Fréttablaðið - 20.08.2008, Síða 2
2 20. ágúst 2008 MIÐVIKUDAGUR
REYKJAVÍK Borgarstjóri vitnaði í
minnisblað, sem hann sagði frá
fjármálaskrifstofu borgarinnar, á
fundi í ráðhús-
inu í gær.
Samkvæmt því
liggja fyrir
tillögur um átta
prósenta
niðurskurð á
launakostnaði.
Yfirvinnu eigi
að skera niður
um þriðjung að
auki.
Niðurskurðurinn komi helst
niður á velferðarsviði og mennta-
málum. Ekki náðist í Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, oddvita
Sjálfstæðisflokks í gær, en hún
sagði í kvöldfréttum sjónvarps að
ekki stæði til að lækka launa-
kostnað um átta prósent. - kóþ
Fráfarandi borgarstjóri:
Segir von á nið-
urskurði launa
ÓLAFUR F.
MAGNÚSSON
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Fréttablaðið er með 46% meiri lestur en 24 stundir
og 116% meiri lestur en Morgunblaðið
Fréttablaðið stendur upp úr
33,47%
49,65%
72,34%
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins
með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sína eins
og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir.
Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða
árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér
forskotið okkar þegar þeir velja auglýsingamiðil.
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Gísli, þyrftirðu ekki að vera
Marttveir til að geta ráðið við
þetta?
„Ég held ég ráði alveg við það að
mæta á borgarstjórnarfundi og vera
í námi einn, enda geri ég svo mar‘t
einn.“
Gísli Marteinn Baldursson hefur verið
gagnrýndur fyrir að sitja áfram í borgar-
ráði meðan námsdvöl hans í Edinborg
stendur yfir. Gárungar hafa spurt hvort
hann geti verið á tveimur stöðum í einu.
UTANRÍKISMÁL Trúverðugleiki
Dmítríj Medvedev Rússlandsfor-
seta á alþjóðavettvangi er í húfi,
standi Rússar ekki við vopnahlés-
samkomulagið við Georgíu.
Þetta segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra um
niðurstöðu bráðafundar ráðherra
NATO-ríkjanna 26 í höfuðstöðvum
bandalagsins í Brussel.
Í vopnahléssamkomulagi Rússa
og Georgíu, sem Medvedev hefur
skrifaði undir, kemur fram að Rúss-
ar muni draga hersveitir sínar til
baka til þeirra stöðva sem þær voru
í áður en átökin hófust.
„Ráðherrarnir samþykktu að
senda skýr skilaboð til Rússlands
um að það yrði að virða vopnahlés-
samkomulagið. Þar af leiðandi yrðu
Rússar að flytja hersveitir sínar
frá Georgíu og virða sjálfstæði og
landamæri þess ríkis,“ sagði Ingi-
björg.
Jafnframt hefðu NATO-ráðherr-
arnir ákveðið að veita Georgíu
ýmsan stuðning, svo sem við að
gera við hernaðarlega innviði
landsins sem mjög sér á eftir
áhlaup Rússa. Þá skuli stofna til
sérstaks samráðsvettvangs banda-
lagsins og Georgíu, en með því sé
verið að fylgja eftir því sem ákveð-
ið var á leiðtogafundi NATO í Búka-
rest í vor.
Ingibjörg sagði að einnig hefði
verið rætt um áhrif átakanna á
tengsl NATO og Rússlands. Áréttað
hefði verið að NATO-Rússlands-
ráðið hefði áfram mikilvægu hlut-
verki að gegna. Það yrði þó ekki
kallað saman að sinni; það yrði
„beðið aðeins átekta“ áður en það
yrði reynt næst. - aa/ sjá síðu 12
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra á bráðafundi NATO um Georgíumál:
Trúverðugleiki Medvedevs í húfi
TENGSL EFLD Utanríkisráðherra segir að
NATO muni efla tengsl sín við Georgíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUMÁL Maður um tvítugt
brást ókvæða við, þegar draga
átti bíl hans í burtu í Keflavík í
fyrra kvöld, og sló dráttar bíl-
stjórann bylmingshögg í
andlitið. Bílnum hafði verið lagt
ólöglega og var það mat lögreglu
að hann skapaði hættu. Lögregla
óskaði því eftir því að hann yrði
fjarlægður. Bílstjórinn missti
meðvitund og þurfti að flytja
hann á gjörgæslu deild Land spít-
alans í Fossvogi eftir árásina.
