Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 12
FRÉTTASKÝRING: Stríð í Georgíu FRÉTTASKÝRING AUÐUNN ARNÓRSSON audunn@frettabladid.is 12 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR Með harkalegum hern- aði sínum í Georgíu hafa Rússar sýnt mátt sinn og megin á Kákasussvæðinu og hve illa Vesturlönd eru í stakk búin að veita vinveitt- um þjóðum þar um slóðir haldgóðan stuðning. Sam- skipti Rússlands og NATO hafa kólnað verulega vegna málsins. Utanríkisráðherrar hinna 26 aðild- arríkja Atlantshafsbandalagsins komu saman á bráðafundi í Brus- sel í gær til að ræða hvernig bandalagið ætti að bregðast við hernaði Rússa í Georgíu. Þeir sam- þykktu að skora á Rússa að standa við ákvæði vopnahléssamkomu- lagsins, sem ESB-formennsku- þjóðin Frakkar áttu milligöngu um, en til að svo teldist vera yrðu þeir að flytja herlið sitt til baka til þeirra stöðva sem það var í áður en átökin hófust. Fyrstu staðfestu fréttirnar af því að sá brottflutningur væri haf- inn bárust frá Georgíu í gær. Lest skrið- og bryndreka rússneska herliðsins sem hernumið hafði mið-georgísku borgina Gori sást halda út úr borginni til norðurs, í átt að aðskilnaðarhéraðinu Suður- Ossetíu þar sem átökin hófust þann 7. ágúst síðastliðinn. Fangaskipti Áður höfðu talsmenn stjórnvalda í Tíblisi sagt að enn væru engin merki um að rússneska innrásar- liðið væri að hugsa sér til hreyf- ings. Að öðru leyti en því að það gekk eftir að rússneska herliðið skipti á föngum við georgíska her- inn við eftirlitsstöð nærri Tíblísí í gær. Skipt var á fimmtán georg- ískum hermönnum fyrir fimm rússneska. Tveir hinna síðar- nefndu kváðu vera flugmenn rúss- neskra herþotna sem skotnar voru niður yfir Georgíu. Fallist á ÖSE-eftirlit Í Brussel staðfesti finnski utan- ríkisráðherrann Alexander Stubb, sem gegnir nú formennsku í Öryggis- og samvinnustofnun Evr- ópu, að rússnesk yfirvöld hefðu fallizt á að 20 eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar fengju aðgang að átakasvæðinu. Áður voru níu slíkir eftirlitsmenn ÖSE á vettvangi í Suður-Ossetíu, en gátu sig lítið hrært vegna skorts á öryggistryggingum. „Ég er mátu- lega bjartsýnn á að okkur takist […] að koma eftirlitsmönnum á vettvang strax í kvöld (þriðju- dagskvöld),“ hafði fréttavefur BBC eftir Stubb í gær. Rice ómyrk í máli Bandaríski utanríkisráðherrann Condoleezza Rice varaði á fundin- um í Brussel í gær Rússa við. Sér sýndist Rússar ekki standa við vopnahléssamkomulagið og því spyrji hún sig hvers vegna rúss- neski forsetinn „annaðhvort geti eða vilji ekki standa við orð sín“. Með þessu leiki Rússar hættuleg- an leik. Rice sakaði valdhafa í Moskvu um að vilja hræða hina litlu grann- þjóð Georgíumenn til undirgefni. Og bætti við: „Við [Bandaríkja- menn] erum ákveðnir í að hindra að Rússar fái þessu markmiði sínu framgengt.“ Álíka harða afstöðu gagnvart Rússum hafa Bretar og fyrrver- andi Austantjaldsríkin í NATO. Þjóðverjar, Frakkar og Hollend- ingar eru aftur á móti á meðal NATO-þjóða sem hafa viljað forð- ast að láta samskiptin við Rússa versna umfram það sem þegar er orðið. Þessi innri ágreiningur NATO-ríkjanna hindraði þó ekki samstöðu um sameiginlega pólit- íska yfirlýsingu á bráðafundinum í Brussel í gær. Í henni er Rússum send skýr skilaboð um að sam- skiptin við bandalagið munu líða fyrir framgöngu þeirra gagnvart Georgíu. Kalt