Fréttablaðið - 20.08.2008, Síða 1

Fréttablaðið - 20.08.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MIÐVIKUDAGUR 20. ágúst 2008 — 225. tölublað — 8. árgangur Flytur úr Garðabæ í Hveragerði Eigandi verslunarinnar segir þetta tímamót í sögu Hannyrða- búðarinnar. TÍMAMÓT 18 ARI HÁLFDÁN AÐALGEIRSSON Spilað á munnhörpu og sungið í Napolí • ferðir • bílar • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS Hittumst á Hellu!LANDBÚNAÐARSÝNINGIN HELLU 22.–24. ÁGÚST 2008 www.landbunadarsyning.is Nýtt í Hagkaupum Viltu bæta hlaupatímann þinn án meira álags? Smart Motion hlaupastíllinn er kominn á DVD í Hagkaup! Bæklingur fylgir í dag! Yrkir um almættið Pétur Sigurgeirsson biskup á dágott safn ljóða sem hann hefur sjálfur ort. FÓLK 25 Smáa l Guðrún Jóhannsdóttir matgæðingur hefur skrifað tvær handhægar matreiðslubækur, Hollt og ódýrt og Hollt og fljótlegt sem Salka gefur út.„Í mínum huga er hollur matur fyrst og fremst fólginn í fjölbreytni,“ segir Guðrún sem er óhrædd við að prófa nýj- ungar í matargerð og lítur á það sem ævintýri að fara í sér- staka leiðangra að leita að kryddi.Lesendur Fréttablaðsins þekkja Guðrúnu að góðu. Hún hefur verið með matarpistla og uppskriftir í blaðinu í rúm þrjú ár undir yfirskriftinni Til hnífs og skeiðar. Lengi vel miðuðust hráefniskaup við þúsundkallinn og hafa áreiðan- lega margir blessað Guðrúnu í huganum fyrir lækkaðan matarreikning. Nú eru þessar uppskriftir komnar út á bók sem heitir Hollt og ódýrt. „Sumar uppskriftirnar hafði ég notað sjálf í mörg ár en aðrar voru þróaðar næstum jafnóðum með tilraunastarf- semi því ég hef alla tíð verið forvitin og óhrædd við að prófa mig áfram. Mér þykir gaman að sækja í matreiðsluhefðir annarra landa og gera mínar útfærslur á réttunum og finnst líka frábært hversu framboð af góðu og fjölbreyttu hráefni hefur aukist hér á landi. Í þeim meðbyr sem ég haft í sam- bandi við pistlana finn ég að margir eru opnir fyrir því að prófa uppskriftir og spennandi krydd úr fjarlægum álfum. Mér finnst hugmyndin um að ferðast með bragðlaukunum heillandi.“ Spurð hvernig gangi að halda kostnaði niðri en vera samt með framandi hráefni svarar hún: „Margt af því sem til- heyrir ítalskri og austurlenskri matargerð er frekar ódýrt en í bókinni Hollt og fljótlegt einskorða ég mig ekki bara við ódýru uppskriftirnar. Guðrún tekur sjálf myndirnar í bækurnar. „Þegar ég byrjaði á pistlunum þá vildi ég ekki binda mig við að fá ljós- myndara á ákveðnum tíma heldur elda réttinn þegar það hentaði mér og innblásturinn kom. Ég hafði föndrað við ljósmyndun og ákvað að taka myndirnar sjálf. Svo hefur það þróast yfir í mikla ástríðu og áhuga á matarljósmynd- un. Það má því segja að hér sé algert tilraunaeldhús.“ Guðrún gefur lesendum Fréttablaðsins uppskrift að ítölskum tvíbökum á bls. 6. Óhrædd við að prófa sig áfram GEIRFUGLARNIR Mikil aðdáun á Árna Bergmann Nota gamla bókarkápu á nýtt plötuumslag FÓLK 34 EFNAHAGSMÁL Geir H. Haarde forsætisráð- herra segist enn vera þeirrar skoðunar að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan. Hann telur hins vegar rétt að íslensk stjórnvöld stefni að því að uppfylla Maastricht-skilyrði evrópska myntbandalagsins um upptöku evru sem fyrst, óháð aðild að sambandinu. „Það eru almennir hagsmunir okkar að gera það óháð Evrópusambandinu,“ segir forsætisráðherra í viðtali við Markaðinn í dag. „Við munum uppfylla öll Maastricht-skilyrð- in ef við náum þeim árangri sem að er stefnt og lýst í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og þá verður ekki nein ástæða til að taka upp annan gjaldmiðil því þá verður kominn sá stöð- ugleiki sem nauðsynlegur er,“ segir hann. Geir upplýsir í viðtalinu að frekari umbæt- ur standi til á Íbúðalánasjóði, félagslegi hluti lánveitinga verði tekinn út og aðgreindur frá öðrum, búinn til heildsölubanki og breytingar gerðar á ríkisábyrgð. Geir segir unnt að hagræða