Árásarmaðurinn var
yfir heyrður og á von á kæru.
Bílstjórinn hlaut slæman
heila hristing og gekkst undir
rannsóknir í gær. - sh
Á kæru yfir höfði sér:
Kýldi dráttar bíl-
stjóra kaldan
FÓLK Phenporn Theehakde var aðeins tvítug þegar
hún kom fyrst til Íslands frá heimalandi sínu
Taílandi. Hún lagði í langferðina svo hún gæti
aðstoðað ættingja sína heima fyrir. Hana grunaði
ekki að áður en hún myndi ná þrítugu yrði hún enn
hér á landi, þremur börnum og 65 milljónum króna
ríkari, en hún og maður hennar unnu einn stærsta
Lottóvinning sem dreginn hefur verið út hér á landi.
Phenporn segist aldrei hafa haldið að það væri
erfitt að fara að heiman svona ung og til fjarlægs
lands. Hún hafi einfaldlega hugsað með sér að hún
væri heppin að fá nóg að vinna svo hún gæti
aðstoðað fjölskyldu sína í heimalandinu. Fimm árum
eftir komuna hitti hún jafnaldra sinn Jakkapong
Srichakan í fyrirtækinu Matfugli í Mosfellsbæ. Þau
felldu saman hugi og árið 2004 eignuðust þau lítinn
dreng sem þau nefndu Sirawich Árna. Árið 2006
bættist Natthan Ragnar svo í hópinn og í fyrra
fæddist þeim hjónum lítil stúlka sem þau nefndu
Pakka Jira Kristínu.
Phenporn starfar enn hjá Matfugli en Jakkapong
vinnur hjá Myllunni. Saman búa þau svo í Rjúpufelli
í Breiðholti og una hag sínum vel. „Við erum samt
ung með þrjú börn og eigum stóra fjölskyldu og nóg
hægt að gera við peningana,“ segir Phenporn og
hlær þegar hún er spurð hvort peningarnir komi sér
vel. Hún segir það þó ekki koma til greina að hætta
að vinna og fara að láta eins og fín frú en sumir sam-
starfsfélaga þeirra furðuðu sig á því að þau mættu
beint til vinnu daginn eftir að hafa fengið vinning-
inn. „Nei aldrei, ég vil vinna og nenni ekki að vera
heima,“ segir hún þótt það sé gott að vita að ef til
vill þurfi þau ekki að stunda fleiri en eina vinnu eins
og þau hafa jafnan gert.
Þá þykir henni gott að vita að börn þeirra geti sótt
sér þá menntun sem þau kjósi þar sem nægir
peningar ættu að vera til að standa straum af því.
Börnin þrjú eru hjá ættingjum í Taílandi þar sem
þau Jakkapong vinna svo langan vinnudag og ekki er
hlaupið að því að fá gæslu fyrir svo ung börn hér á
landi.
Phenporn segir að öll fjölskylda Jakkapongs sé
búsett á Íslandi. Ef til vill takist henni að fá foreldra
sína hingað til lands síðar auk barnanna. Það liggi þó
ekkert á enda geti þau Jakkapong nú lokið við smíði
húss á Taílandi en þau vilja bæði geta átt aðsetur hér
á landi og þar. Mikill gestagangur var hjá ungu
fjölskyldunni í Fellunum þegar Fréttablaðið ræddi
við þau í gær og sagði Phenporn að fjölskyldunni
hefði ávallt fylgt mikil lukka á Íslandi, bæði væru
þau vinamörg og vel sett. karen@frettabladid.is
Vilja að ástvinir
njóti vinningsins
Þegar Phenporn lagði af stað frá Taílandi til Íslands var hún aðeins tvítug. Hún
segist aldrei hafa hugsað að hér væri erfitt, lánið hafi elt hana. 65 milljóna
króna Lottóvinningur sé þó mjög góð viðbót við lukkuna.
