Fréttablaðið - 20.08.2008, Blaðsíða 18
18 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
H.P. LOVECRAFT FÆDDIST ÞENN-
AN DAG ÁRIÐ 1890
Ég spyr fólk aldrei hvað
það gerir, því það vekur
ekki áhuga minn. Ég spyr
það um hugsanir þess og
drauma.
H.P. Lovecraft var bandarískur
rithöfundur sem skrifaði hryll-
ingssögur, ævintýrasögur og
vísindaskáldsögur sem þá voru
þekktar sem skrýtinn skáld-
skapur.
MERKISATBURÐIR
1898 Veitinga- og gistihúsið
Valhöll á Þingvöllum vígt.
1933 Sprengisandsfarar koma
að Mýri í Bárðardal eftir
fimm daga ferð úr Land-
sveit. Þetta er fyrsta ferð á
bíl yfir Sprengisand.
1944 Rekjavíkurborg tekur
við rekstri Strætisvagna
Reykjavíkur hf.
1975 Ólafía Aðalsteinsdóttir
klífur Mont Blanc, hæsta
fjall Evrópu, fyrst íslenskra
kvenna.
1982 Átján manna hópur klífur
Eldey, þar á meðal fyrsta
konan sem það gerði.
1982 Marsvín, á milli tvö og
þrjú hundruð, koma að
landi við Rif á Snæfells-
nesi og voru langflest
rekin á haf út.
Göngugarpurinn
Reinhold Messner
stóð einn á toppi Ev-
erest á monsúntím-
anum fyrir nákvæm-
lega tuttugu og átta
árum og var það í
fyrsta sinn sem ein-
hver kleif fjallið einn.
Hann komst á topp-
inn eftir þriggja daga
erfitt klifur upp norð-
urhlið fjallsins. Seinna
sagði Reinhold að
hann hefði aldrei
verið eins þreyttur og á toppi Everest og að hann
hefði bara setið og setið þar.
Þessi för Reinholds upp Everest var þó ekki
eina merka reynsla hans. Tveimur árum áður
hafði hann klifið Ev-
erest með Peter Ha-
beler en það var í
fyrsta sinn sem nokk-
ur fór Everest án þess
að hafa súrefni með-
ferðis, nokkuð sem
læknar, sérfræðing-
ar og fjallgöngumenn
höfðu fram að því
talið ómögulegt.
Reinhold er einnig
þekktur fyrir að vera
fyrsti göngugarpurinn
sem fór upp hin fjór-
tán „átta þúsunda fjöll“ en það eru þau fjöll sem
eru hærri en átta þúsund metrar yfir sjávarmáli.
Reinhold hefur af mörgum verið talinn einn
merkasti göngugarpur allra tíma.
ÞETTA GERÐIST: 20. ÁGÚST 1980
Fyrsti maðurinn klífur Everest einn
AFMÆLI
ÓMAR SMÁRI
ÁRMANNS-
SON
aðstoðaryfir-
lögregluþjónn
er 54 ára
ÍVAR INGI-
MARSSON
fótboltamaður
er 31 árs
Hannyrðabúðin sem stofnuð var í Hafn-
arfirði fyrir þrjátíu og níu árum flutti
á dögunum úr Garðabæ í Hveragerði.
Guðlaug Berglind Björnsdóttir, stofn-
andi og eigandi Hannyrðabúðarinnar,
segir þetta tímamót í sögu búðarinnar
og ekki síður mikilvæg en þau sem hún
upplifði fyrir ári þegar hún flutti sjálf
frá Hafnarfirði, þar sem hún er fædd og
uppalin, til Hveragerðis.
Þegar Guðlaug er innt eftir því af
hverju hún hafi ákveðið að flytja búð-
ina til Hveragerðis segir hún: „Ég hef
búið í Hveragerði síðastliðið ár og það
var erfitt að keyra heiðina síðasta vetur.
Ég er líka orðin fullorðin og reyndi að
selja búðina mína í Garðabænum en það
gekk ekki og þess vegna ákvað ég bara
að flytja hana hingað austur.“
Þessir flutningar eru þó ekki þeir
fyrstu í þrjátíu og níu ára sögu Hann-
yrðabúðarinnar því fyrst var hún í þrjá-
tíu ár í Hafnarfirði og síðustu átta árin
hefur hún átt heima í Garðabænum. Guð-
laug segist hafa flutt búðina úr Hafnar-
firðinum þegar hún keypti hús fyrir búð-
ina í Garðabænum. „Þá var ég reyndar
að hugsa um að hætta því ég var komin
yfir sextugt en nú er ég yfir sjötugt og
búðin er enn í rekstri.“
Rekstur Hannyrðabúðarinnar hófst
í kringum árið 1969 og að sögn Guð-
laugar var það vegna þess að síldin
brást. „Ég vann sem netagerðarkona
en svo brást síldin og þá var minna
að gera við síldarnætur. Ég var með
litlar telpur og stofnaði búðina til að
hafa eitthvað að gera,“ útskýrir Guð-
laug en hún segist hafa alist upp með
hannyrðir við höndina og því átt til-
tölulega auðvelt með stofnun hann-
yrðabúðar.
