Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 32
 20. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR14 ● fréttablaðið ● menningarnótt6 10.00 Hannyrðir í Nálinni Í hannyrðaversl- uninni Nálinni geta allir prjónað og saumað út. Opið til 23.00. Hannyrðaverslunin Nálin, Laugavegi 8. Ljósmyndir og Lummur Café Loki, nýtt kaffihús við Hallgrímskirkjutorg iðar af lífi frá morgni til kvölds. Lummur, kaffi og ljósmyndir Þórólfs Antonssonar og Hrannar Vilhelmsdóttur af Hallgrímskirkju í öllum veðrum. Opið til 23.00. Lokastígur 28. Lögun línunnar og Vatnsberi Ellefu listamenn sýna vatnslitamyndir. Listamennirnir spjalla við gesti. Opið til 18.00. Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn v/ Sigtún. Styttur með hatta Helga Rún Pálsdóttir, hatta- , leikmynda- og búningahönnuður hefur búið til hatta á styttur bæjarins. Jón Sigurðsson á Austurvelli fær sitt höfuðfat kl. 10. Gallery O Útitorg með öllu. Gustavo Blanco, Ásta Kristín Pálsdóttir og Þorbjörn Kjærbo bjóða uppá innsetninguna í samstarfi við Davíð Örn Halldórsson. Þórhallur Sigurðsson listmálari, sýnir ný verk. Ókeypis kaffi/internet á staðnum. Opið til kl. 01.00. Gallery O Laugavegur 66. 10.30 Orb Collection Ella Rósinkrans sýnir glerskúlptúra og veggverk. Uppboð á Orb collection líkt og undanfarin ár, leggja má inn tilboð frá kl. 10.30 – 21.00. Skólavörðustíg 14. 11.00 Opið hús í Höfða Leiðsögn á 20 min. fresti um hið sögufræga hús. Opið til 15.00. Höfði, Borgartúni. Svart List Tréristur eftir Magdalenu Margréti Kjartansdóttur sýndar í glugga START ART. START ART, Laugvegi 12 b. Veskjadagur Glætunnar Komdu með handtöskuna þína og skiptu henni. Opið til 23.00. Glætan Bókakaffi, Aðalstræti 9. Múltí Kúltí Indversk og kenísk menning kynnt í boði félaganna Vinir Indlands og Vinir Kenía. Opið til 23.00. Ingólfsstræti 8. Ljósmyndasýning í Hljómskála- garðinum Klængur Gunnarsson hefur starfað sem flokkstjóri yfir sérhóp geðfatlaðra og þroskaskertra og sýnir ljósmyndir úr starfinu. Sýningin stendur til 30. ágúst. Hljómskálagarðurinn, við Hljómskálann. Vatnslistaverk á Skólavörðuholti Óskar Ericsson sjónlistamaður og Þórhallur Sigurðsson myndlistamaður gera vatnslistaverk á Skólavörðuholti sem er búið til úr þvottavélum. Risaflugdreki Risaflugdreki eftir Axel Eiríksson hefur lent á Arnarhóli. Hvaðan kemur hann? Er eitthvað stærra til en við? Arnarhóll Skartgripasýning Listnáms.is Opið til 22.00. Skólavörðustíg 14, kjallara. Hundadagar enda Hundadagahátíð allan daginn í Þjóðmenningarhúsinu. Eru hundasúrur í Surtsey? Íslenski hundurinn í kvikmynd Páls Steingrímssonar. Hundagetraun á ljósmyndasýningu Ara Sigvaldasonar. Hljómsveitin Hundur í óskilum og fleira. Opið til 23.00. Þjóðmenningarhúsið, Hverfisgötu 15. 11.30 Reykjavíkurmaraþon Borgarstjóri hleypir af stað skemmtiskokki í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis. Lækjargata. 12.00 Hvernig verja Reykvíkingar frítíma sínum? Miðstöð munnlegrar sögu býður borgarbörnum, ungum jafnt sem öldnum, að tylla sér inn í hljóðver miðstöðvarinnar og segja frá eftirminni- legum stundum í borginni. Garðhús á horni Aðalstrætis og Túngötu. Söngsúpa Hádegistónleikar Guðrúnar Gunnarsdóttur og Valgeirs Skagfjörð. Félagsmiðstöðin Aflagranda 40. Textíl Sýning á textíl skúlptúrum eftir Írisi Eggertsdóttur. TÍU DROPAR verða með sölu á girnilegum veitingum, heitu kakói og múffum. Opið til 23.00. Verslunin KVK, Laugavegi 58a. Laugavegur 60. Sýning í 3 Hæðum Guðlaug Halldórsdóttir, Fiann Paul og Halldóra Emilsdóttir sýna verk í húsakynnum verslunarinnar 3 hæðir. Opið til 19.00. Laugavegur 60. 