Fréttablaðið - 20.08.2008, Side 22
MARKAÐURINN 20. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR4
O P N U V I Ð T A L
Þ
að er niðursveifla á mörgum svið-
um og ríkisstjórnin dalar í könn-
unum. Vinsældir þínar virðast
sömuleiðis hafa minnkað. Er erf-
itt að vera forsætisráðherra við
þessar aðstæður?
„Nei, ég kvarta ekkert yfir því. En því er
ekki að neita að staðan hefur gjörbreyst á
mjög skömmum tíma. Erfiðleikarnir sem
nú eru uppi voru ekki nema að litlu leyti
fyrirsjáanlegir. Þrengingar í efnahagsmál-
um bitna vitaskuld á fylgi þeirra flokka
sem við stjórnvölinn eru. En erfiðleikar
eru til að sigrast á þeim, bæði í lífi ein-
staklinga og þjóða, og ég hef einsett mér
að glíma af mikilli alvöru við þau mál sem
nú er við að fást. Ég hef gaman af því að
leysa þrautir og gaman af því að tefla erf-
iðar skákir. Þessi þraut er reyndar í mörg-
um víddum, en ég er alveg sannfærður
um að okkur mun takast að leysa hana og
að við munum koma þjóðarskútunni heilli
í höfn.“
BOTNINUM VAR EKKI NÁÐ
Kemur þessi vonda staða þér á óvart?
„Lausafjárkreppan sem varð til vegna
aðstæðna á fjármálamarkaði í Bandaríkj-
unum kom flatt upp á alla heimsbyggðina.
Hún hefur haft gríðarlegar afleiðingar um
allan heim, ekki bara á Íslandi. Við sjáum
að margar þjóðir glíma nú við mikla erfið-
leika, það fer enginn varhluta af því þegar
fjármálamarkaðir heimsins skreppa svona
saman eða lokast og fjárfestar verða jafn
áhættufælnir og raun ber vitni. Það kom
þess vegna öllum að óvörum, líka okkur
hér heima, að þessar aðstæður skyldu
skapast og hafa þessar afleiðingar. Þar við
bætist að á heimsmörkuðum hefur verð-
þróun á hrávöru og olíu verið alveg með
ólíkindum. Slíkar hækkanir eru ávísun á
kjaraskerðingu hérna heima, bæði hækk-
anir á matvælum og eldsneyti, en á hinn
bóginn gætu þær til lengri tíma orðið
okkur gagnlegar, þar sem þær auka verð-
mæti orkuauðlinda okkar og matvæla-
framleiðslunnar. Í öllum erfiðleikum fel-
ast þannig jafnframt einhver tækifæri.“
Þú sagðir á Alþingi í vor að botninum
væri náð. Var það ótímabær óskhyggja
ætluð til að blása þjóðinni kjarki í brjóst?
„Nei, þannig mat ég ástandið þá. Auðvit-
að er erfitt að segja til um með einhverri
vissu hvenær botninum er náð við svona
aðstæður. Það fer eftir svo mörgu sem við
höfum ekki vald á. Aðalatriðið er að viður-
kenna að hér eru komin upp ný vandamál,
sem eru nokkuð öðruvísi en við erum vön
að fást við. Jafnframt er brýnt að átta sig
á því að við höfum alla möguleika og mik-
inn styrk sem þjóðarbú til að leysa þennan
vanda. Við eigum miklar auðlindir, höfum
safnað í kornhlöður ríkissjóðs, ekki bara
greitt upp skuldir heldur safnað í digran
sjóð og framtíðarmöguleikar okkar eru
mjög miklir á mörgum sviðum, enda segir
í nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
að okkar horfur séu öfundsverðar.“
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR VERÐUR HEILDSÖLU-
BANKI
Í þeirri skýrslu var sett fram gagnrýni
á aðgerðir ríkisstjórnarinnar í húsnæðis-
málum. Íbúðalánasjóður ynni gegn verð-
bólgumarkmiðum Seðlabankans og þar
með peningamálastefnunni. Hvernig verð-
ur brugðist við þeirri gagnrýni?
