Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 59
MIÐVIKUDAGUR 20. ágúst 2008 31 PEKING 2008 Mánudagurinn var eftirminnilegur hjá handbolta- þjálfurunum Guðmundi Guð- mundssyni og Gunnari Magnús- syni. Dagurinn byrjaði eldsnemma því leikurinn gegn Egyptum hófst klukkan níu. Í kjölfarið héldu þeir félagar upp í Ólympíuþorp þar sem þeir rákust á knattspyrnustjörnuna Ronaldinho. Þar á eftir var haldið á sjálfan Kínamúrinn og loks niður í bæ þar sem þeir félagar voru að láta sauma á sig jakkaföt. Á saumastofunni hittu þeir fyrir engan annan en Diego Maradona sem einnig var að láta sauma á sig föt. „Þegar við sáum hann fyrst þarna inni trúðum við því vart að þetta væri hann,“ sagði Gunnar léttur spurður um uppákomuna. „Við létum síðan vaða og feng- um mynd af okkur með kappan- um. Hann bað í kjölfarið um að ekki yrðu fleiri myndir teknar af sér en allir þarna inni vildu eðli- lega fá mynd af sér með honum. Þetta var magnað. Vonandi er það fyrirboði um það sem koma skal að hafa hitt heimsmeistara í Pek- ing.“ Hittu bæði Maradona og Ronaldinho Handboltaþjálfararnir hittu stórstjörnur á mánudaginn og vonast eftir að það hafi boðað gott fyrir leikinn á móti Póllandi í átta liða úrslitunum handboltakeppni Ólympíuleikanna í nótt. MEÐ RONALDINHO Guðmundur og Gunnar hittu hann í Ólympíuþorpinu og voru fljótir að láta smella af sér mynd með kappanum. MYND/ÚR EINKASAFNI Á MÚRNUM Guðmundur, Gunnar Magn- ússon, Einar Þorvarðarson og Brynjólfur Jónsson. MYND/ÚR EINKASAFNI PEKING 2008 Íslenska landsliðið í handknattleik mætti Pólverjum klukkan 6.15 í morgun í átta liða úrslitum á Ólympíuleikunum. Risaleikur hjá strákunum okkar sem spila til verðlauna nái þeir að leggja Pólverja að velli. Takist það mætir Ísland sigurvegaran- um í viðureign Kóreu og Spánar í undanúrslitum. „Undirbúningur hefur gengið vel. Mikið fundað og svo æft. Það er alveg ljóst að við verðum að spila mjög vel til þess að vinna þennan leik,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari. „Þeir voru í auðveldum riðli og ég hef ekki enn séð þá spila af fullum styrk. Þeir hafa eflaust verið að spara orku og eiga mikið inni. Pólverjarnir eru góðir en það erum við líka,“ sagði Guð- mundur sem er ekki í vafa um hver lykillinn að sigri sé. „Vörnin þarf að vera frábær því við erum að taka á móti einni sterkustu sóknarlínu heims. Það þýðir ekki að vera með neitt hálf- kák heldur þarf að fara út í Pól- verjana af krafti. Þeir lágu aftar- lega gegn okkur síðast og vilja að við skjótum fyrir utan og við verðum að vera klárir í það,“ sagi Guðmundur en allir leik- menn eru heilir heilsu nema Arnór Atlason sem er enn stífur í baki en spilar væntanlega þrátt fyrir það. - hbg Einn stærsti leikur strákanna okkar byrjaði snemma í morgun þegar liðið mætti Póllandi í 8 liða úrslitum: Við megum ekki vera með neitt hálfkák SPENNA Leikir íslenska liðsins hafa tekið á taugar landsliðsþjálfarans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HENRY BIRGIR GUNNARSSON Skrifar frá Peking henry@frettabladid.is PEKING 2008 Frjálsíþróttafólkið lauk keppni á Ólympíuleikunum í gær þegar spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir féll úr keppni. Ásdís náði sér engan veginn á strik sökum meiðsla. Tvö fyrstu köstin hennar voru í kringum 45 metra og hún gerði því viljandi ógilt. Síðasta kastið hennar var upp á 48,59 metra og lét hún það kast standa eftir nokkra umhugsun. „Mér líður nú ekkert sérstak- lega vel. Hvorki í hendinni né með árangurinn. Olnboginn var alls ekki að halda og ég er að drepast í hendinni. Það var rosalega sárt að kasta spjótinu,“ sagði Ásdís. „Ég komst hingað og er fegin að hafa tekið þátt. Nú þarf að fara í það að laga höndina. Ef ég þarf að fara í aðgerð vil ég gera það strax,“ sagði Ásdís en hún segir það engu að síður vera frábæra reynslu að hafa tekið þátt. „Það var frábært að vera inni á vellinum. Að kasta spjóti er það skemmtilegasta sem ég geri og ég get vonandi æft án meiðsla fram að næstu Ólympíuleikum,“ sagði Ásdís. - hbg Ásdísi Hjálmsdóttur gekk illa: Það var rosalega sárt að kasta ÓGILT Tvö af þremur köstum Ásdísar voru ógild. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.