Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 25
Fyrirtækið Eignaumsjón hefur verið starfrækt frá 2001 og sérhæfir sig í rekstri flestra tegunda húsfélaga. „Við flokkum húsnæði í þrennt; íbúðar- húsnæði, atvinnuhúsnæði og blandaðar eignir, þar sem um er að ræða bæði íbúðar- og atvinnuhús- næði,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Fyrirtækið tekur að sér umsjón með öllum greiðslum húsfélaga, bókhaldsfærslum og gerð ársreikninga. Það sér einnig um fundahöld og öll samskipti við íbúa. Húsfélagsfundir eru haldnir á vegum Eignaumsjóna, en að sögn Daníels er reynt að koma til móts við fólk og salur oft leigður nær eigninni svo sem flestir sjái sér fært að mæta. „Fyrir tveimur árum breyttust áherslurnar hjá okkur. Við minnkuðum áhersluna á tæknilegan stuðning tengdan framkvæmdum og einbeittum okkur að stjórnunarlega stuðningnum, eins og bókhaldi og fjármálaumsýslu húsfélaganna. Þjónusta okkar gengur út á að færa stöðugleika, gegnsæi og áreiðanleika yfir rekstur húsfélaga,“ útskýrir Daníel. Hjá Eignaumsjón er einnig starfrækt þjónustu- borð sem sinnir hinum ýmsu þörfum húsfélaganna. „Þjónustuborðið útvegar iðnaðarmenn ef ráðast á í framkvæmdir og sér um öll samskipti við þá, sem og banka og opinberar stofnanir,“ segir Daníel. Að sögn hans er fólk farið að nýta sér þessa þjónustu í mun meira mæli en áður. „Við fáum stundum til okkar húsfélög sem eru í hálfgerðum molum, en okkur tekst að koma þeim í lag á skömm- um tíma. Við lítum á okkur fyrst og fremst sem stuðningsaðila fyrir stjórnir og eigendur fjöleigna- húsa og gætum hagsmuna eignarinnar á hlutlausan hátt. Við viljum auka fagmennsku innan félaganna og pössum að ákvarðanir og framkvæmdir fari fram með lögformlegum hætti,“ útskýrir Daníel. Að sögn hans tekur það oft húsfélögin langan tíma að ákveða hvort þau eigi að láta starfsemina í hendur fyrirtækisins. „Það eru yfirleitt margir sem eiga hlut í eignunum og allir með sinn atkvæðarétt. Því tekur svona ákvörðun tíma, en fólk er almennt mjög ánægt þegar það hefur sett málin í okkar hend- ur,“ segir Daníel. Þeim sem vilja kynna sér starfsemi Eignaumsjón- ar frekar er bent á heimasíðu fyrirtækisins www. eignaumsjon.is klara@frettabladid.is Daníel Árnason framkvæmdastjóri Eignaumsjóna segir fólk nýta sér þessa þjónustu meira en áður. FRETTABLAÐIÐ/RÓSA Á BORÐDÚKNUM „TAKE YOUR TIME“ EÐA GEFÐU ÞÉR TÍMA, ER YFIR ÞRJÚ HUNDRUÐ SPURNINGUM OG SVÖRUM RAÐAÐ SAMAN Í MUNSTUR. Ekki þykir kurteisi að taka með sér lesefni að matarborðinu en óþarfi er að láta sér leiðast langar setur við borðið ef borðdúkurinn er lesefni í sjálfu sér. Spurningarnar og svörin á borðdúknum Take Your Time eru læsileg frá hvorum enda borðsins sem er og auðir blettir eru þar sem matardiskurinn situr. Spurningarnar geta líka verið endalaus uppspretta umræðuefna. Borðdúkurinn er hannaður af ungum hollenskum vöruhönnuði, Sylvie van de Loo. Sylvie rekur sitt eigið hönnunar-stúdíó, SEMdesign í Utrecht. Hún leggur áherslu á hönnun hvers- dagslegra hluta til daglegra nota en efnisval eða notkunarmöguleikar koma gjarnan á óvart og hún vill að húmor einkenni vörur sínar. Borðdúkinn er hægt að fá í fleiri en einum lit en nánar má forvitnast um hönnun SEMdesign á heimasíðunni www. semdesign.nl. - rat Spurt og svarað HÚSGÖGN verða skínandi hrein svo glampar af þeim ef þau eru þrifin með blöndu af ólívuolíu og ediki samkvæmt gömlu húsráði. Gegnsæi og stöðugleiki Fyrirtækið Eignaumsjón sérhæfir sig í rekstri húsfélaga. Markmið fyrirtækisins er að auka fagmennsku og stöðuleika innan húsfélaga og sjá til þess að allt fari fram með lögformlegum hætti. Vatnsnotkun á Íslandi er svipuð og á hinum Norðurlöndunum. Kaldavatnsnotkun er mismun- andi eftir landssvæðum, en reiknað hefur verið út að vatnsnotkun Íslendinga liggi á bilinu 46.000 til 155.000 lítrar á ári á hvern íbúa. visindavefur.is Sylvie van de Loo hannaði borðdúk með lesefni. M YN D /SEM D ESIG N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.