„Ég tel að gagnrýnin á þessar aðgerðir
hafi verið léttvæg þegar litið er til skýrsl-
unnar í heild. Við eigum hins vegar eftir
að gera frekari umbætur á íbúðalánasjóð-
skerfinu. Við stöndum frammi fyrir at-
hugasemdum frá Eftirlitsstofnun EFTA og
það er unnið að því á vegum ríkisstjórnar-
innar að koma til móts við þær.“
Er eining um þessi mál innan ríkisstjórn-
arinnar? Fjármálaráðherra sagði breyting-
ar á Íbúðalánasjóði nauðsynlegar, en fé-
lagsmálaráðherra tekur slíku fjarri.
„Það er samstaða um að það þurfi að
gera þannig breytingar að félagslegi hluti
þessara lánveitinga sé tekinn út úr og að-
greindur frá öðrum og að gerðar verði
breytingar á ríkisábyrgðinni sem er í
gildi. Búið var að semja frumvarp um slík-
ar breytingar í í tíð fyrri ríkisstjórnar,
sem að mörgu leyti svarar þessari gagn-
rýni. Ég vil byggja á þeirri vinnu.“
Yrði Íbúðalánasjóður þá heildsölubanki
og ríkisábyrgð afnumin að einhverju leyti?
„Já, þetta yrðu sennilega niðurstöður í
þá átt. Ég hef tekið eftir því að orðið heild-
sölubanki fer í taugarnar á einhverjum, en
það er slík hugmynd sem gæti orðið ofan á
og þá yrði til nýr aðili sem keypti íbúðalán
af öðrum fjármálastofnunum.“
Hvernig gengur að efla gjaldeyrisforð-
ann?
„Við höfum tekið markviss skref í þeim
efnum. Nú síðast í júlí var hann aukinn
um tólf prósent með útgáfu ríkisvíxla og
er nú fjórfaldur miðað við það sem var
fyrir tveimur árum. Forðinn sjálfur hefur
stækkað og sömuleiðis hefur verið samið
um aðgang að lánalínum, eins og fram
hefur komið. Ef á reyndi höfum við þess
vegna úr miklu meiri fjármunum að spila
en áður var. Við fengum sérstaka lántöku-
heimild í vor upp á 500 milljarða króna í
því skyni að taka lán innanlands og utan.
Þegar hafa verið gefin út skuldabréf inn-
anlands upp á 75 milljarða og eitthvað
af því hafa erlendir fjárfestar keypt og
þannig komið með erlendan gjaldeyri inn í
landið. Unnið er að frekari skrefum varð-
andi lántöku og ég býst við að það verði
gert í áföngum á þessu ári. Þessi mál eru
í stöðugri vinnslu í samvinnu ríkisstjórnar
og Seðlabanka.“
ENGINN ÁGREININGUR MILLI
RÍKISSTJÓRNAR OG SEÐLABANKANS
Það ganga sögur um stíf samskipti milli
ríkisstjórnar og Seðlabankans. Að Seðla-
bankinn hafi fyrir nokkrum mánuðum lagst
gegn lántöku vegna óviðunandi kjara, sem
síðan hafi versnað enn. Hver er sannleik-
urinn í þessum málum?
„Það er enginn ágreiningur milli okkar
í ríkisstjórninni og Seðlabankans um lán-
tökumálin.“
Kanntu einhverja skýringu á þessum
þráláta orðrómi, sem meðal annars hefur
skilað sér inn í fyrirspurn á Alþingi?