13.00 Formleg setning Menningarnætur á Óðinstorgi Borgarstjóri setur Menningarnótt á Óðinstorgi. Að setningu lokinni frumflytur Þórarinn Eldjárn borgarlistamaður Menningarnæturkvæði og að því loknu syngur færeyska söngkonan Sölva Ford nokkur lög. Óðinstorg. Nørrebro på Odinstorg Ekta Nørrebro stemning á Óðinstorgi. Dönsk barnaföt og vöfflur, upplestur úr verkum H.C. Andersen, Reggí plötusnúðar beint frá Nørrebro, reiðhjólabúð og margt fleira. Ó restaurant býður uppá danskt smurbrauðsfat á matseðli yfir daginn og 5 rétta matseðil með norrænu ívafi um kvöldið. Opið til 22.00. Óðinstorg. Hefurðu komið til Langtíburtu- istan? UNIFEM á Íslandi verður með opið hús á Menningarnótt þar sem sýndar verða ljósmyndir, munir, sagðar örsögur og spiluð tónlist frá Langtíburtistan. Opið til 17.00. Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Laugavegi 42, 2. hæð. Hengirúm á Miklatúni Þreyttir gestir Menningarnætur geta lagt sig í haganlega útbúin hengirúm eftir Maríu Sjöfn. Miklatún. 13.00 Lost Horse Gallery Videoinnsetning í Sirkusportinu. Verkið er unnið í samstarfi við fjölda listamanna s.s. Eyeloveiceland, Kippa Kaninus, Kiru Kiru, Biogen og Subaqua og sýnir þverskurð íslenskrar videolistar. Opið til 01.00. Laugavegi 28. Heimstorgið Bókakaffi á 1. hæð Grófarhúss með úrvali bóka og tímarita. uppákomur fram á kvöld. Opið til 22.00. Borgarbókasafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. „Munu æsir mig argan kalla”Ljós- myndasýning Wolfangs Müllers af Íslendingum frá ferðum hans á Íslandi og í Berlín á árunum 1990 – 1995. Opið til 22.00. Borgarbókasafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Bjargvættir bárunnar Fyrrum skipverjar á Óðni taka á móti gestum um borð í varðskipinu. Opið til 17.00. Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík, Grandagarður 8. Minningabækurnar á Menningar- nótt 30 ára útskriftarafmæli. H-bekkurinn, sem útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1978 opnar minningabækurnar á Menningarnótt. Stendur til kl. 15.00. Kraum, Aðalstræti 10. STRAUMAR Á sýningunni STRAUMAR eru verk í eigu Listasafns ASÍ sem spanna um hundrað ára skeið íslenskrar málaralistar. Leiðsögn verður um sýninguna í fylgd Steinunnar Helgadóttur, myndlistarmanns kl. 14.00. Opið til 22.00. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41. Um samtímaljóðlist Birna Bjarnadóttir og Ármann Jakobsson leiða samræðu ljóðskálda sem taka þátt í fjórðu alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils. Málþingið fer fram í tveimur 40 mínútna lotum með hléi á milli. Skáldin sem taka þátt eru Morten Søkilde, Ida Börjel, Kristín Eiríksdóttir, Eiríkur Örn Norðdahl, Nina Søs Vinther, Ann Cotten, Haukur Már Helgason og Sureyya Evren. Stendur til kl. 15.00. Norræna Húsið, Sturlugata 5. Svartiportfoss Í miðborg Reykjavíkur leynast falleg afdrep á milli húsa. Getur verið að einhversstaðar sé falið landslag? Leyndarmál afhjúpað með vígslu tímabundins torgs. Hönnuður torgsins er Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt - Landslagi ehf. Fjölbreytt dagskrá verður á torginu fram eftir degi. Port á milli Laugavegs 18 og 20, bak við Kaffi Oliver. Stefnumót við liðna tíð Langar þig í Polaroid-mynd af þér og þínum í glæsilegum búningum frá gömlum tímum? Hin árlega og sívinsæla myndataka Ljósmyndasafns Reykjavíkur fyrir gesti og gangandi í samvinnu við búningasafn Borgarleikhússins og verslun- ina Fríðu frænku. Opið til 22.00. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6. Hæð. Latabæjarhlaup Reykjavíkur Maraþons Glitnis Fyrsti hópurinn hleypur af stað kl. 13.00 og sá síðasti kl. 14.40. Skemmtidagskrá hefst kl. 14.50. Háskóli Íslands, Sæmundargötu 6. Gestastofa Leiðsögn um sýninguna. Opið til 22.00. Gestastofa, Lækjartorgi. Fuglahús á Austurvelli Í sumar unnu þrettán 8. bekkjar hópar í Vinnuskóla Reykjavíkur “Fuglahúsaverkefni” í samstarfi við Grænfánaliða Vinnuskólans og Góða hirðinn. Fuglahúsin verða til sýnis á Austurvelli. Gallerí Fold Sýning í baksal á verkum eftir Karl Kvaran. Verkin eru úr einkasafni Braga Guðlaugssonar veggfóðrara. Sýning verður einnig á tví- og þrívíðum verkum Línu Rutar í framsal. Sýning í hliðarsal á verkum frönsku listakonunnar Anne Pesce. Listaverkahappdrætti allan daginn og listamenn að störfum. Rauðarárstíg 14. Menningarnótt á Háskólatorgi Háskóli Íslands tekur þátt í Menningarnótt. Dagskrá sem skartar vísindum, mannlífi og menningu. Uppákomur allan daginn. Opið til 18.00. Háskólatorg, Sæmundargötu 4. Opið hús hjá JCI JCI félagar taka vel á móti gestum og gangandi og verður veitingasala á staðnum. Opið til 22.00. JCI, Hellusundi 3. Barnasmiðja Guðbjörg Káradóttir leiðbeinir börnum. Um það bil klukku- stundarlangt námskeið í skemmtilegri listsköpun fyrir börn 12 ára og yngri. Einnig kl. 14:45 og 17:45. Listatjald í Listaporti Gallerí Foldar, Rauðarárstíg 14. 13.30 Söguganga eftir Örfirirseyjar- grandanum Sigrún Magnúsdóttir forstöðumaður Sjóminjasafnsins leiðir gönguna og fræðir gesti um sögu eyjunnar. Rútuferðir frá Félagsmiðstöðinni á Aflagranda eða stefnumót við HB-Granda Norðurgarði. Spákona spáir fyrir krökkum Kínversk spákona spáir fyrir krökkum frá 6- 12 ára í litlum skúr á Lækjartorgi. Stendur til kl. 15.00. Lækjartorg. 13.50 Leikur að list Sigurjón Daðason spilar á klarinett og Kristján Karl Bragason spilar á píanó. Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14. 14.00 Setning dagskrár Reykjanesbæjar í Ráðhúsi Reykjavíkur Reykjanes er gestasveitarfélag Menningarnætur 2008 og býður upp á glæsilega dagskrá undir heitinu Tími til að lifa og njóta. Borgarstjór- inn í Reykjavík setur dagskrána ásamt bæjarstjóra Reykjanesbæjar Árna Sigfússyni. Dagskráin stendur til kl. 22.30. Ráðhús Reykjavíkur. Listaverkaganga Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur sýnir og segir frá listaverkum í eigu Landsbankans. Aftur á dagskrá kl. 16.00, 17.00 og 18.00. Andlitsmálun, blöðrur og fjölbreytt skemmtun fyrir börnin fyrir utan bankann. Landsbankinn, Austurstræti. Opið utanríkisráðuneyti Í fyrsta sinn á Menningarnótt opnar ráðuneyti dyr sínar fyrir gestum hátíðarinnar. Fræðandi dagskrá um hin ýmsu störf utanríkisþjón- ustunnar, ásamt ljós- og myndlistasýn- ingu og tónlistaruppákomum. Ýmsir viðburðir allan daginn. Rauðarárstíg 25 Góðgerðardagur Harley Davidson eigenda á Íslandi Einn rúntur aftan á HD hjóli kringum tjörnina kostar 500 kr. sem renna alfarið til langveikra barna. Rúntað til kl. 16.00. Austurvöllur. Eldur og form í rauðri nótt Grafíkverk og Rakubrenndur leir. Halla Ásgeirsdóttir og Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsdóttir sýna verk sín í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg. Salsatorg Salsa bandið Los Corcovados spilar í portinu við veitingastaðinn Tapas barinn. Vesturgötu 3. Viewpoint Sub Rósur, þær Una Björk Sigurðardóttir og Saga Ásgeirsdóttir opna sýningu á vídeóverkum um innflytjendur á Íslandi. Opið til 22.00. Borgarbókasafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Sögustóllinn María Pálsdóttir frá Íslandi, Kristín Vilhjálmsdóttir frá Danmörku, Maria Helena Sarabia frá Kólumbíu og Salmann Tamimi frá Palestínu segja sögur frá heimalöndum sínum. Fyrir öll börn, fylgdarlið þeirra og aðra áhugasama. Borgarbókasafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Kirkjuhúsið Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving syngja fyrir gesti og gangandi. Kynning á Fair trade – sanngjörnum viðskiptum. Opið til 19.00. Kirkjuhúsið, Laugavegi 31. Betri en ný? Hjónin Esther Ýr Steinars- dóttir og Jóhann Örn Reynisson sýna ljósmyndir í Gel Gallerí. Opið til 22.00. Gel Gallerí Hverfisgötu 37. Á torgi hvatninga vaxa draumar Vilt þú gefa hugmynd þinni byr undir báða vængi? Ef svo er komdu þá með hana á Hvatningatorg. Hvatningatorg verða fjögur á Menningarnótt kl. 14, 16, 18 og 20. Lýðveldisgarðurinn við hliðina á Þjóðleikhús- inu, Hverfisgötu. Sólartorgið Nýtt, listilega fallegt örtorg við hliðina á hinu sólgula Kaffi Hljómalind. Torgstemning í anda Parísar, stöðug dagskrá fram á kvöld.. Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23. „ENGAN TÖLVUPÓST TAKK“ Nína Björk Hlöðversdóttir ljósmyndari opnar sýninguna “Engan Tölvupóst Takk” í Galleríi Sævars Karls sem er gamansöm sýn ljósmyndarans á póstkassa sem hafa orðið á vegi hans víða um heim. Opið til 21.00. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 7. Gluggi í nöturlega fortíð Leikhús- gjörningur á tyrfðu torgi eftir Hilmi Jensson og Ingibjörg Huld Haraldsdóttur, Björn Leó Brynjarsson og Olgu Sonju Thorarensen. Port á Laugavegi 3. Faðmlagatorg Gestum boðið upp á ókeypis faðmlög. Faðmað til kl. 16.00. Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23. Vöfflukaffi í Þingholtunum Íbúar í Þingholtunum bjóða gestum og gangandi í kaffi og vöfflu. Eftirtaldir aðilar bjóða í vöfflukaffi á Menningarnótt; Sveinn og Gréta, Baldursgötu 4, Ólöf, Gísli, Sigríður og Páll, Freyjugötu 28, Þóra og Guðríður, Ingólfsstræti 21a, Ólöf Pétursdóttir, Þórsgötu 29, Norræna félagið, Óðinsgötu 7, Auður og Ósk, Baldursgötu 1, Guðlaugur, Guðmundur og Jóna, Bergstaðastræti 29, Dagur og Gunnar, Þingholtsstræti 7 og Dagur B. Eggertsson, Óðinsgötu 8b. Heimboðið stendur til kl. 16.00. Ásamt vöfflukaffi er boðið uppá fjölbreytta dagskrá við Ingólfsstræti 21a. Með Óla Geir á Ingólfstorgi Óli Geir danskennari mætir með Dívurnar, sýningarhóp sem nýlega varð Íslands- meistari í línudansi. Ingólfstorg. 14.20 Skapandi sumarhópar Myndlistar- tvíeykið Flýjandi sýnir gamalt og nýtt Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5. 14.30 Silfurormar Þeir teygja sig upp í 6 metra hæð, sveigja sig og beygja og snúast í hringi. Silfurormarnir heilla áhorfendur með líflegri og sjónrænni sýningu. Hugljúf ástarsaga tveggja risavaxinna silfurorma. Skólavörðuholt., víðs vegar yfir daginn. Rúgbrauð með púðursykri Gestum verður boðið að smakka á skrínukosti eyrarkarla. Víkin-Sjóminjasafnið í Reykjavík, Granda- garður 8. Flutter Flautufjör Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari lýkur tónleikaferð sinni um landið með tónleikum í Viðeyjarkirkju á Menningarnótt. Viðey. 15.00 Harmonikkufélag Reykjavíkur Tónleikar á útitaflinu við Lækjartorg. Skapandi sumarhópar - Hirðskáld Hins hússins Sverrir Norland flytur úrval laga sinna. Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5. Reykjavík Shorts&Docs Shorts&Docs verður með sérstaka dagskrá á Menningarnótt sem hefst á Teiknimynda- syrpu, gamla þrjú bíóið rifjað upp, barna og fjölskyldudagskrá. Gamla Austurbæjarbíó, Snorrabraut. Það er leikur að læra Söguleg skemmtidagskrá í Miðbæjarskóla. Opið til kl. 17.00. Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegi 1. Syngjum saman við Söngskólann Fram koma; Graduale Nobili undir stjórn Jóns Stefánssonar, Karlakórinn Þrestir undir stjórn Jóns Kristinns Cortez, Óperukórinn undir stjórn Garðars Cortes, Söngflokkur Ingveldar Ýr og tékkneskur gestakór Osminka sem dansar og syngur þjóðlega tónlist frá heimalandinu. Söngveislan stendur til kl. 18.00. Söngskólinn í Reykjavík, Snorrabraut 54. TM býður í ferðalag um töfra- veröld TM og Alþjóðahús standa saman að veglegri dagskrá á Menningarnótt. Sett verður upp töfraveröld, þar sem fólki gefst kostur á að fara í ferðalag um heiminn í gegnum hljóð, tónlist, bragð, lykt, og sjónræna upplifun. Opið til 18.00. TM, Aðalstræti 6-8. Djass Jóel Pálsson og Sigurður Flosason spila saman. Kraum, Aðalstræti 10. Sölva Ford Færeyska blús- og rokksöngkonan Sölva Ford flytur nokkur lög. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalstaðir, v/Flókagötu. Sálmafoss í Hallgrímskirkju á Menningarnótt Organistar, kórstjórar og kirkjukórar munu halda uppi samfelldri tónlistardagskrá í Hallgrímskirkju á Menningarnótt undir yfirskriftinni “Sálmafoss”. Dagskráin stendur til kl. 22.00. Hallgrímskirkja. Kirsuberjatorgið Harmonikkuleikur, söluborð, krítarlistaverk unnið með vegfarendum til kl. 18.00. Torgstemning hefst aftur kl. 20.00. Kirsuberjatréð, Vesturgötu 4. Skoffín og Skuggabaldur. Birta Rós Sigurjóns söngur, Sigurjón Alexandersson gítar, leika blandaða tónlist. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg. Sögur af Loka og vinum Vibeke Svejstrup frá Danmörku og Sigurbjörg Karlsdóttir frá Akureyri láta gamminn geysa með sögum úr norrænu goðafræð- inni. Sögurnar er sagðar á ensku. Í bakgarði við Gistiheimilið Loka, Lokastíg 24a. Tískusýning Hin 16 ára gamla Særós Mist sýnir nýjustu fatalínu frá SærósHönn- un. Sýningin hefst á horni Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis. DAGSKRÁ MENNINGARNÆTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.