Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 30
 20. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á menningarnótt. Það er ekki síst smáfólkið sem hefur yndi af fjölbreyttri dagskrá menningarnætur. Í ár líkt og und- anfarin ár hefur metnaður verið lagður í að skapa alls kyns snið- uga viðburði fyrir krakka og um að gera að skipuleggja daginn vel svo enginn þreytist. Af fjölmörg- um viðburðum er að taka, allt frá Latabæjarmaraþoni og götuleik- húsum upp í sögulestur og leik- tækjaleigu. Flugdrekar verða áberandi á menningarnótt en nám- skeið í flugdrekagerð verður hald- ið við Norræna húsið milli kl 13 og 15 undir leiðsögn Sævars Lín- dal. Flugdrekarnir eru einfaldir að gerð svo börnin geta gert þau að mestu leyti sjálf með dálítilli aðstoð frá mömmu eða pabba. Að- gangur á námskeiðið er ókeyp- is en takmarkaður og skráningar eru mótteknar á leopold@nordice. is. Risavaxinn flugdreki hefur svo lent á Arnarhóli. Drekinn er eftir Axel Eiríksson og verður til sýnis í tvær vikur eftir menningarnótt. Á Óðinstorgi í Þingholtunum verður sköpuð sérstök dönsk „Nör- rebro“-stemning á menningarnótt með smurbrauði, öli og tilheyr- andi, og krakkar geta hlustað þar á upplestur úr hinum ástsælu verk- um H.C. Andersens milli kl 14.55 og 15.45. Gamla þrjúbíóstemning- in er rifjuð upp í Austurbæjar- bíói af Reykjavík Shorts&Docs en þar verður sýnd klassísk teikni- myndasyrpa klukkan þrjú sem ætti að kæta unga sem aldna. TM og Alþjóðahúsið hafa skipu- lagt spennandi dagskrá í gamla Morgunblaðshúsinu við Aðal- stræti. Þar verður til staðar Töfra- veröld þar sem fólki gefst kostur á að ferðast um heiminn í gegnum tónlist, sjón, bragð og lykt og sjón- ræna upplifun. Þar geta börnin meðal annars fengið andlitsmáln- ingu, fléttur í hárið og kennslu í balkönskum dönsum. Í hinu sjar- merandi og gamla Grjótaþorpi verður barnahátíð á menningar- nótt þar sem boðið er upp á ratleik og stéttarmálun. Álfarnir Þorri og Þura bregða á leik og leikin verð- ur skemmtileg tónlist, auk þess sem boðið verður upp á girnilega Þorpstertu. Hátíðin stendur frá 16 til 19. Litlir listrýnar geta svo haft gagn og gaman af leiðsögn í Hafn- arhúsinu klukkan 17 sem nefnist Ofurgestir en þar er ljósi varp- að á huliðsheim myndlistarinnar á skemmtilegan hátt. Gallerí Fold verður með skapandi listasmiðju við Rauðarárstíg fyrir 12 ára og yngri þar sem Guðbjörg Káradótt- ir leiðbeinir börnum frá klukkan 17.45. Hápunktur menningarnæt- ur er svo auðvitað hin glæsilega flugeldasýning á hafi úti undan Sæbraut. Litadýrðin á himnum hefst klukkan 23 og er í boði Orku- veitunnar, og seglbátar frá Brókey munu skreyta flóann með sínum fagurlega upplýstu fleyjum. Frekari upplýsingar um dag- skrá fyrir börn má finna á www. menningarnott.is. - amb Flugdrekar, ævintýri og flugeldar Börn undirbúa Latarbæjarhlaup en það hefst klukkan 13 .Það verður heilmikið um að vera fyrir börn í miðborginni á Menningarnótt. Flugeldasýningin er hápunktur Menn- ingarnætur fyrir unga sem aldna. ● NØRREBRO-STEMNING Á ÓÐINSTORGI Torgarmenning er í fyrirrúmi á menningarnótt 2008 og eitt af þeim fjölmörgu torgum sem verða gædd lífi er Óðinstorg í Þingholt- unum. Þar verður endursköpuð notaleg dönsk stemning í anda Nørrebro-hverfisins sem er þekkt fyrir skapandi andrúms- loft og fjölbreytt alþjóðlegt mannlíf. Ilmur af dönskum vöfflum mun fylla vitin á meðan hægt verður að hlusta á upplestur úr sögum H.C. Andersens, vísnasöng eða danska tónlist. Að sjálf- sögðu verður danskt smurbrauð og öl á boðstólum á veitinga- staðnum Ó (s. 511 6677). Danskir listamenn og plötusnúðar munu einnig koma með ekta danskt stuð á torgið. Hvar? Óðinstorg Hvenær? 13-22 Borgarbókasafn Reykjavíkur • Tryggvagötu 15 www.hotelodinsve.is Odins Bodega - BRAUÐBÆR tjaldar á Óðinstorgi ! Veitingatjald verður fyrir framan Hótel Óðinsvé á Menningarnótt, með dönskum stíl. Þar verður að finna ekta danskt smurbrauð frá Brauðbæ, Carlsberg bjór og úrval af dönskum snafs. Tónlist, tískusýning, verslanir og ýmis skemmtun verður á torginu. Opnum kl.12 á laugardaginn 23.ágúst og lokum seint. Ó RESTAURANT Danskt smurbrauð verður einnig á Ó restaurant frá kl.12-17, borið fram á nýjan máta að hætti Ó. Um kvöldið er boðið uppá glæsilegan danskan matseðil ásamt föstum matseðli. Borðapantanir í síma 511 6677 BRAUÐBÆR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.