„Nei, ég kann ekki skýringar á því. Auð-
vitað eru allar ákvarðanir í þessum efnum
háðar mati. Það sem gerðist í vor var
að lántökukostnaður var á niðurleið og
því eðlilegt að bíða betri
kjara. Þá hækkaði kostn-
aðurinn, en er nú aftur á
niðurleið í takt við álag á
skuldatryggingar bank-
anna. Við erum í góðu
samstarfi við Seðlabank-
ann í þessum efnum, fjár-
málaráðuneytið ber hina
formlegu ábyrgð og tekur
lánið í nafni lýðveldis-
ins Íslands en Seðlabank-
inn annast framkvæmd-
ina. Við þurfum ekki að
grípa til örþrifaráða upp
á hvern dag til að takast
á við þessar aðstæður.
Það er fjarri lagi.“
MJÖG MARGT VERIÐ GERT
Í nýlegri skýrslu Merryll
Lynch var engu að síður
fjallað um aðgerðar-
leysi ríkisstjórnarinn-
ar, lýst nokkurri undr-
un og því meðal annars
velt upp hvort hugmynd-
in gæti verið sú að þjóð-
nýta einhvern af bönkun-
um. Hvað viltu segja um slíkar bollalegg-
ingar frá slíkum aðila?
„Það tjá sig margir aðilar á alþjóðavett-
vangi um stöðu okkar og út af fyrir sig
er það alveg nýtt fyrir okkar litla og við-
kvæma hagkerfi. Ísland virðist vinsælt
umfjöllunarefni erlendra greiningaraðila
og fjölmiðla en oft er ekki tekið tillit til
þeirra fjölmörgu aðgerða sem þegar hefur
verið gripið til í því skyni að örva hagkerf-
ið og bregðast við aðsteðjandi vanda. Við
höfum rýmkað reglur um veð, gert ráð-
stafanir tengdar fasteignamarkaðnum, við
höfum lækkað skatta á fyrirtæki, afnum-
ið að hluta stimpilgjöld hjá einstakling-
um, við höfum gengið inn í samstarf ríkja
innan Evrópusambandsins og EFTA um
aðgerðir gegn fjármálakreppu og gefið út
skuldabréf sem auka gjaldeyrisvaraforð-
ann auk þess að gera gjaldmiðlaskipta-
samninga við norrænu seðlabankana. Allt
eru þetta liðir sem virka saman að lausn
vandans. Það er hins vegar liðin tíð að
komið sé með efnahagsaðgerðapakka, eins
og tíðkaðist í gamla daga, þar sem ráð-
herrar komu og tilkynntu um sérstakan
afslátt á kindakjöti og mjólk. Við fylgj-
umst að sjálfsögðu vel með því sem er á
seyði í öðrum löndum, en hvert ríki grípur
til aðgerða sem henta því. Í Bandaríkjun-
um hefur þetta fyrst og fremst snúist um
að tryggja lánastofnunum laust fé. Seðla-
bankinn þar hefur verið mjög útsjónar-
samur að koma peningum til þeirra aðila.
Seðlabanki Íslands hefur sömuleiðis verið
allur af vilja gerður að gera slíkt hið sama,
að sjálfsögðu gegn eðlilegum tryggingum.
Við höfum hins vegar ekki sagt okkar síð-
asta orð. Á meðan við erum ekki komin út
úr vandanum höldum við því að sjálfsögðu
opnu að grípa til frekari aðgerða sem að
gagni geta komið. En það má ekki gerast í
örvæntingu eða óðagoti.“
MENN HAFA FARIÐ GEYST
Fjármálaráðherra hefur sagt að ekki sé
réttlætanlegt að ríkið gripi til aðgerða til
að bjarga „einhverjum aðilum sem hefðu
farið of geyst í fjárfestingum” og enn frem-
ur að styrking gjaldeyrisforðans væri ein-
göngu hagsmunamál ákveðinna aðila en
ekki heildarinnar. Getur þú tekið undir
þessi orð og um hverja er hann að ræða?
