Fréttablaðið - 20.08.2008, Page 24
FORD FIESTA ECONETIC var nýlega heimsfrum-
sýndur og er visthæfasti bíllinn sem Ford hefur sent frá
sér því mikil nákvæmni var lögð í smáatriði hans.
Í lok sumars er gott að yfirfara bíl-
inn til að undirbúa hann sem best
fyrir veturinn. Þeir sem eiga not-
aða bíla þurfa til að mynda að huga
að ryðblettum sem geta jafnvel
myndast á nokkurra ára gömlum
bílum. Mikilvægt er að vinna á
þeim svo tæringin í lakkinu verði
ekki óviðráðanleg.
Ef einungis er um að ræða ein-
staka bletti má jafnvel gera við þá
sjálfur en séu þeir þeim mun fleiri
er yfirleitt ráðlegt að fara með bíl-
inn í sprautun.
Bilalakk ehf er heildverslun í
innflutningi á málningarvörum
fyrir málningar- og réttingarverk-
stæði en býður einnig upp á vörur
fyrir fólk sem vill þrífa og viðhalda
bílnum sínum. Þar á meðal vörur til
að laga ryð.
„Ég bið fólk yfirleitt um að koma
með bílinn til mín og
reyni þá að leggja mat
á það hvort þurfi að
fara með bílinn á verk-
stæði eða ekki. Ef fólk
vill spreyta sig sjálft þá
getur það nálgast þekk-
inguna og réttu efnin hjá
okkur,“ segir Magnús
Harðarson eigandi versl-
unarinnar.
Hann segir fyrst
þurfa að slípa ryðið
burt með svokölluð-
um ryðsveppi. „Hann
tætir ryðið en skemm-
ir ekki lakkið. Það fer
svo eftir því hversu mikið ryðið
er orðið hvað er sett ofan í. Ef
það er mikið mælum við með
því að fyllt sé upp í holuna
með fyllingarefni. Það þarf
svo að slípa slétt. Síðan
þarf að setja stálgrunn
yfir og ofan á það fylling-
argrunn sem er notaður til
að fá yfirborðið slétt of
fallegt fyrir augað.“
Eftir það kemur fólk
gjarnan til Magnúsar og
setur hann rétta litinn á
brúsa og sprautar yfir.
„Þetta getur komið ágætlega
út ef skemmdin er lítil en ef hún er
þeim mun meiri koma gjarnan skil.
Á verkstæðum fer vinnan öðruvísi
fram og skilin myndast síður.“
En hvers vegna myndast ryðið og
hvað er hægt að gera til að koma í
veg fyrir það? „Þetta helst oft í
hendur við verð og eru ódýrari
bílar gjarnan með síðra lakk.
Óhreinindi, steinhögg og veðurfar
eru síðan helstu áhrifavaldar.“
Með því að hugsa vel um bílinn,
þrífa óhreinindi og bóna má reyna
að fyrirbyggja ryðmyndun og
býður Magnús upp á efni og tól til
þess. vera@frettabladid.is
Ráðist gegn ryðblettum
Hægt er að gera við ryðskemmdir upp á eigin spýtur en það fer þó eftir umfangi hvort það borgi sig. Hjá
Bílalakki ehf. er hægt að fá ráðleggingar og réttu efnin vilji fólk spreyta sig á því að laga litlar skemmdir.
Magnús Harðarson hjá Bílalakki ehf. á allt sem þarf til að gera við ryðskemmdir.
Hann ráðleggur fólki þó að fara með bílinn á verkstæði ef skemmdirnar eru miklar.
FRÉTTABLÐIÐ/RÓSA
Smiðjuvegur 38 rauð gata • Sími 564 0606 • Fax 564 0636
www.bilastod.is • bilastod@simnet.is
GERUM VIÐ ALLAR TEGUNDIR BÍLA
Bremsuhlutir
í alla jeppa
og pickupa
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Diskar
Klossar
Dælur
Borðar
Ísetningarþjónusta
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
E
H
F
.
Ljósavélar Sparljós og perurGasmiðstöðvar Vatnshitarar
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki