Fréttablaðið - 20.08.2008, Page 28
Menningarnótt er nú haldin
hátíðleg í þrettánda sinn og
dagskráin er fjölbreytt að
vanda. Búast má við að borg-
arbúar og gestir þeirra láti sjá
sig á torgum úti, enda er þema
hátíðarinnar í ár torg í borg.
„Menningarnótt hefur vaxið gríð-
arlega á þessum þrettán árum og
er núna stærsta hátíð landsins.
Þetta er eitthvað sem enginn vill
missa af,“ segir Skúli Gautason
viðburðafulltrúi hjá Höfuðborgar-
stofu. Hann hefur ásamt fleirum
staðið í ströngu undanfarin miss-
eri við að gera Menningarnótt
sem glæsilegasta. Segir hann und-
irbúninginn hafa staðið lengi yfir
og menn séu þegar farnir að leiða
hugann að næsta ári.
Þema Menningarnætur í ár er
torg í borg. „Þessi hugmynd kom
út úr hugmyndavinnu um það
hvað það væri sem gerði borgarlíf
spennandi og skemmtilegt. Allir
voru sammála um það væri þessi
torgamenning sem myndast oft.
Okkur langaði að sjá hvað kæmi
fram ef við hefðum þessa yfir-
skrift og margir atburðir hverf-
ast í kringum þetta hugtak og hafa
jafnvel víkkað út skilgreining-
una á torgi sem getur verið allt
frá stóru umferðartorgi niður í
einhvers konar afdrep eða bekk
á götuhorni,“ segir Skúli. „Það er
gaman að sjá hvernig fólk hefur
rekið augun í ýmis torg sem hafa
hreinlega gleymst. Þannig verð-
ur til dæmis heilmikið um að vera
á Bríetartorgi á horni Þingholts-
strætis og Amtmannsstígs en þar
er svolítill sælureitur sem allt of
fáir vita af,“ útskýrir hann.
Skúli segir að þrátt fyrir sam-
drátt í efnahagslífinu láti krepp-
an ekki á sér kræla þegar Menn-
ingarnótt er annars vegar. „Menn-
ingarnótt í ár er umfangsmeiri
en í fyrra. Menningarnótt er af-
rakstur hugsjónastarfs. Þetta er
góður vettvangur fyrir fólk sem
er að gera spennandi hluti og
vill hrinda þeim í framkvæmd.
Það sem fer fram á Menningar-
nótt er ekki í hagnaðarskyni og
það er kannski það stórkostleg-
asta við þessa hátíð. Það er svo
margt fólk sem vill bera eitthvað á
torg,“ segir Skúli og bætir því við
að Menningarnótt hafi margþætt
gildi fyrir borgina og íbúa hennar.
„Ég hef orðið var við að margir
líta á Menningarnótt eins og jólin
að því leyti að þetta er tilefni til að
gera hreint og hafa allt skemmti-
legt. Svo er einnig annað elem-
ent sem mér finnst kristallast í
vöfflukaffinu í Þingholtunum þar
sem íbúar bjóða gestum og gang-
andi inn til sín í vöfflur, það er
gjafmildin og það að fólk treystir
hvert öðru.“ - þo
20. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR10 ● fréttablaðið ● menningarnótt2
Skúli Gautason viðburðafulltrúi hjá
Höfuðborgarstofu segir Menningarnótt
aldrei hafa verið umfangsmeiri en nú.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Svo margir sem vilja
bera eitthvað á torg
Skúli segir Menningarnótt afrakstur hugsjónastarfs og því hafi efnahagsástandið lítil
áhrif á hana. Hátíðin hefur aldrei verið umfangsmeiri en nú.
● DAGSKRÁ MENNINGARNÆTUR BEINT
Í SÍMANN Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að
gleyma dagskrá menningarnætur heima þegar lagt
er af stað í bæinn. Í ár er bryddað upp á þeirri nýj-
ung að hægt er að fá dagskrá menningarnætur
senda í farsímann.
Það eina sem þarf að gera er að senda sms með
textanum menning í númerið 1910. Þá kemur svar
með slóð á heimasíðu Ýmis ehf. og með því að
smella á slóðina hleðst lítið forrit niður í viðkom-
andi síma. Þar er hægt að skoða alla dagskrána í
textaformi og á korti, í tímaröð eða eftir flokkum.
Þjónustan er ókeypis eins og allir viðburðir á
menningarnótt.
Tvö götuleikhús sækja Menningarnótt heim í ár og setja svip
sinn á hátíðina. Breski leikhópurinn Bedlam Oz setur upp sýn-
inguna Slinkie Love víðs vegar um bæinn. Þetta er örstuttur
leikþáttur um ástir tveggja orma sem dúkka upp hér og þar í
bænum. Ormarnir sjálfir ná að reisa sig allt að sex metra upp í
loftið og ættu því að vekja athygli og eftirtekt.
Þegar líður á kvöldið fer írskt götuleikhús á stjá og leiðir
skrúðgöngu frá Lækjartorgi að Sæbraut þar sem fylgst verður
með flugeldasýningunni. Upplásnar fígúrur leiða gönguna við
undirspil Dixie hljómsveitar. -þo
Ástfangnir ormar
bregða á leik
Leikþátturinn Slinkie Love á eflaust eftir að gleðja marga.