„Ég býst við því að hann eigi við það
að ríkið muni ekki endilega hlaupa til og
hjálpa fyrirtækjum sem eiga í erfiðleik-
um eða eiga yfir höfði sér gjaldþrot, enda
eru ekki margir nú til dags sem setja fram
hugmyndir um slíkt. Margir hafa farið
geyst í góðæri undanfarinna ára, tekið
áhættu og fjárfest úr hófi og horfast nú
í augu við afleiðingarnar. Hvað varðar
gjaldeyrisforðann er sú stefna óbreytt að
auka hann. En kjörin skipta mjög miklu
máli, enda borgar almenningur kostnað-
inn á endanum.“
Hvað með að láta
bankana greiða kostn-
aðinn?
„Já, sú hugmynd hefur
komið fram. Hún er hins
vegar erfið í útfærslu
ef eingöngu er um það
að ræða að auka gjald-
eyrisforðann. Hann er í
eðli sínu varasjóður ætl-
aður til að treysta stöðu
Seðlabankans sem lán-
veitanda til þrautavara.
Við höfum ekki tekið
neina ákvörðun um að
láta bankana bera af
þessu kostnað sérstak-
lega, en það kemur þó
til greina.
En hvað með allan
fórnarkostnaðinn sem
landsmenn greiða óbeint
af útgáfu jöklabréfa?
„Öll þessi atriði þarf
að vega hvert á móti
öðru. Við horfum ekki
eingöngu til kostnaðar
af lántöku erlendis, alls
ekki, enda höfum við
sagst ætla að útvega þá peninga jafnvel
þótt það sé dýrt. En gjaldeyrisvaraforðinn
hér á landi er stór á næstum því alla mæli-
kvarða en lítill miðað við efnahagsreikn-
ing íslensku bankanna. Það er vandinn.“
EKKI RÉTT AÐ ENDURSKOÐA PENINGA-
MÁLASTEFNUNA NÚ
Er ekki hættan sú að fyrirtækjum og ein-
staklingum blæði út peningalega nú þegar
varla er fyrirgreiðslu að fá í bönkum og
vextir eru 15,5 prósent?
„Það er auðvitað ljóst að atvinnurekst-
ur í slíku umhverfi er mjög erfiður. Þess
vegna gengur þeim vitaskuld betur sem
höfðu vaðið fyrir neðan sig og skuld-
settu sig ekki um of. Hugmyndin með
háum vöxtum er að þeir bíti fljótt og
hafi tilætluð áhrif svo unnt sé lækka þá
skjótt aftur. Ég gagnrýni ekki peninga-
málastefnu Seðlabankans. Ég geri mér
vonir um að hún skili brátt þeim árangri
að verðbólga minnki hratt og vextir lækki
þar með á ný.“
Þú boðaðir á ársfundi Seðlabankans
endurskoðun peningamálastefnunnar í
ljósi reynslunnar af þeim lögum sem sett
voru 2001. Hvað líður þeirri vinnu?
„Ég boðaði að farið yrði yfir reynsl-
una af því kerfi sem komið var á laggirn-
ar 2001. Til þess yrðu fengnir innlendir
og erlendir sérfræðingar. Ég sagði jafn-
framt að að það væri ekki skynsamlegt
að gera þetta meðan á erfiðustu sigling-
unni stæði eða kippa teppinu undan Seðla-
bankanum.”
Hvað viltu segja um þau ummæli vara-
formanns Sjálfstæðisflokksins að ef til vill
hafi verið mistök að breyta ekki lögum um
Seðlabankann í vor og veita honum aukið
svigrúm til athafna, til að ná öðrum mark-
miðum en eingöngu „þessu harðsoðna verð-
bólgumarkmiði,“ eins og hún orðar það. Þá
sagði hún mikilvægt að strax yrði farið
gaumgæfilega yfir peningamálastefnuna?