LÁNSAMIR LOTTÓVINNINGSHAFAR Þau Phenporn Theehaked
og Jakkapong Srichakan fagna 65 milljón króna vinningi. Í
baksýn má sjá mynd af börnunum þeirra þeim Sirawich Árna,
Natthan Ragnari og Pakka Jira Kristínu en þau eru búsett á
Tælandi sakir þess hve langan vinnudag foreldrarnir vinna og
hve erfitt er að fá gæslu fyrir svo ung börn hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ALSÍR, AP Að minnsta kosti 43 manns
létust og álíka margir slösuðust
þegar bifreið með sprengiefni var
ekið á lögregluskóla í Alsír í gær.
Þetta er mannskæðasta árásin þar
í landi árum saman.
Nemendur stóðu í röðum að skrá
sig í nám þegar árásin var gerð.
Þak skólabyggingarinnar rifnaði
af að hluta og framhlið hússins
hrundi að mestu. Nærliggjandi
byggingar skemmdust einnig
mikið.
Samtök, sem kenna sig við Al
Kaída, hafa lýst ábyrgð á mörgum
sprengjuárásum í landinu síðustu
árin, en í gær hafði ekki borist til-
kynning frá þeim. Flestar þessar
árásir hafa beinst gegn lögreglu og
her landsins, en sumar gegn útlend-
ingum.
Í desember síðastliðnum urðu
tvær sjálfsvígsárásir í Algeirsborg
41 manni að bana. Meðal þeirra
voru 17 starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna. Í apríl árið 2007 létu 33
manns lífið samtals í nokkrum
árásum, sem gerðar voru samtímis
á lögreglustöð og stjórnarbygg-
ingu í Algeirsborg.
Al Kaída-samtökin í norðan-
verðri Afríku nefndu sig áður
GSPC og urðu til upp úr uppreisn á
síðasta áratug, sem kostaði allt að
200 þúsund manns lífið. Mannfall
minnkaði mjög á fyrstu árum þess-
arar aldar, en árásum hefur fjölgað
á ný síðan 2006, þegar GSPC lýstu
yfir aðild sinni að Al Kaída. - gb
Sjálfsmorðsárás í Alsír kostar nærri 50 manns lífið:
Árás á nýnema í lögregluskóla
LÖGREGLUMAÐUR Á VETTVANGI Hátt
í fimmtíu manns létust í sprengjuárás
í bænum Les Issers, sem er um 60
kílómetra austan við Algeirsborg.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BJÖRGUN Björgunarsveitarmenn
voru kallaðir út rétt fyrir
klukkan 20 í gærkvöldi til að
aðstoða fjallgöngumann í
Esjunni. Maðurinn hafði villst í
þoku og hringdi sjálfur eftir
hjálp.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni var maðurinn vel
útbúinn og aldrei í hættu. Hann
brást hárrétt við aðstæðum með
því að hringja eftir aðstoð og
bíða eftir björgunarsveitinni.
Vel viðraði til fjallgöngu í
blíðviðrinu í gær en þegar leið á
daginn myndaðist þokuhattur á
Esjunni og gerði mönnum erfitt
fyrir. Ekki er þó vitað til að aðrir
hafi lent í vandræðum.
Björgunarsveitarmenn höfðu
ekki náð til mannsins þegar
Fréttablaðið fór í prentun en voru
í símasambandi við hann. - kóp
Fjallgöngumaður í vanda:
Maður villtist í
þoku á Esjunni
SPURNING DAGSINS