Aðspurð segir Guðlaug búðina hafa
verið vinsæla frá upphafi. „Ég held að
þeir sem byrji að versla hjá mér komi
aftur. Það er fólk á öllum aldri og meira
að segja þriðja eða jafnvel fjórða kyn-
slóð.“
Guðlaug segir að hún hafi fundið fyrir
því að traustum viðskiptavinum hafi
fundist eftirsjá að búðinni úr Garðabæ
en segir Hvergerðinga hafa tekið mjög
vel á móti bæði sér og búðinni. „Ég lít á
mig sem forréttindakonu að búa í þess-
um yndislega bæ, Hveragerði, sem
minnir um margt á Hafnarfjörð æskuár-
anna,“ segir Guðlaug brosandi.
martaf@frettabladid.is
HANNYRÐABÚÐIN: FLYTUR Í HVERAGERÐI
Hafnfirðingur til Hveragerðis
HAFNFIRÐINGURINN Guðlaug B. Björnsdóttur lítur á sig sem forréttindakonu að fá að búa í
Hveragerði sem hún segir að minni um margt á Hafnarfjörð æskuáranna. MYND/GKS
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Sigþrúður
Sigurjónsdóttir
Kambastíg 8, Sauðárkróki,
sem lést á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki,
laugardaginn 16. ágúst, verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju, laugardaginn 23. ágúst kl. 14.00.
Sigrún Ívarsdóttir Steinn Ágúst Baldvinsson
Anna Ívarsdóttir Örn Ingólfsson
Kristín Sigþrúður Björnsdóttir Skúli Skúlason
Aðalbjörg Jóna Björnsdóttir Valur Júlíusson
Hafdís Hrönn Björnsdóttir Valdimar Júlíusson
Auður Björnsdóttir Stefán Magnússon
Ingunn Berglind Arnardóttir Peter Eliassen
Lilja Rut Arnardóttir Eyjólfur Þorkelsson
Ívar Dan Arnarson
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu,
dóttur og systur,
Hjördísar Kristjánsdóttur
Furulundi 6c, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimaþjónustunnar
á Akureyri og starfsfólks Sjúkrahúss Akureyrar fyrir
góða umönnun.
Héðinn Ósmann Skjaldarson
Kristján Hjörtur Oddgeirsson
Oddgeir Kristjánsson Ingibjörg Haraldsdóttir
Baldvin Kristjánsson
Guðfinna Jóna Kristjánsdóttir Gunnþór Oddgeirsson
Halldóra Kristjánsdóttir Hannes C. Pétursson
Helga Hólmfríðardóttir Anton Gunnarsson
Óskdís Kristjánsdóttir
og systkinabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Gunnars Benedikts
Adolfssonar
Holtagerði 53, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameins-
deildar Landspítalans við Hringbraut og hjúkrunar-
fræðingum Karitas. Guð blessi ykkur öll.
Ragnhildur Thorlacius
Hugrún Gunnarsdóttir Ragnar Jónatansson
Erlingur Gunnarsson Marfríður Hrund Smáradóttir
Kristján Örn Gunnarsson Jeanette Eva Thomsen
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku móðir mín, tengdamóðir og systir,
Dóra Bjarnadóttir
Torfufelli 35, Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut,
8. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Aðalheiður L. Gunter Kristján L. Júlíusson
Anna Bjarnadóttir
Bjarni J. Bjarnason Arnþóra Sigurðardóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, afi og langafi,
Karl Adolfsson
húsgagnabólstrari og tónlistarmaður,
lést á Borgarspítalanum aðfaranótt 18. ágúst.
Útför auglýst síðar.
Ásdís Árnadóttir
Árni H. Karlsson
Sigurður G. Karlsson Guðrún Svava Svavarsdóttir
Davíð K. Karlsson Kolbrún Júlínusdóttir
Gauja S. Karlsdóttir Björgvin Högnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Beck
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 16. ágúst.
Guðný Sigurðardóttir
Brynja Beck Sölvi Stefán Arnarson
Axel Þór Beck
Sigurður Pálsson Hrefna Egilsdóttir
Kristín Þóra Pálsdóttir Beck Rögnvaldur Stefán Cook
Ríkarður Pálsson Elísabet Rafnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu fjöl-
skyldunni samúð og hlýhug vegna andláts
Halldóru Brynjólfsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks Efstulautar á
Vífilsstaðaspítala.
Jón Hannesson
Brynjólfur Jónsson Kristín Siggeirsdóttir
Hannes R. Jónsson Beatriz Ramirez Martinez
Guðrún Jónsdóttir Eiríkur Ingi Eiríksson
Soffía Jónsdóttir Björn L. Bergsson
barna- og barnabarnabörn.