin af tveimur síðustu línum Lu-
ellu Bartley, stelpulegt með töff-
aralegum blæ.
Uppáhaldsfatamerki? Þar verð ég
að nefna Opening Ceremony ásamt
Acne Jeans.
Bestu kaupin? Mér finnst ég alltaf
gera góð kaup þangað til að ég átta
mig í raun á einhverju öðru. En
ég held að ég verði að segja Open-
ing Ceremony-peysan mín sem ég
hef mikið notað, bæði við kjóla og
gallabuxur.
Verstu kaupin? Úff, það slæðist allt-
af eitthvað misfallegt með heim,
en nýjustu mistökin mín eru lík-
legast rauður kufl sem ég keypti í
Marokkó fyrir stuttu þar sem götu-
sölumaðurinn gat sannfært mig
um að hann væri eitthvað sem ég
þyrfti að eignast. Þegar upp á hótel
var komið þá reyndist þetta vera
ein hræðilegasta og verst sniðna
flík sem ég hef séð í óratíma. Ég er
hrædd um að hann verði ekki not-
aður í grímupartíi næstkomandi
helgi eins og til stóð.
Fyrir hverju ertu veikust? Ég er í
raun alltaf veik fyrir falleg-
um hlut-
um hvort sem það eru hælar eða
sjarmerandi karlmenn. En já, flott-
ir skór eru tiltölulega ný fíkn hjá
mér ásamt því að ég er mjög veik
fyrir fallegum nærfötum.
Uppáhaldsbúðin? Ég er mikill að-
dáandi H&M sem mér finnst alltaf
jafn gaman að fara í erlendis. Einn-
ig er ég algjör sökker fyrir Bout-
ique-línu Topshop, sem því miður
er ekki enn seld hér á landi. Ég
reyni alltaf að kippa einu stykki
eða svo með mér heim þegar ég fer
til útlanda.
Nauðsynlegt í fataskápinn? Auka-
hlutir eins og skart og klútar, þeir
geta haft gríðarleg áhrif á heildar-
lúkkið.
Hvað dreymir þig um að eignast
núna? Eins og svo oft áður eru
það nokkrir hlutir sem ég er að
velta fyrir mér að fjárfesta í. Þar
á meðal er skyrtukjóll frá Marjan
Pejoski sem fæst í Kronkron, klút-
ur frá Kb sem fæst í Belleville,
jazz-skór frá Topshop, loðfeldur frá
Rokki og rósum og listinn heldur
áfram …
Hvernig er heimadressið þitt? Þegar
ég kem heim á kvöldin þá er ég vön
að skella mér beint í náttbuxur og
hafa það náðugt.
1 Peysan er Topshop Boutique. Skórnir og
nælan eru einnig úr Topshop. 2 Skór frá
merkinu Hazel, keyptir á Malaga. 3 Karríg-
ula peysan frá Opening Ceremony sem ég
keypti í Kronkron er uppáhaldspeysan mín.
4 Verstu kaupin mín er þessi rauði kufl sem
mátast eins og brandari. 5 Gráir rúskinns-
skór með dúsk, þessa elskur fékk
ég í Topshop, Kringlunni. 6 Þess-
ar nælur bjó ég til úr postulíni og er
ég mjög ánægð með afraksturinn og
hef ég mikið notað þær á jakka og
hettupeysur. 7 Kímónó frá verslun-
inni Rokk og rósir.
Geri alltaf góð kaup
fatastíllinn
Birna Dögg Guðmundsdóttir nemi
1
www.forlagid.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
76
2
4
3
5
4 • FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 2008