frekar á fjármálamarkaði með sameiningu fyrirtækja og ríkisstjórnin muni stuðla að því. Hann telur rétt að huga að einkavæðingu Íslandspósts og segir menntamálaráðherra undirbúa breyting- ar á þátttöku Ríkisútvarpsins á auglýsinga- markaði. „Auðlindir eru ekki mikils virði ef þær eru ekkert nýttar og engin þjóð telur sig hafa efni á að nýta ekki þær auðlindir sem hún ræður yfir,“ segir Geir og telur rétt að ljúka undirbúningi við virkjanir í neðri hluta Þjórsár og útilokar ekki eignarnám í þeim efnum. Hann vill einnig sjá Búðarhálsvirkjun og ljúka undirbúningi við Bitruvirkjun og segir fulla samstöðu í ríkisstjórn um stuðning við fyrirhugað álver á Bakka. - bih / sjá Markaðinn Geir vill að Ísland uppfylli skilyrði um upptöku evru Forsætisráðherra segir að Íbúðalánasjóður verði heildsölubanki og breytingar verði gerðar á ríkisábyrgð lána. Hann segir fulla samstöðu í ríkisstjórn um álver við Bakka. Geir styður Bitruvirkjun og útilokar ekki eignarnám í neðri hluta Þjórsár. Sameina þurfi fjármálafyrirtæki og huga að einkavæðingu Íslandspósts. PEKING 2008 Ísland spilaði í morgun við Pólland í átta liða úrslitum handboltakeppni Ólympíuleikanna í Peking. Landsliðsþjálfararnir vonuðu að það væri góður fyrirboði fyrir leikinn í morgun að þeir hittu tvær af stærri knatt- spyrnustjörnum heimsins á mánudaginn. Fyrstur varð Ronaldinho á vegi þeirra í Ólympíuþorpinu og seinna rákust þeir á Diego Armando Maradona þegar þeir heimsóttu sjálfan Kínamúrinn. Takist strákunum að vinna Pólverja þá mun liðið spila til verðlauna á leikunum. Fari svo, eins og Íslendingar vonast til, mætir það sigurvegaranum í viðureign Kóreu og Spánar í undanúrslitum. Ísland hefur aðeins einu sinni komist alla leið í undanúrslit í handboltakeppni Ólympíuleik- anna en það var á leikunum í Barcelona fyrir sextán árum. -óój, -hbg / sjá síðu 31 Þjálfarar handboltaliðsins: Hittu sjálfan Maradona MEÐ MARADONA Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari og aðstoðarmaður hans Gunnar Magnússon sjást hér með knattspyrnugoðsögninni Diego Armando Maradona. LÉTTSKÝJAÐ Í dag verða norðan 5-10 suðaustan til og austast ann- ars hægviðri. Víða léttskýjað þegar líður á daginn, síst við austur- og suðausturströndina. Hiti 10-18 stig, hlýjast í uppsveitum syðra. VEÐUR 4 12 12 10 1412 Gríðarlegur liðsstyrkur Körfuboltakapparnir Jón Arnór Stefánsson og Jakob Örn Sigurðar- son leika með KR í vetur. ÍÞRÓTTIR 30 VEÐRIÐ Í DAG VEÐUR „Þetta var algjörlega ofmet- ið,“ segir Bjarni Þór Ásgeirsson flugnemi sem staddur er í Napels á Flórída um hitabeltisstorminn Fay sem heimamenn hræddust mjög. Útgöngubann var víða sett og skólum lokað auk þess sem ríkis- stjóri fylkisins lýsti yfir neyðar- ástandi. Bjarni gefur þó lítið fyrir áhyggjur innfæddra. „Við mynd- um kalla þetta vont veður heima á Íslandi. Ég er úr Grafarholtinu þannig að ég þekki þetta.“ Borist hafa fréttir af áhrifum óveðursins á svæðinu, meðal ann- ars um rafmagnsleysi hjá nærri sex þúsund manns og að 150 hafi þurft að gista í stormskýlum. „Jú, það er mikil rigning og vatn flæðir um götur, en maður kemst samt um. Pálmagreinar og eitt- hvert drasl fýkur um en það er alls ekki mikil eyðilegging,“ segir Bjarni sem þótti verst að útgöngu- bann yfirvalda hefði truflað fyrir- hugað póker- og bjórkvöld félaga hans. Áður en stormurinn kom til Bandaríkjanna fór hann um Haítí og Dóminíska lýðveldið þar sem hann olli meiri usla en í Banda- ríkjunum. Talið er að tugir manna hafi látist þar. Gert var ráð fyrir að bæta myndi í veðrið áður en það næði til Flórída. - ges Íslendingur í Flórída gefur lítið fyrir áhyggjur heimamanna af hitabeltisstorminum Fay: Mikill viðbúnaður fyrir lítið Hitar upp fyrir Air Hljómsveitin Bang Gang með Barða Jóhannsson í fararbroddi hitar upp fyrir dúettinn Air á tvennum tónleikum í Frakklandi í október. FÓLK 34

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.