„Það er skynsamlegt að gera slíka úttekt
og langbest að fá til þess aðila sem ekki
eiga neinna sérstakra hagsmuna að gæta,
en í góðu samstarfi við Seðlabankann og
með hans aðkomu. En það hefur ekki verið
ákveðið hvenær verður ráðist í þetta. Það
sem skiptir mestu máli nú er að koma í
veg fyrir að verðbólgan festist í sessi eða
fari úr böndunum. Þar fara saman hags-
munir almennings og fyrirtækja.“
STÓRFRAMKVÆMDUM FRESTAÐ
En getur ríkisstjórnin ekki lagt sitt af
mörkum til að flýta fyrir því að vaxtalækk-
unarferli geti hafist?
„Jú, og það munum við gera. Við kynnt-
um á þessu ári að hægar verði farið í sak-
irnar við stórframkvæmdir á borð við
Sundabraut og nýtt háskólasjúkrahús, sem
báðar eru enn á skipulagsstigi. Á hinn bóg-
inn höfum við engin áform uppi um að
magna niðursveifluna með því að draga úr
opinberum framkvæmdum í stórum stíl.
Við höfum lagt til hliðar og bjuggum í hag-
inn meðan vel gekk. Nú er komið að því að
sækja aftur í kornhlöðurnar eitthvað af
því sem lagt var inn.
Besta leiðin til að vinna sig út úr þess-
um aðstæðum er hins vegar að sjálfsögðu
fólgin í að framleiða, framleiða og aftur
framleiða. Verðmætasköpun er það sem
málið snýst fyrst og fremst um, að halda
áfram að skapa verðmæti í vörum og þjón-
ustu og nýta auðlindir okkar. Auðlindir eru
ekki mikils virði ef þær eru ekkert nýttar
og engin þjóð telur sig hafa efni á að nýta
ekki þær auðlindir sem hún ræður yfir.
Þess vegna held ég sé mjög mikilvægt að
virkja í auknum mæli með ábyrgum og
sjálfbærum hætti, bæði jarðhita og vatns-
afl. Það er alveg nauðsynlegt til að halda
áfram að bæta lífskjörin í landinu. Með
því að nýta auðlindirnar sendum við einn-
ig sterk skilaboð til þeirra sem fjármagna
fjármálakerfið að tekjustreymi framtíð-
arinnar verði mikið og heilbrigt og landið
því traustsins vert.“
Illugi Gunnarsson og Bjarni Benedikts-
son sögðu í viðtali við Markaðinn á dög-
unum að ríkisstjórnin yrði að tala einni
og ábyrgri röddu í þessum efnum út fyrir
landsteinana. Umhverfisráðherra sætir nú
harðri gagnrýni fyrir ákvörðun sína um
heildstætt umhverfismat vegna Bakka og
viðskiptaráðherra er meðal mótmælenda
við neðri hluta Þjórsár. Þarf forsætisráð-
herrann ekki að hafa meiri aga á sínu liði
við svo viðkvæmar aðstæður?
„Ég held að línur hafi mjög skýrst varð-
andi fyrirhugað álver á Bakka einmitt
eftir ákvörðun umhverfisráðherrans. Ég
tel núna alveg gulltryggt, í ljósi þeirra yf-
Hef gaman af að leysa þrautir
Staðan hefur gjörbreyst á skömmum tíma, viðurkennir Geir H. Haarde forsætisráðherra í viðtali við Björn Inga Hrafnsson við-
skiptaritstjóra. Hann fer yfir ástand efnahagsmála, ræðir lausafjárvandann, Evrópumálin, virkjanir, stóriðju og margt fleira og
segist hafa einsett sér að glíma við aðsteðjandi erfiðleika af mikilli alvöru.
Jafnframt er brýnt að
átta sig á því að við
höfum alla möguleika
og mikinn styrk sem
þjóðarbú til að leysa
þennan vanda. Við
eigum miklar auðlindir,
höfum safnað í korn-
hlöður ríkissjóðs, ekki
bara greitt upp skuldir
heldur safnað í digran
sjóð og framtíðarmögu-
leikar okkar eru mjög
miklir á mörgum svið-
um, enda segir í nýrri
skýrslu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins að okkar
horfur séu öfundsverðar.