Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 58
30 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI KR-ingar fengu engan smá liðsstyrk
í körfuboltanum í gær þegar tveir bestu
körfuboltamenn þjóðarinnar, Jón Arnór
Stefánsson og Jakob Örn Sigurðarson, tilkynntu
að þeir myndu spila með KR í vetur. Báðir segja
þeir ástæðuna vera að þeir séu orðnir leiðir á
flökkulífi atvinnumannsins og vilji fá tækifæri
til að rækta sambandið við fjölskyldu og vini.
Þeir ætla báðir að klára þetta tímabil í Vestur-
bænum og ekkert freistandi tilboð breyti því.
„Þetta er eitthvað sem ég er að gera fyrir
sjálfan mig. Mig langar að vera heima og lifa
eðlilegu lífi. Taka eitt ár í frí frá þessu atvinnu-
mannalífi,“ segir Jón Arnór. „Ég ætla að setjast
á skólabekk og klára stúdentinn í Háskóla
Reykjavíkur,“ segir Jón Arnór og telur hann að
Jakob sé á svipuðum stað.
„Þú gætir alveg verið að tala við Kobba eins
og mig. Við erum ekki búnir að vera heima um
jólin í átta ár sem er bara fáránlegt. Þetta snýst
því mikið um mína fjölskyldu og vini. Ég þarf að
rækta sambandið við þau og sjálfan mig í
leiðinni. Þetta er skemmtilegt fyrir KR og
íslenskan körfubolta.“
„Það er alltaf pressa á KR að vinna,“ segir
Jón Arnór aðspurður, „og þetta breytir því litlu,
en ætli það verði ekki að viðurkennast að
pressan er kannski aðeins meiri núna.“
Jakob er á sama máli. „Þetta eru mjög góðar
fréttir fyrir KR. Þarna eru tveir komnir aftur
sem ólust upp hjá félaginu en fóru svo út. Ég
held að þetta sé mjög gott fyrir KR. Það er
frábært að fá að spila með Jóni Arnóri í KR.
Hann er frábær leikmaður og það verður mjög
gaman að spila með honum og öllu hinum gömlu
félögunum. Við ákváðum þetta samt sitt í hvoru
horninu og við vorum ekkert búnir að tala
saman um að koma heim,“ segir Jakob.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðsins, var
líka kátur. „Þetta var góð afmælisgjöf á 36 ára
afmælisdeginum. Ég var örugglega jafn hissa
og flestir hérna í dag fyrir svona fimm, sex
dögum síðan og mér leist ekkert á það til að
byrja með því hann [Jón Arnór] á að vera að
spila í toppdeildum. Svo þegar við ræddum
málin betur og fórum yfir það sem hann var að
hugsa og spá þá var þetta bara rakið,“ segir
Benedikt, en hvað tekur við eftir þetta ár.
„Ég hef engar áhyggjur af Jóni því hann er
það stórt nafn í Evrópu og ég hef bullandi trú á
því að þeir fari báðir út í ekki minna dæmi en
þeir hafa verið í.“ - óój
Landsliðsmennirnir Jón Arnór Stefánsson og Jakob Örn Sigurðarson ætla að spila með KR-liðinu í vetur:
Hafa ekki haldið jólin á Íslandi í átta ár
SAMAN Í KR Jón Arnór Stefánsson og Jakob Örn
Sigurðarson ásamt Böðvari Guðjónssyni, formanni
körfuknattleiksdeildar KR. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Karlalandslið Íslands í fótbolta leikur vináttulandsleik gegn
Aserbaídsjan í kvöld kl. 19.45 á Laugardalsvelli en þetta er
síðasti leikur liðsins fyrir undankeppni HM 2010. Lands-
liðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson hefur gefið mörgum
leikmönnum tækifæri til þess að sanna sig en alls hafa
þrjátíu og níu leikmenn komið við sögu í þeim sjö leikj-
um sem hann hefur stýrt liðinu.
„Ég er núna að mestu leyti búinn að prófa það sem ég
ætlaði að prófa. Ég er annars sér í lagi ánægður með alla
þessa ungu stráka sem hafa komið inn í hópinn hjá mér
og staðið sig vel,“ segir Ólafur.
Ólafur gaf það út þegar hann tók við liðinu að hann
myndi leggja höfuðáherslu á varnarleikinn og hann er
sáttur við afraksturinn til þessa.
„Við höfum lagt í mikla vinnu við að bæta varnarleik-
inn og ég hef verið ágætlega sáttur við hverju það hefur
skilað upp á síðkastið. Við munum því leggja aðeins meiri
áherslu á sóknarleikinn gegn Aserum og færa okkur framar
á völlinn og sjá hvernig til tekst. Ég tel að Aserar komi til
með að leika svipaðan bolta og Makedóníumenn og það á vonandi
eftir að nýtast okkur að hafa mætt þeim þegar kemur í undan-
keppnina,“ segir Ólafur en njósnarar á vegum landsliðsins verða að
störfum í kvöld til þess að fylgjast með mótherjum Íslands í und-
ankeppninni. Kristján Guðmundsson verður á leik Lúxemborgar
og Makedóníu, Leifur Garðarsson verður á leik Skotlands
og N-Írlands og Rúnar Kristinsson fylgist með mótherjum
Íslands í fyrsta leik undankeppninnar, Norðmönnum,
taka á móti Írlandi.
Norskir fjölmiðlar hafa annars hneykslast mjög
undanfarið og spurt af hverju Veigar Páll Gunnars-
son sé ekki í landsliðshóp Íslands og Ólafur skilur
hneykslun þeirra að mörgu leyti.
„Ég hef reyndar ekki séð umfjöllunina en spurn-
ingin sem slík á alveg rétt á sér. Veigar Páll hefur
staðið sig frábærlega í Noregi og er líklega einn af bestu
leikmönnunum þar. Ég valdi hann ekki núna en það er
ekkert sem segir að ég velji hann ekki fyrir Noregsleikinn,“
segir Ólafur.
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN ÓLAFUR JÓHANNESSON: HELDUR ÁFRAM AÐ ÞRÓA LEIK ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS Í KVÖLD
Leggjum meiri áherslu á sóknarleik gegn Aserum
>Hlutirnir þróast hratt hjá Jóhanni Berg
Hinum sautján ára Jóhanni Berg Guðmundssyni hefur
skotið upp á stjörnuhimininn með Breiðablik í Lands-
bankadeildinni í sumar. Framherjinn ungi hefur leikið
mjög vel og var verðlaunaður með sæti í landsliðshópn-
um fyrir leikinn gegn Aserbaídsjan. „Þetta er búið að
gerast svolítið hratt. Ég kom inn í meistara-
flokkinn hjá Breiðabliki í byrjun apríl og
ég hef bara spilað einu sinni með U-21
árs landsliðinu og hef ekkert verið með
yngri landsliðunum. Það er annars mjög
skemmtilegt að vera hluti af þessu
núna og ég er að læra heilmikið
af þessu. Ég vonast svo auðvitað
til þess að fá tækifæri gegn Aser-
um,“ segir Jóhann Berg brattur.