Fréttablaðið - 20.08.2008, Page 26
„Í sex daga gönguferð heimsótti ég
þrjá af fjórum þjóðgörðum Svart-
fjallalands og var mest uppi í
háfjöllum en hitti líka íbúa landsins
sem voru einstaklega vinalegir og
gestrisnir,“ segir Gyða og kveðst
hafa fengið mikið útúr ferðinni því
auk þess að ganga um fagurt og
stórbrotið landslag og njóta útsýnis
þaðan hafi hún farið í flúðasiglingu
og klifur. Hún lýsir þessu ævintýri
nánar.
„Við flugum til Dubrovnik í Króa-
tíu, með millilendingu í Frankfurt.
Þar tóku þrír fararstjórar á móti
hópnum. Sá fjórði fylgdi okkur að
heiman, Hjördís Hilmarsdóttir sem
er einkar lagin við að finna nýjar og
óhefðbundnar leiðir. Eftir fimm
tíma akstur og siglingu komum við
á fyrsta áfangastað, Zabljak Durmit-
or sem er þjóðgarður í norðvestu-
hluta Svartfjallalands. Aðalein-
kenni hans er háslétta, sundurskorin
af djúpum gljúfrum. Áin Tara sem
við fórum í flúðasiglingu á, rennur
eftir stærsta gljúfrinu. Það er hið
dýpsta í Evrópu, 1300 metrar Þar
sem það er dýpst. Landslagið þarna
er semsagt mjög stórskorið, með 48
tignarlega tinda í yfir 2000 m hæð
og auk þess 18 jökulvötn. Þau eru
kölluð augu fjallanna.“
Gyða segir hópinn hafa gist í
fjallaskálum þar af tveimur með
mjög góðum aðbúnaði, uppbúnum
rúmum, mat og nesti fyrir daginn.
„Durmitor fjallgarðurinn er að
miklu leyti úr kalksteini en annars
staðar var gengið um gömul eld-
fjöll innan um litskrúðugan og
kröftugan gróður. Á síðasta áfanga-
stað spreyttum við okkur á að klifra
í köðlum og síga. Það var nýtt fyrir
flesta.“
Gyða segir göngurnar hafa verið
við hæfi flestra. Þó hafi verið boðið
uppá að skipta hópnum ef fólk vildi
stytta sér leið, enda erlendu farar-
stjórarnir þrír. „En flestir fóru alla
leið,“ segir hún og getur þess að
síðasta deginum hafi verið varið í
elsta hluta hinnar fögru Dubrovnik
sem rík sé af sögulegum minjum.
gun@frettabladid.is
Við stærsta gljúfur Evrópu
Svartfjallaland býr yfir tignarlegum tindum og er vel til gönguferða fallið fyrir þá sem kunna að meta stór-
brotna náttúru. Gyða Hauksdóttir sjúkraliði kynntist því fyrr í sumar er hún hélt þangað með ÍT ferðum.
„Á síðasta áfangastaðnum æfðum við
klifur. Það var nýtt fyrir flesta,“ segir
Gyða.
„Þegar komið er svona hátt
upp verður útsýnið vítt og
fagurt,“ segir Gyða sem hér er
t.h. við Sigrúnu Víglundsdótt-
ur. Í baksýn er Katorflóinn við
Adríahafið.
MYND/HJÖRDÍS HILMARSDÓTTIR.
FERÐALÖG um Ísland verða áhugaverðari þegar
ferðalangur hefur upplýsingar um svæðið. Á heimasíð-
unni www.ferdalag.is má nálgast ýmsar upplýsingar um
ferðalög á Íslandi.
Frábær helgarferð
- síðustu sætin
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í helgarferð til
Barcelona í lok september. Barcelona er einstök perla sem íslendingar
hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært mannlíf og óendanlega
fjölbreytni í menningu og afþreyingu að ógleymdu öllu því úrvali fjöl-
breyttra verslana sem eru í borginni. Fjölbreytt gisting í boði.
Gríptu þetta frábæra tækifæri - örfá sæti laus!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Barcelona
26. september
frá kr. 59.990
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Catalonia Aragon ***
í 3 nætur með morgunverði. Kr. 4.000 aukalega m.v. gistingu í tvíbýli
á Hotel Catalonia Atenas **** og kr. 8.000 aukalega m.v. gistingu
í tvíbýli á Hotel Catalonia Suite ****.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki