Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 36
20. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR18 ● fréttablaðið ● menningarnótt0
Kórastarfið er í fyrirrúmi í
Hallgrímskirkju á menningar-
nótt: Organistar, kórstjórar og
kirkjukórar munu halda uppi
samfelldri tónlistardagskrá í
kirkjunni með stillansakórón-
una sem þeir Hallgrímskirkju-
menn kalla Sálmafoss.
Dagskráin hefst kl. 15 en þá mun
biskup Íslands afhenda tónlist-
arverðlaun kirkjunnar, Liljuna,
í fyrsta sinn. Stofnað er til verð-
launanna til að virða það sem best
þykir í kirkjulegu tónlistarstarfi
hér á landi en hin veraldlega tón-
list hefur til þessa átt sína verðlaun
í Íslensku tónlistarverðlaununum.
Herra Karl átti hugmyndina að
heiti verðlaunanna en Liljan hefur
margvísleg táknmið í kristinni trú.
Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar,
Hörður Áskelsson, segir ekki af-
ráðið hvort verðlaunin verði árlega
veitt. Verðlaunagripurinn er smíð-
aður í Þýskalandi. Verðlaunahafi er
valinn af bestu manna yfirsýn.
Sálmafossin er hluti af stóru
prógrammi sem Þjóðkirkjan hefur
staðið fyrir síðustu daga í Skál-
holti: Kórastefna Þjóðkirkjunn-
ar er tíu daga samfelld dagskrá
þar sem kenndur er orgelspuni
og kórstjórn, Jón Stefánsson og
Þórunn Björnsdóttir hafa kennt
stjórn barnakóra og síðustu dag-
arnir hafa farið í samstillingu um
140 manna kórs sem flytur tvær
kantötur Bachs á sunnudag í Hall-
grímskirkju en þar verður Þorkell
Sigurbjörnsson heiðraður sérstak-
lega með verðlaunum tónmennta-
sjóðs kirkjunnar. Mist, dóttir hans,
hefur samið tónverk um stef Þor-
kels við hinn kunna sálm hans Heyr
himnasmiður en það mun vera elsti
kirkjulegi texti sem notaður er til
sálmasöngs á Norðurlöndum. Heyr
himnasmiður er líka nokkurs konar
leiðarstef í dagskránni á laugar-
dag þar sem áhersla er lögð á al-
mennan sálmasöng, söng kirkju-
og barnakóra svo og orgelleik. Að
verðlaunaathöfn lokinni kl. 15 á
laugardag mun Dómkórinn syngja
undir stjórn Marteins Friðriksson-
ar en hann mun brátt láta af störf-
um sem stjórnandi þess merka
kórs. Síðan syngur Graduale Nobili
undir stjórn Jóns Stefánssonar og
Haukur Guðlaugsson leikur á org-
elið stóra.
Haukur Guðlaugsson leikur á
orgel klukkan 15.30. Kórarnir tveir
og Haukur halda kyrru fyrir í kirkj-
unni við söng og spil til kl.17.15 en
þá syngur Kór Bústaðakirkju undir
stjórn Renötu Ivan og Jón Bjarna-
son leikur á orgelið.
Eyþór Ingi Jónson og Schola
Cantorum leiða kirkjugesti í al-
mennum sálmasöng kl. 18 undir
stjórn Harðar Áskelssonar og
Tómas Guðni Eggertsson leikur
verk eftir Bach og Buxtehude.
Og þannig heldur dagskráin
áfram með almennum söng gesta
með kór, kórsöng og orgelleik allt
til kl. 21.40:
Þetta er í annað sinn sem Kóra-
stefna Þjóðkirkjunnar tengist
menningarnótt og Sálmafoss er
haldinn. Í fyrra var stöðugt streymi
fólks í kirkjuna og almenn og góð
þátttaka í söng þegar kórar sungu
með þeim. Það er andakt yfir kirkj-
unni á þessum haustdegi og allir
velkomnir. pbb@frettabladid.is
Sálmafoss í Hallgrímskirkju
Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld. Sálmur
hans, Heyr himnasmiður, er leiðarstef í
hátíðahaldi kirkjulegra tónlistarmanna
í Hallgrímskirkju á laugardag. Á sunnu-
dag verður hann heiðraður á sérstökum
tónleikum honum til heiðurs í kirkjunni.
MYND: FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON
Dagskráin hefst kl. 15 í Hallgrímskirkju.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKRÁ
ÐU
ÞIG Í
DAG!
Netsk
ráning
u í Re
ykjavík
urmar
aþon G
litnis l
ýkur á
miðnæ
tti.
Skráð
u þig
á www
.glitni
r.is, v
eldu f
yrir hv
aða g
óðger
ðaféla
g
þú vilt
hlaup
a og fá
ðu síð
an vin
i og ve
lunna
ra til a
ð heita
á þig.
Skráð
u þig
á www
.glitni
r.is og
hlaup
tu til g
óðs.
ALLIR
SIGR
A 23.
ÁGÚ
ST!