stríð um ítök í Kákasus Á laugardag, níu dögum eftir að stríð hófst í Suður-Ossetíu, undirritaði Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, vopnahlés- samkomulag við Georgíu sem Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hafði milligöngu um fyrir hönd Evrópusambandsins, Bandaríkj- anna og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Áður hafði Mikheíl Saakashvili Georgíuforseti undirritað samkomulag- ið eftir þriggja daga umþóttunartíma. VOPNAHLÉSSAMKOMULAGIÐ AÐALATRIÐI SAMKOMULAGSINS: ■ Engin frekari beiting hervalds. ■ Mannúðaraðstoð hljóti hindrunarlausan aðgang að nauðstöddum. ■ Georgískar hersveitir snúi til heima- herstöðva sinna. ■ Rússneskar hersveitir snúi til þeirra stöðva sem þær voru í áður en átökin hófust. ■ Alþjóðlegar viðræður um frið og öryggi í Suður-Ossetíu og Abkasíu. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur Gísli Tryggvason, talsmaður neyt- enda lagt til við fjármálaráðherra að fella niður bókamúrinn svokallaða. Þar er átt við virðisaukaskatt og önnur opinber gjöld af bókum og smávarningi sem sendur er hingað til lands að utan. Ástæðan fyrir þessu er sú að tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti á bókum og smávöru eru oft margfalt minni en kostnaðurinn við að reikna þessi gjöld út. Hversu mikill er kostnaðurinn af umsýslugjaldi af hverri sendingu? Umsýslugjaldið, 450 krónur, þykir ef til vill ekki stór upphæð. Hún er þó nógu stórt hlutfall af verði smávöru til þess að fæla suma kaupendur frá. Í rökstuðningi talsmannsins er tekið dæmi af bók sem kostar 300 krónur auk sendingarkostn- aðar sem er 540 krónur. Virðisaukaskatturinn af þessari sendingu er 59 krónur. Án skattlagningar hefði bókin kostað 62 prósent af því sem hún kostar nú. Kostn- aður neytandans er nífalt meiri en gróði ríkissjóðs. Hlutfallið er auðvitað ekki jafn hátt af dýrari bókum. Um hve stórar pantanir er að ræða? Í tillögunum er miðað við að gjöld af pökkum sem bera virðisaukaskatt undir fimmhundruð krónum verði felld niður. Það þýðir að af vörum eins og bókum, sem bera sjö prósent skatt, má heildarverð pöntunar vera 7.143 krónur áður en farið er að innheimta skatt og þegar skatturinn er 24,5 prósent þá má það vera 2.041 króna. Hvers vegna breytingarnar? Rökstuðningur þeirra sem aðhyllast breyting- arnar er sá að afnám gjaldanna muni bæta hag neytenda, auka samkeppni sem aftur lækkar verð og breikkar vöruúrval og auk þess stuðla að meiri skilvirkni í póstverslun Íslendinga. Bókaverð á vefverslunum eins og amazon.com er í mörgum tilvikum lægra en hérlendis þannig að breytingarnar gætu haft nokkur áhrif á neysluhegðun. Hvernig er þessu háttað erlendis? Ísland er eina landið á EES-svæðinu sem er ekki með reglu um niðurfellingu opinberra gjalda af smápökkum. FBL-GREINING: AFNÁM OPINBERRA GJALDA Á SMÁPÖKKUM Tekjur ríkisins minni en kostnaður www.forlagid.is TÍMAMÓTAVERK SVO MIKLU MEIRA EN HEFÐBUNDIN ORÐABÓK Bókin gerir rækilega grein fyrir notkun orða og orðasambanda í margvíslegu samhengi og birtir um leið skýra mynd af íslenskum orðaforða. Yfirgripsmikið verk sem veitir einstaka leiðsögn um orðaval í ræðu og riti. Rafræn útgáfa á geisladiski fylgir bókinni og veitir margvíslega leitarmöguleika og nýja innsýn í efnið. SKÓLATILBOÐ 9.980 kr. (Fullt verð 15.937 kr.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.